Austurglugginn - 26.11.2020, Blaðsíða 9
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 26. nóvember 9
Mikið hefur verið skrifað um
áherslur í heilbrigðismálum.
Eðlilegar kröfur eru að fólk búi
við heilsufarslegt öryggi hvar sem
það býr á landinu, eins og lög kveða
á um.
Áherslum sveitarfélaga er oft snúið
upp í hrepparíg og þannig komumst
við lítið áleiðis með áherslumál
okkar. Sameiginleg rödd er alltaf
háværust og árangursríkust og það er
ástæða þess að sveitarfélög kjósa að
sameinast, til þess að standa sterkari,
eins og nýtt sameiginlegt sveitarfélag
Múlaþing sýnir vel.
Sameiginleg rödd alls Austurlands
er SSA, Samband sveitarfélaga á
Austurlandi og verður að vitna í þá
rödd þegar rætt er um áherslur alls
Austurlands. Þær byggjast á árlegum
samþykktum og langar mig að benda
á nokkrar þeirra, meginmarkmið
SSA og einnig núgildandi
samþykktir í heilbrigðismálum á
Austurlandi:
Samþykktir Sambands
sveitarfélaga á
Austurlandi
1.gr.
Meginmarkmið SSA eru að;
b) berjast fyrir auknum jöfnuði til
búsetu milli landshluta svo sem hvað
varðar orkuverð, vöruverð, aðstöðu til
náms, aðgang að heilbrigðisþjónustu og
menningarstarfsemi.
Vegna nýlegra skrifa í
Austurgluggann um að meirihluti
nýs sameinaðs sveitarfélags
Múlaþings, sé í því að ýfa upp
tilfinningar og trufla samvinnu
milli stóru sveitarfélaga og einnig
að verið sé að byggja annað
Fjórðungssjúkrahús á Austurlandi
þá hafna ég því alfarið og bendi
á ályktanir SSA um áherslur í
heilbrigðismálum landshlutans:
Efling heilbrigðisþjónustu
Haustþing SSA, haldið á Borgarfirði
eystri 11. og 12. október 2019, skorar
á yf irvöld velferðar- og fjármála,
Alþingi og ríkisstjórn Íslands að efla
þá heilbrigðisþjónustu sem nú er veitt
í landshlutanum og að bætt verði úr
þar sem þjónusta er ekki viðunandi.
Í því samhengi er einkar mikilvægt
að leggja áherslu á eftirfarandi þætti:
a) Umdæmissjúkrahús Austurlands
verði eflt og geti sinnt bráða-, sérfræði-
og fæðingarþjónustu allan ársins hring.
c) Lögð verði sérstök áhersla á eflingu
frumgreininga í bráðatilvikum
með kaupum á nauðsynlegum
greiningartækjum á heilsugæslum
staðsettum í nánd við
sjúkraflugvelli.
SSA er rödd allra sveitar-
stjórnarfulltrúa á Austurlandi.
Hér sést augljóslega að áherslur
SSA eru að standa vörð um
umdæmissjúkrahús Austurlands svo
það geti sinnt bráða-, sérfræði- og
fæðingarþjónustu allan ársins hring
og einnig er sérstök áhersla á eflingu
frumgreininga í bráðatilvikum
með kaupum á nauðsynlegum
greiningartækjum á heilsugæslum
sem staðsettar eru við sjúkraflugvelli.
Við viljum öll standa vörð um
Fjórðungssjúkrahúsið og um leið
leggja áherslu á kaup á nauðsynlegum
greiningartækjum á heilsugæslum
staðsettum við sjúkraflugvelli eins
og bókanir SSA kveða á um. Þá
verður hægt að greina bráðatilvik
að fullu við sjúkraflugvellina
tvo sem er nauðsynlegt vegna
landfræðilegrar stærðar og dreifðrar
byggðar. Óforsvaranlegt sé að beina
greiningu á bráðatilvikum einungis á
einn stað því í bráðaerindum verður
að bregðast hratt við og fullgreina
hvort FSN geti sinnt bráðaástandinu
eða hvort niðurstaðan leiði í ljós
að flytja verði einstaklinginn strax
suður í sérhæfða bráðaþjónustu til
að bjarga lífi hans og heilsu.
Það liggur ljóst fyrir að það
sárvantar greiningartæki á
heilsugæsluna á Egilsstöðum til að
hægt sé að greina að fullu bráðatilvik
við þann sjúkraflugvöll eins og SSA
leggur áherslu á. Ef við leggjumst
á eitt og styðjum bókanir SSA um
mikilvægi þess að efla og standa
vörð um heilbrigðisþjónustu á
Austurlandi verður rödd okkar
hávær og sterk í stað þess að verða
ósamstillt suð sem nær ekki eyrum
ríkisvaldsins.
Stöndum saman og látum í okkur
heyra.
Berglind Harpa Svavarsdóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi
Aðsend grein
Sameiginleg, sterk rödd er árangursríkust fyrir allt Austurland
Atvinnulífið á Austurlandi byggir á drífandi
og öflugu starfsfólki. AFL Starfsgreina félag
er verkalýðsfélagið á Austurlandi.
www.asa.is
AFL til góðra verka!