Austurglugginn - 26.11.2020, Síða 7
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 26. nóvember 7
þessi viðvera dottin niður í kannski
frá rúmlega 100 dögum og upp í
hálft ár.“
Þeir á Jóni Kjartanssyni eru í
svokölluð skiptikerfi, í áhöfninni
eru fjórtán menn og tíu um borð í
hverri veiðiferð nema þegar veitt er
með nót, þá eru 14 um borð.
Við í brúnni erum á þrír/einn
kerfi,“ segir Grétar. „Það er fjórði
hver túr er frítúr. Ég er einmitt að
byrja slíkan frítúr en skipið lagði úr
höfn til veiða í dag.“
Grétar er ekki mikið fyrir að
tjá sig um kvótakerfið undir þeim
formerkjum að fæst orð bera
minnsta ábyrgð. „Ég hef svo sem
engar stórvægilegar athugasemdir
við kerfið en það má alltaf gera betur
á þessu sviði eins og öðrum,“ segir
hann.
Bílasýningar
Eins og áður segir eru bílar mikið
áhugamál Grétars. Hann segir að
fyrsti bíllinn sem hann eignaðist
skömmu eftir bílprófið hafi verið
Fiat 850.
„Ég hef alltaf haft brennandi
áhuga á bílum,“ segir Grétar og
bætir því við að á ferðalögum sínum
erlendis reyni hann oftast að komast
á bílasýningar eða skoða bílasöfn.
„Ég heimsótti eitt sinn mjög stóra
fornbílahöll í furstaríkinu Mónakó
en höllin er í eigu furstans sjálfs. Ég
held að hann sé bíladellukall eins og
ég,“ segir Grétar.
„Það var alveg einstakt að koma
þangað inn. Þarna gat maður séð bíla
allt frá fyrstu árum bílaaldarinnar,
kringum þarsíðustu aldamót, upp
í vel buffaða formúlubíla úr Grand
Prix keppnum í gegnum tíðina.“
Hann bætir því við að ein
þekktasta kappakstursbraut heims
liggi um götur Mónakó og margir
af bílunum í höllinni hafi brunað
um þær götur.
Grétar er í stjórn Bílaklúbbs
Austurlands og sá félagsskapur
heldur bílasýningar þar sem fornbílar
meðlima eru til sýnis.
„Sem dæmi má nefna að
klúbburinn heldur alltaf bílasýningu
á Sjómannadaginn á hafnarsvæðinu
á Eskifirði. Þá mæti ég með báða
kaggana mína,“ segir Grétar.
Hann rifjar einnig upp að í síðustu
kosningabaráttu um forsetaembættið
hafi Guðni Th. Jóhannesson forseti
rekist á sig á Fordinum.
„Ég sá að Guðni var að skoða
Fordinn minn svo ég tók hann
aðeins tali og smellti af mynd“ segir
Grétar. „Þetta er fínn kall og ég kaus
hann.“
Dótakassinn
Fordinn sem Grétar nefnir þarna
er hvítur tveggja dyra Ford Fairlane
Victoria árgerð 1955. Hinn
fornbílinn er Lincoln Continental
Limousine árgerð 1976. Báðir eru
þeir í toppstandi.
„Ég keypti Lincolninn af
fullorðnum manni á Selfossi,“
segir Grétar. „Fordinn eignaðist ég
hinsvegar fyrir hálfgerða tilviljun,
það er ég datt óvænt inn í kauprétt
að honum.“
Aðspurður um hvort svona
fornbílar séu ekki dýrir í innkaupum
lætur Grétar það vera. „Ég fékk
Lincolnin á tvær milljónir og
Fordinn á hálfa aðra milljón. Hann
var þá nýuppgerður og sprautaður.“
Hann lætur þess getið að skömmu
eftir að hann eignaðist Fordinn hafi
hann fengið kauptilboð í hann upp á
þrjár milljónir en hann á hann enn.
Bílarnir eru geymdir í skemmu
á Eskifirði… „Hann er með
dótakassann sinn þar,“ skýtur Inga
Rún inn í.
„Við erum þrír félagar sem
eigum skemmu undir bílana okkar
og raunar fleira dót,“ segir Grétar.
„Hún er smekkfull í augnablikinu.“
Fótbolti og ferðalög
Fyrir utan bíla, gamla og nýja, er
Grétar með tvær ástríður, fóbolta
og ferðalög. Hann heldur með
Arsenal í ensku deildinni og
íslenska landsliðinu undir öllum
kringumstæðum.
„Ég hef nokkrum sinnum farið á
leiki á gamla Highbury og Emirates,
heimavöll Arsenal.“ segir Grétar.
„Það er svolítið sérstök upplifun að
koma á heimavöll liðsins sem maður
heldur með.“
Hann nefnir að hann hafi þar að
auki verið svo heppinn að í tveimur
af þessum leikjum hafi Arsenal
verið að taka á móti Tottemham,
erkifjendunum í London, og hafi
sigrað þá í báðum leikjunum.
„En það jafnast ekkert á við
stemminguna sem skapast á
vellinum þegar íslenska landsliðinu
gengur vel, einkum í lokamótum,“
segir Grétar. „Ég var svo heppinn
að vera á vellinum þegar Ísland lagði
England 2-1 í Evrópumótinu 2016 í
Nice í Frakklandi. Það er varla hægt
að lýsa með orðum stemmingunni
sem skapaðist þá en þetta er eitthvað
sem maður gleymir aldrei.“
Hin ástríðan, ferðalög, er nokkuð
sem hann deilir með konu sinni en
þau hafa komið til allra heimsálfa
nema Asíu.
„Við eigum eftir að heimsækja
Asíu og mig hefur alltaf langað til að
koma til Grænlands,“ segir Grétar.
„Þetta tvennt er á listanum yfir þá
staði sem ætlunin er að heimsækja í
náinni framtíð.“
Aðspurður hver sé lengsta ferðin
sem þau hjónin hafa farið í segir
Grétar það hafa verið til Suður
Afríku.
„Þetta var ekki hefðbundin
túristaferð þótt við höfum farið í
einn svona safarítúr í henni,“ segir
Grétar. „Við vorum að heimsækja
frændfólk Ingu sem býr þarna rétt
hjá höfuðborginni, Jóhannesarborg.“
Grétar segir að þau hafi því getað
heimsótt og kynnst landinu frá
aðeins öðru sjónarhorni.
„En eitt af því sem stendur
upp úr þessari ferð er heimili
mannréttindafrömuðarins Nelson
Mandela,“ segir Grétar. „Það var
magnað að koma þar í ljósi sögu
Mandela og þess sem hann fékk
áorkað.“
Þá er ónefnt eitt áhugamál enn
hjá Grétari en það eru skotveiðar.
Hann stundar bæði rjúpna- og
hreindýraveiðar á haustin. Inga
Rún hefur líka farið með honum í
skotveiðina. „Ekki til að skjóta neitt
en ég hef gaman af útiverunni,“ segir
hún.
Þennan fyrsta dag í vikulöngu
fríinu var Grétar að spá í að skjótast
á rjúpu en veðrið samsvarar brælu
á miðunum, frekar leiðinlegur
skafrenningur uppi á heiðum.
Veðurspáin bendir þó til að færi
gefist á rjúpu síðar í vikunni og
Vveiðin fær að bíða þar til þá.
Skipstjórinn er vanur að sæta lagi.
FRI
Fornbíllinn Ford Fairlane var nýupptekinn og sprautaður þegar Grétar fékk hann
með þessu forláta varadekkshlustri. Mynd: Einkasafn.
Lincoln Continental árgerð 1976 er í toppstandi. Mynd: Einkasafn.