Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 16
Hitt er svo að það er ófrávíkjan- lega okkar, Sjálfstæðis- fólks, og engra annarra að ákveða hver leiðir flokkinn. Nýlega skrifaði ég grein í blaðið, „Norska leiðin í auðlindamálum“. Þar fjallaði ég um þá ákvörðun ríkis- stjórnar Noregs, að taka afnotagjald, auðlindagjald, af fiskeldisfyrirtækj- um fyrir afnot þeirra af hafinu, fjörð- um landsins, frá næstu áramótum. Nýr póll tekinn í hæðina Hér er eiginlega um nýja stefnumörk- un að ræða, nýr póll tekinn í hæðina, þar sem þau grunnverðmæti, sem fel- ast í hafi, landi og lofti, eru endanlega skilgreind sem sameign þjóðar, og, að þeir einstaklingar eða þau fyrirtæki, sem nýta sér þessa sameign, í rekst- urs- og hagnaðarskyni, skuli greiða leigu eða afnotagjald, auðlindagjald, fyrir. Þetta samræmist viðteknum við- skiptaháttum, en leiga eða greiðsla fyrir afnot er auðvitað viðtekin regla í samskiptum og viðskiptum manna. Umhverfið eyrnamerkt þjóðinni og verðlagt Þetta er líka spor í þá átt, að eyrna- merkja umhverfið og opna augu manna fyrir verðmætum þess og eignarrétti almennings á því. Hingað til hafa margir litið svo á, að nýta mætti umhverfið, sem ekki er í séreign, hér hafið, eins og enginn ætti það, eða þá, að menn eignuðu sér það sjálfir við notkun. Slíkum viðhorfum er hér endanlega hafnað. Umfang og eðli auðlindagjaldsins – blómleg byggð 150 fyrirtæki stunda fiskeldi í fjörðum Noregs. Mörg þeirra eru fremur lítil, en eru þó mikilvæg fyrir atvinnulíf síns byggðarlags. Ríkis- stjórn Noregs vill ekki raska því byggðajafnvægi, sem greinin skapar, og ákvað því að beina auðlindagjald- tökunni eingöngu að stærstu fyrir- tækjunum. Þessi fyrirtæki eru um fjórðungur greinarinnar. Auðlindagjaldið verður reiknað á hagnað fiskeldisfyrirtækis, eftir greiðslu reglulegs tekjuskatts, sem öll fyrirtæki greiða, á þann hátt, að 20% þess hreina hagnaðar, sem eftir stendur, renna til sveitarfélagsins, sem fyrirtækið starfar í, og 20% til ríkisins, þannig, að eigendur/hlut- hafar fyrirtækjanna halda 60%. Auðlindagjaldið mun skila norsk- um sveitarfélögum, þar sem starf- semin fer fram, 25 milljörðum ísl. króna 2023 og norska ríkinu sömu fjárhæð, alls 50 milljörðum. Augljóst er, að þessar viðbótar- tekjur sveitarfélaganna munu stór- auka getu þeirra til uppbyggingar innviða og bættrar þjónustu við íbúa sína; tryggja blómlegt mannlíf um dreifðar byggðir landsins. Brýnt að stjórnvöld hér bregðist við – bætt kaupsýsla Mörg norsk fiskeldisfyrirtæki eru nú þegar komin með rekstur sinn til Íslands. Hér virðast þau geta komið sér fyrir án nokkurra eða mikilla greiðslna leyfa eða gjalda. Í Noregi er það hins vegar svo, að auk auðlindagjaldsins af hagnaði, frá 1. janúar, er rekstursaðstaða til fiskeldis boðin út, rekstursleyfin seld hæstbjóðendum, og fær ríkið stórfé fyrir. Leyfi eru boðin út á tveggja ára fresti. Á dögunum voru seld ný leyfi fyrir 24.644 tonnum MTB, og fékk norska ríkið um 50 milljarða ísl. króna fyrir. 2020 fékk norska ríkið 90 milljarða fyrir þau rekstursleyfi, sem þá voru seld. Í Noregi greiða fiskeldisfyrirtæki, sem sagt, fyrst fyrir rekstursleyfi og svo bætast 40% af reksturshagnaði, sem afnota- eða auðlindagjald, við. Ef sá skilningur minn er réttur, að hér kosti rekstursleyfi til fiskeldis lítið sem ekkert, er því ekki nema von, að Norðmenn flykkist hingað. Þetta er þá um leið vísbending um ótrúlegan sofandahátt íslenzkra stjórnvalda. Þar virðist vanta nokk- uð upp á nauðsynlegt kaupsýslu- og peningavit. Er því bráðbrýnt, að íslenzk stjórnvöld átti sig á þessari stöðu og bregðist f ljótt og rétt við! Það viðbragð getur í raun aðeins verið, að samræma íslenzkar reglur um greiðslu fyrir rekstursleyfi, á grund- velli útboðs, svo og innleiðingu sama auðlindagjalds fyrir fiskeldi hér og verður í Noregi. Afnot sjávarútvegsins af fiskimiðunum Íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki hafa haft mikinn hagnað af sínum fisk- veiðum, fiskverkun og fisksölu. Var hagnaður þeirra 11 stærstu 2021 um 60 milljarðar króna, og hafa þau byggt upp eigiðfé upp á 400 milljarða króna. Búið er að þrefa og þjarka mikið um sanngjarnt auðlindagjald, sem sjávarútvegurinn skuli greiða þjóð- inni, en um það hefur engin sátt náðst. Síðasta auðlindagjaldið, sem undirritaður veit um, fyrir árið 2020, nam 4,8 milljörðum. Í heildarsamhengi rétt upp í nös á ketti. Væri norska leiðin grundvöllur fyrir þjóðarsátt? Væri ekki ráð, að fylgja fordæmi frænda okkar í Noregi og innleiða hér leigugjald, afnotagjald, af okkar sameiginlegu íslenzku fiskimiðum – auðlindagjald – sem næmi 20% af árlegum hagnaði fyrir sveitarfélög, 20% fyrir ríkið og eigendur/hlut- hafar fyrirtækjanna héldu 60%!? Með þessum hætti hefðu sveitar- félög fengið 12 milljarða fyrir árið 2021 og ríkið aðra 12 milljarða. Fyrir árið 2020 hefði auðlinda- gjaldið reyndar verið minna en helmingur af þessu, vegna þess, að þá var af koma sjávarútvegsfyrir- tækja mun lakari, en, það er ein- mitt málið; með þessum hætti væru hagsmunir útgerðar og þjóðar þeir sömu, við öll með samtengda hags- muni. Öll í sama báti. n Norska leiðin getur skapað þjóðarsátt í auðlindamálum Ole Anton Bieltvedt samfélagsrýnir og dýraverndarsinni Augljóst er, að þessar viðbótartekjur sveitar- félaganna munu stórauka getu þeirra til uppbyggingar innviða og bættrar þjónustu við íbúa sína; tryggja blómlegt mannlíf um dreifðar byggðir lands- ins. Miðað við umræðu í fjölmiðlum síðustu daga mætti ætla að svo sé ekki. Hver f jölmiðillinn á fætur öðrum hefur ritað fréttaskýringu eða fengið prófessor í viðtal til að útskýra fyrir okkur Sjálfstæðisfólki að núverandi formaður Sjálfstæð- isf lokksins eigi persónulega aðild að ríkisstjórninni og að forystu- fólk samstarfsf lokkanna muni að líkindum slíta ríkisstjórninni verði hann ekki áfram í brúnni. Þetta er fjarstæðukenndur málf lutningur. Enginn einn maður er stærri en f lokkurinn og það er f lokkurinn sem á aðild að stjórnarsamstarf- inu. Það er auðvitað ekkert sem bendir til þess að forystufólk Framsóknar og Vinstri grænna ætli raunverulega að slíta ríkis- stjórnarsamstarf inu verði nýr formaður kjörinn á landsfundi Sjálfstæðisf lokksins um helgina. Þau hafa starfað lengi og vel með Guðlaugi Þór líkt og með Bjarna Benediktssyni. Mig rekur meira að segja minni til þess að bæði Katrín og Sigurður Ingi hafi f lutt Guðlaugi glimrandi lofræður  í fimmtugs- afmæli  hans fyrir  örfáum árum. Ekki bendir það til þess að traust skorti milli þessara stjórnmála- manna. Hitt er svo að það er ófrá- víkjanlega okkar, Sjálfstæðisfólks, og engra annarra að ákveða hver leiðir f lokkinn. Stuðningsfólk ann- arra f lokka myndi svo sannarlega ekki taka því af léttvægni ef ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins væru að skipta sér af innri málefnum sam- starfsf lokka Sjálfstæðisf lokksins í ríkisstjórn. Við Sjálfstæðisfólk eigum aldrei að líða slík afskipti af starfi okkar f lokks. Þetta veit Katr- ín Jakobsdóttir og hefur gefið það skýrt til kynna að hún hafi ekki í hyggju nein afskipti af landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Formaður Sjálfstæðisflokksins á að veljast út frá þeim eiginleikum sem hann býr yfir, m.a. leiðtoga- hæfni, tengslum við grasrótina og möguleikum hans á að styrkja stöðu f lokksins. Það skiptir auð- vitað máli að forystufólk haf i hæfileika til að ná trausti og trún- aði ólíks fólks, innan sem utan þingsins, þar er Guðlaugur Þór síst veikari fyrir á svellinu en Bjarni Benediktsson. Á sunnudaginn kemur er mikil- vægt að við sjálfstæðisfólk kjósum okkur leiðtogann sem við viljum, ekki leiðtogann sem andstæðingar okkar í stjórnmálum vilja að við sættum okkur við. Við megum ekki láta óttann grípa okkur, heldur kjósa þann sem líklegastur er til að leiða f lokkinn til sigurs. Við þurf- um að kjósa Guðlaug Þór sem nýjan formann Sjálfstæðisflokksins. n Sjálfstæðisflokkurinn er aðili að ríkisstjórninni Ísak Einar Rúnarsso n landsfundar- fulltrúi í Garðabæ 16 Skoðun 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.