Austurglugginn - 26.11.2020, Qupperneq 12
„Við reynum ætíð að sinna öllum
umsóknum sem berast jólasjóðnum
á hverju ári,“ segir Helga Elísabet
Guðlaugsdóttir, félagsmálastjóri
Fjarðabyggðar, um hinn árlega
jólasjóð innan sveitarfélagsins.
Sjóðurinn hefur verið virkjaður
og safnar nú inn fé fram til 8.
desember.
„Þetta gekk mjög vel hjá okkur í fyrra
og þá tókst okkur að úthluta aðstoð
til allra þeirra 56 fjölskyldna sem
sóttu um. Í ár teljum við að ástandið
hjá mörgum sé erfiðara vegna
COVID og þess sem faraldurinn
hefur valdið.“
Í máli Helgu Elísabetar kemur
fram að jólasjóðurinn er ekki á
vegum félagsþjónustu Fjarðabyggðar
heldur er Fjarðabyggð þátttakandi
í samstarfinu og er einn af
styrktaraðilum sjóðsins frá upphafi.
Sem fyrr segir tókst í fyrra að
aðstoða allar þær fjölskyldur sem
sóttu um en um fjölbreytilegan hóp
var að ræða, allt frá einstaklingum og
upp í barnmargar fjölskyldur.
„Sjóðurinn safnaði rúmlega
þremur milljónum króna í fyrra og
við vonum að í ár muni upphæðin
verða hærri þar sem þörfin virðist
vera meiri af fyrrgreindri ástæðu,“
segir Helga Elísabet.
Stofnaður fyrir 11 árum
Jólasjóður Fjarðabyggar var
stofnaður fyrir 11 árum síðan,
eða 2009, þegar hart var í ári hjá
mörgum í kjölfar hrunsins. Þá höfðu
Rauði krossinn í Fjarðabyggð og
sveitarfélagið veitt jólaaðstoð í hvort
í sínu lagi í nokkur ár. Á þeim tíma
áttu Rauði krossinn og Fjarðabyggð
sameiginlegan starfsmann, Sigríði
Herdísi Pálsdóttur, og hún átti
stóran þátt í að þetta frábæra
samstarfsverkefni varð til. Í dag
standa að jólasjóði Fjarðabyggðar,
auk Rauða krossins, Fjölskyldusvið
Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefnd
Kvenfélagsins Nönnu, Kvenfélag
Reyðarfjarðar, Kaþólska kirkjan og
Þjóðkirkjan.
Þá hefur styrkjum í sjóðinn
einnig verið safnað frá fyrirtækjum,
félagasamtökum og einstaklingum.
Hægt er að styrkja sjóðinn með
því að leggja inn á reikning 569-
14-400458 kt. 520169-4079, en
söfnunarreikningurinn er í nafni
Eskifjarðarkirkju. Allt fé sem safnast
rennur óskipt til einstaklinga sem
eru í þörf fyrir aðstoð.
Helga Elísabet segir að
jólaaðstoðin sem veitt er tekjulágum
fjölskyldum í Fjarðabyggð sé í formi
gjafakorta í matvöruverslanir.
1041 0966
UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA
www.heradsprent.is
Frá tendrun jólaljósa á jólatréi Reyðfirðinga. Mynd: Kristborg Bóel
Reyna að sinna öllum umsóknum
Dagný Sylvía Sævarsdóttir
Lokaorð
Hrósaðu þér
Á sjúkrahúsdeildinni sem að ég
vinn á erum við með mikið af
hjúkrunarfræðinemum og einn
þeirra var á dögunum í fylgd
með mér. Í lok vaktarinnar bað
ég hann um að nefna þrjú atriði
sem hann hafði gert vel yfir
daginn. Neminn stundi upp með
spurn í augum: „þrjú atriði?“ „Já“,
svaraði ég.
„Ég get það ekki, ég veit ekkert
hvað ég á að segja,“ sagði neminn
og bætti við: „Það er mikið
auðveldara að finna eitthvað sem
mistókst, eigum við ekki frekar
að tala um það svo ég geti bætt
mig?“ „Nei“ svaraði ég, „ég vil bara
heyra hvað þú gerðir vel.“ Það tók
nemann um 15 mínútur að finna
þrjú atriði sem hann hafði gert vel
og þá loksins fékk hann frí.
Þetta tók á. Honum fannst það
vandræðalegt og óþægilegt að
þurfa að hrósa sjálfum sér þrátt
fyrir að eiga það fyllilega skilið.
En þegar hann loksins gerði það,
brosti hann hringinn og nánast
valhoppaði út af deildinni.
En hvers vegna eigum við svona
erfitt með að hrósa okkur sjálfum
þegar hæfileikar okkar eru bara
ískaldar staðreyndir?
Það virðist svo mikið auðveldara,
og liggja beinast við, að rífa okkur
niður. Gott dæmi er þegar fólk
heldur matarboð og er búið að
standa sveitt í eldhúsinu í marga
klukkutíma og þegar sest er að
borðinu fara gestirnir að dásama
matinn. Þá heyrist oftar en ekki í
gestgjöfunum: „Já er þetta lítilræði
alveg ætt? Ég gleymdi nefnilega
að pipra þetta og eldaði hitt of
lengi og svo átti ég ekki nóg chili
og setti alltof mikið af myntu,
ég er eiginlega alveg vonlaus í
eldhúsinu.“ Í staðinn fyrir að
þakka bara fyrir hrósið og njóta
samverunnar og matarins.
Sumir spá ekkert í þetta. Lifa
bara í stóískri ró eins og gömlu
Grikkirnir og hvorki hrósa né
rífa sig niður. Láta hverjum degi
nægja sína þjáningu og taka bara
hlutunum eins og þeir koma. Það
er fátt sem hreyfir við þeim að ráði.
En svoleiðis eru ekki allir.
Nútíma samfélagið og
atvinnulífið gera kröfur um að
við séum tilbúin í breytingar,
meira nám og nýsköpun hvenær
sem er. Að við séum hreyfanleg,
hugmyndarík og getum aðlagast
á eldingarhraða. Gæðastuðullinn
á að vera hátt uppi á allan hátt og
við eigum að þrá að fá að þroskast
persónulega og faglega.
Þetta eru hugtökin sem við
skreytum atvinnuumsóknirnar
okkar með, hvort sem við innst
inni viljum það eða ekki. Þetta
eru bara kröfurnar í dag og til að
geta uppfyllt þessar kröfur þurfum
við stundum að vera meira en
mannleg. Þá er svo auðvelt að
mistakast og þar af leiðandi að
rífa sig niður frekar en að byggja
sig upp. Gerum sjálfum okkur
greiða og steypum góðan grunn
undir okkur, byggjum okkur upp,
við erum okkar eigin gæfusmiðir.
Hvað ert þú annars búin/n að
gera vel það sem af er deginum?
P.s. Ég er mjög góð í að útbúa
nesti til að taka með í vinnuna.
Þetta er mitt eigið ískalda mat og
því verður seint hnikað.
Jólasjóður Fjarðabyggðar
FRI