Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 36
Það er ákveðin fagurfræði í loftinu og hún er kannski köld, en hún hýsir vel innrætt fólk og hlýleikinn kemur að innan. Högni Egilsson Eldfjörug saga prýdd fjölda mynda eftir Rán Flygenring. Framhald af metsölubókinni Bannað að eyðileggja sem sló í gegn í fyrra. NÝ BÓK EFTIR GUNNA HELGA 2 BARNABÆKUR 26. OKT. - 1. NÓV. LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is SJÓNVARP Guillermo del Toro's Cabinet of Curiosities Leikstjórn: Ýmsir Dreifing: Netflix Arnar Tómas Valgeirsson Safnþættir, þar sem hver þáttur er sjálfstæð saga, er skemmtileg týpa af sjónvarpsefni. Eins og áhorfendur hafa kynnst í gegnum Black Mirror og The Twilight Zone býður formið upp á sögur þar sem ekki er verið að teygja lopann heldur koma sér beint að efninu á skilvirkan hátt. Nú hefur mexíkóski sérvitringur­ inn Guillermo del Toro fært okkur hryllingsþættina Cabinet of Curios­ ities þar sem einvala lið átta leik­ stjóra spreytir sig á að hræða, eða að minnsta kosti vekja óhug, áhorf­ enda á sirka klukkutíma. Sögusvið og andrúmsloft þáttanna er ólíkt og fær hver leikstjóri svigrúm til að setja sinn eigin stimpil á þættina. Þættirnir eru ansi mismunandi að gæðum. Bestir eru The Viewing eftir Panos Cosmatos og The Autopsy eftir David Prior, en Outside eftir Ana Lily Amirpour og Graveyard Rats eftir Vincenzo Natali eru ansi þéttir líka. Restin er á bilinu la­la og yfir í ágætt en jafnvel þegar þætt­ irnir eru upp á sitt versta þá leiðist manni aldrei. Heilt yfir er fyrsta serían af Cab­ inet of Curiosities skemmtileg og fjölbreytt. Þrátt fyrir að þættirnir séu misgóðir, og einn eiginlega alveg hræðilegur, þá líður áhorfandanum aldrei eins og hann hafi eytt of mikl­ um tíma og er venjulega spenntur að sjá hvað kemur næst. Vonandi fáum við annan skammt fyrir næstu hrekkjavöku. n NIÐURSTAÐA: Fjölbreyttur hroll- vekjupakki sem er á heildina litið þess virði og verður vonandi fylgt eftir með annarri seríu á næstu árum. Myrkviðir mublu herra Guillermos Hvað er í mublunni, Guillermo? Á föstudag og laugardag fær mathöllin á Hafnartorgi að njóta sín í fyrsta sinn sem staf­ rænt upplifunarrými, þegar Högni Egilsson flytur lifandi tónlist við Óratorinn, gagn­ virkt stafrænt hljóð­ og mynd­ verk, sem hann segir hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. ninarichter@frettabladid.is Á Hafnartorgi við gömlu höfnina í Reykjavík, er verslunarkjarni sem inniheldur meðal annars mathöll. Yfirbragð svæðisins er nútímalegt, byggingarnar eru gráar og formin hvöss. Innandyra er þó annað uppi á teningnum, en íburðarmiklar inn­ réttingar í hlýjum viðartónum, leð­ ursófar og litaðar flísar ramma inn fjölda veitingastaða. Þar inni hefur nú risið fyrsta stafræna gallerí sinnar tegundar í Reykjavík. Fyllir svæðið skapandi orku Högni Egilsson tónlistarmaður og tónskáld er listrænn stjórnandi svæðisins. „Hafnartorg nálgaðist mig með þessa hugmynd, að fylla þetta svæði með skapandi orku, með hug­ myndir um að nýta þetta svæði á menningarlegan máta,“ segir hann. „Þá rak ég augun í þennan frá­ bæra aðbúnað sem er búið að setja upp hérna, níu skjái sem umlykja rýmið. Þetta eru tveggja metra háir LED­skjáir af bestu sort. Tæknilegur aðbúnaður hérna er til fyrirmyndar.“ Að sögn Högna er hljóðvistin í rýminu sérlega góð. „Það er hljóð­ kerfi í loftinu. Ég fylgdist með teikn­ ingum af þessu og þar var lagt til grundvallar að hljóðvist og nærvera væri góð,“ segir hann. Aðstaða fyrir 21. aldar list Högni segir hugmyndina hafa kviknað snemma, um að þarna væri fullkomin aðstaða til sýninga á 21. aldar list. „Þá tala ég um list sem vinnur með miðla 21. aldarinnar, myndlist sem er búin til með aðstoð algríma og nýjustu tækni. Þess vegna koma þessir skjáir svo sterkir inn. Í samstarfi við Karlssonwilker erum við búnir að búa til gagnvirka hljóð­ og myndupplifun sem er 30 mínútna löng og heitir Óratorinn.“ Karlssonwilker er hönnunarstofa í New York undir forystu Hjalta Karls­ sonar og Jan Wilker. Stofan hefur starfað frá aldamótum og vinnur á alþjóðlegum vettvangi með fyrir­ tækjum og menningarstofnunum af ýmsu tagi, að hönnun vörumerkja, merkinga og umbúða, auk staf­ rænnar hönnunar, hreyfihönnunar og umhverfishönnunar. Meðal við­ skiptavina Karlssonwilker má nefna Stafræn list fær samastað við höfnina Högni Egilsson tónskáld og tónlistarmaður er listrænn stjórnandi Hafnartorgs. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR MoMA, Nintendo, Samsung, Puma, Guggenheim og Rockefeller­sjóðina. Högni lýsir verkinu svo, að þarna sé hljóðleg og myndræn upplifun þar sem gestir ganga um rýmið og upp­ lifa hljóð frá mismunandi stöðum. „Öll lýsingin verður sett niður og það verður myrkur, eina lýsingin kemur frá þessum skjáum sem gefa frá sér mismunandi form og liti. Það eru kóðar sem þýða hljóðið inn í mynd og þetta er framleitt af generatívri gervigreind,“ segir hann. Ákveðin köld fagurfræði Nokkur umræða hefur skapast um yfirbragð svæðisins, og því jafnvel lýst sem vindasömu og kuldalegu. Það stendur ekki á svari hjá Högna, sem segist kjósa að sjá möguleika, fegurð og gleði hvert sem hann lítur. „Hér er vissulega vindasamt og húsin eru grá. Þau eru hönnuð í anda strúktúralisma. Það er ákveð­ in fagurfræði í loftinu og hún er kannski köld, en hún hýsir vel inn­ rætt fólk og hlýleikinn kemur að innan,“ segir hann. „Auðvitað er borgin alltaf að stækka og fólk alls staðar að safnast saman í Reykjavík. Það eru gleðitíð­ indi að hér sé ný byggð, nýr kjarni og stefna. Það er ekki hægt að pína fólk til að gera neitt, en hér er frá­ bær matur, hægt að fara í Hörpu, á höfnina og í búðir. Ég fagna því sem borgarbúi að það sé til fólk sem þorir að taka þriggja milljarða króna lán og gera eitthvað fallegt,“ segir Högni. Að virkja nýja nýmiðlasenu Hann ítrekar að sitt verkefni sé að hrista upp í hlutverki svæðisins. „Við viljum gera list, eitthvað sem fangar hugann. Ég hugsa: Hey, þið eruð búin að setja upp frábæra aðstöðu sem er þessir skjáir. Virkjum núna íslensku grasrótar audio­visual­sjón­hljóð­ senuna sem á ótrúlega mikið af ungum nýmiðla­listamönnum sem eru að vinna listina sína í tölvum. Þau setja kannski gervigreindina á netið eða eitthvað, en það hefur hingað til ekki verið til staður þar sem þessir höfundar geta sýnt verk sín.“ Högni segist að fyrra bragði ekki vilja fara út í að útskýra meiningu eða merkingu Óratórsins. „Verkið er fullkomlega abstrakt, brotið úr meiningu. Þetta er marg­skynjunar­ verk. Þú skynjar það í hljóði og ljósi. Það er enginn texti, engir hlutir sem vísa í veruleika sem við lifum í held­ ur er þetta allt bundið við framand­ legt svið, svo að við notum illskiljan­ legt mál,“ segir Högni og hlær. „Listin er til að ögra skilningi okkar á umheiminum og við erum að virkja nýsköpunina í tilfinninga­ lífi svæðisins.“ n 28 Lífið 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.