Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 28
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir,
systir og amma,
Ingibjörg Erna Sveinsson
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans 24. október.
Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju í
Garðabæ í dag fimmtudaginn 3. nóvember klukkan 15.
Helgi Ólafur Ólafsson
Þórunn Helgadóttir Arnór Viðar Baldursson
Fanney Dagmar Helgadóttir
Helgi Freyr Helgason
Tómas Agnar Tómasson
Ólafur Helgi Grímsson
systkini og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Steinar Sigurður
Guðjónsson
lést á Ljósheimum
laugardaginn 29. október.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðlaug Elfa Guðveigsdóttir
Guðveigur Þórir Steinarsson
Hafdís Bára Steinarsdóttir Bjarki Jónasson
Sigurlaug Steinunn Steinarsd. Kjartan Vignir Kjartansson
Margrét Sigríður Steinarsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær dóttir okkar, systir,
mágkona og frænka,
Mundína Ásdís
Kristinsdóttir
sjúkraþjálfari,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 31. október.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
7. nóvember klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á
Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju.
María S. Ásgrímsdóttir Kristinn Finnsson
Þorgerður Kristinsdóttir Bjarni Ragnarsson
Anna María Kristinsdóttir Friðrik Kjartansson
Halldóra Margrét, Kristinn Már,
Guðmundur Ingi, María Björk, Kjartan Ingi,
Heba og Ása
Merkisatburðir
Ragnheiður er nú þegar að vinna í handriti að fjórðu bók sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í þriðju ljóðabók sinni varpar
Ragnheiður Lárusdóttir út
pælingum sínum um hvernig það
er að vera kona – og spendýr.
arnartomas@frettabladid.is
„Innblásturinn er nú aðallega bara
mitt eigið kynferði,“ segir Ragnheiður
Lárusdóttir sem sendi nýlega frá sér sína
þriðju ljóðabók, Kona/Spendýr. „Þetta
eru pælingar sem ég er búin að vera með
alveg síðan ég var barn.“
Ragnheiður minnist þess að sem
prestsdóttir hafi hún til að mynda oft
velt fyrir sér kynjahlutverkum undir
messum föður síns.
„Þegar ég sat í kirkjunni hugsaði ég
iðulega um föður, son og heilagan anda,
og hvernig ég ætti að passa inn í það
dæmi,“ segir hún. „Ég var hvergi þarna á
blaði. Þetta er í eiginlega öllu sem maður
gerir, alveg fram eftir öllum aldri. Maður
er í rauninni frávik í samfélaginu fyrir
það að vera kona.“
Bókin Ósýnilegar konur var Ragnheiði
hugðarefni en þar rannsakar Caroline
Criado Perez rætur kynjamismunar.
„Þar kemur svo greinilega í ljós
sönnun fyrir manns eigin pælingum í
gegnum alla tíð,“ segir Ragnheiður. „Það
er hvergi reiknað með konum, hvorki í
öryggisútbúnaði bíla, í lyfjaframleiðslu,
einkennisfatnaði eða öðru. Það er mikið
af byrðum sem eru miðaðar við líkams
styrk karla, verkfæri eru miðuð við
handastærð karla og svo framvegis.“
Titill bókarinnar vísar einnig í dýrs
legri hliðar þess að vera kona.
„Þetta er líka um það að vera spendýr,
að fæða barn og mjólka,“ útskýrir hún.
„Maður verður svolítil belja á bás þegar
maður er óléttur.“
Upplifunin sem Ragnheiður lýsir í
bókinni er þó ekki öll neikvæð.
„Það er auðvitað alveg bráðskemmti
legt að vera kona, líka, og margt sem er
ákveðin forréttindi,“ segir hún. „Ljóðin
fjalla svolítið um þetta og líka þessar
gráðugu hendur sem maður hefur lent
í um ævina og þurfti að slíta og berja af
sér og var ekki talað um af viti fyrr en
fyrir áratug eða svo. Þetta var eitthvað
sem konur áttu bara að þegja yfir og bera
með sér.“
Ragnheiður segist halda að allar konur
séu með þessar pælingar.
„Það er svo spurning hvað þær gera
með þær. Þetta er bæði ýmiss konar pirr
ingur en líka sú ánægja sem fylgir því að
vera kvenkyns.“
Ragnheiður hefur áður gefið frá sér
bókina 1900 og eitthvað sem hlaut Bók
menntaverðlaun Tómasar Guðmunds
sonar og tilnefningu til Maístjörnunnar.
Síðast sendi hún frá sér bókina Glerflísa
klið sem hún orti meðal annars sem
ákveðið uppgjör við móður sína sem lést
úr alzheimer. Í dag vinnur Ragnheiður að
handriti sem hún kallar Veður í æðum.
„Ég er ekki komin mjög langt með það
en þar er ég að skoða áhrif umhverfisins
á okkur og manninn í náttúrunni,“ segir
hún. n
Gleði og gremja þess
að vera kvenkyns
Maður er í rauninni frávik
í samfélaginu fyrir það að
vera kona.
Stelpan
Er stærri og sterkari en eldri bróðirinn
mamma hennar er stærri en pabbinn
amma hennar gerir allt á heimili sínu
meðan afinn situr í stól og les dagblöð
hún heyrir talað um veikara kynið
og skilur ekki hvað átt er við
arnartomas@frettabladid.is
Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir
fjölskyldusýningunni Sögur af draugn
um Reyra sunnudaginn 6. nóvember í
Hamraborg í Hofi. Þar fylgja gestir
draugnum Reyra sem hittir löngu látin
tónskáld og kynnist þeim og tónlist
þeirra. Þar verður frumflutt lagið Akur
eyrardraugurinn eftir Daníel Þorsteins
son sem byggir á óhljóði sem var að æra
Akureyringa sumarið 2020.
„Þetta er eiginlega viðamesta verkefni
sem ég veit af hjá Tónlistarfélaginu, að
minnsta kosti í minni stjórnartíð,“ segir
Ásdís Arnardóttir, formaður félagsins.
„Fyrir utan klassísku tónlistina sem við
höfum verið að bjóða höfum við lagt
mikla áherslu á dagskrá sem höfðar til
barna. Þetta er að mér finnst stórglæsi
leg sýning og margir sem að henni koma
– barnakór, dansarar, leikarar, blásara
kvintett og fleira.“
Ásdís leggur mikið upp úr því að sýn
ingin fari sem best fram en um er að ræða
lokaverkefni hennar hjá félaginu þar sem
ný stjórn hefur tekið við taumunum.
„Öll svona stjórnarvinna er auð
vitað unnin í sjálfboðavinnu en ég verð
reyndar áfram varamaður,“ segir hún.
„Ég vildi ekki skilja við félagið nema ég
vissi að það væri gott fólk sem tæki við
enda vill maður auðvitað að það sé ein
hver sem hefur ástríðu fyrir starfinu.“
Sýningin á sunnudag hefst klukkan 17
og miðasala fer fram á mak.is og tix.is. n
Draugurinn Reyri og akureyrska óhljóðið
Ásdís Arnardóttir er formaður Tónlistar-
félags Akureyrar.
1660 Kötlugos hefst og því fylgja miklir jarðskjálftar og
jökulhlaup.
1796 John Adams sigrar Thomas Jefferson í forsetakosn-
ingum í Bandaríkjunum.
1849 Bandaríski rithöf-
undurinn Edgar
Allan Poe sést í
síðasta sinn ofur-
ölvi í skurði í Balti-
more.
1868 Ulysses S. Grant
er kjörinn forseti
Bandaríkjanna.
1903 Danakonungur
samþykkir ákvörð-
un danska þingsins
um heimastjórn á
Íslandi.
1952 Bretar sprengja
kjarnorkusprengju
og verða þriðja
kjarnorkuveldið.
1961 Skemmtistaðurinn Glaumbær er opnaður í Reykja-
vík.
1990 Þýska alþýðulýðveldið lagt niður og sameinað
Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Þjóðhátíðardagur
Þjóðverja.
1995 O.J. Simpson sýknaður af ákæru um að hafa myrt
Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR