Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Qupperneq 11
IIÐNAÐUR OG VERZLUN----------------
jf
S Sigurjón Péfursson:
Erfiðleikarnir í dag
Islenzkur iðnaður er hugtak,
sem okkar fátæka og fámenna
þjóð hefir hin síðustu ár reynt
að lyfta úr djúpi draumsýni og
vona og fá staðizt í veruleikan-
um.
Atorkumenn hafa brotizt til
framkvæmda í ýmsum greinum
iðnaðarins hin síðustu ár. Hver
iðnreksturinn hefir risið að baki
öðrum, og ber sízt að lasta það
— ef iðnfyrirtækin verða eigi
of mörg í hverri einstakri grein,
þannig að markaðurinn verði
strax yfirfylltur. Fari svo, hlýt-
ur innlendi iðnaðurinn óhjá-
kvæmilega að bíða hnekki tvö-
faldrar samkeppni — því fyrst
verður hann að standast innlenda
keppinautinn og síðan þarf inn-
lendi iðnaðurinn, sem ein heild,
að standast erlenda samkeppni.
Það má auðveldlega segja, að
þetta sé eina heilbrigða leiðin —
samkeppnin sé sú eina, sem or-
saki vöruvöndun og betri fram-
leiðslu. En þetta þolir hinn ís-
lenzki iðnaður ekki. Eg þori að
fullyrða, að ekkert íslenzkt iðn-
fyrirtæki þolir slíka tvöfalda
samkeppni. Og hvernig ætti það
að vera, eins og öllu er fyrir
komið.
Flest hráefni verður að fá er-
lendis frá. Iðnaðarmenn einir
vita hversu erfiðlega það geng-
ur að fá nokkurn hluta hinna
allra nauðsynlegustu hráefna. Og
eins og framtíðarhorfurnar eru
nú, getur verið full ástæða fyrir
okkur að spyrja: Hversu lengi
helzt okkur á þessu ónóga skerfi,
sem við höfum nú? Fæst yfir-
höfuð nokkurt innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi fyrir hráefnum til
iðnaðar í náinni framtíð?
Þetta er eitt alvarlegasta
vanda- og vandræðamál hins
unga, bakhjarlslausa, íslenzka
iðnaðar. Því hvaða gagn er í
því, að hafa vélar og raforku —
Sogsvirkjunin er framtíðar-
grundvöllur alls iðnaðar hér í
höfuðstað landsins — ef engin
hráefni eru til að vinna úr? Og
hversu eindæma fyrirhyggjulaus
og óhæf er ekki sú aðferð stjórn-
arvaldanna, að skattleggja hrá-
efni til innlendrar framleiðslu
100—200 % meira en tilbúin var-
an er frá öðrum löndum? Dæmi
þessu til sönnunar eru ótal mörg.
------------------------------- 9
Eg skal aðeins nefna tvö, grip-
in af handahófi:
Á tilbúnar húfur er lagt 15%
innflutningsgjald — en innlegg-
ið í húfuna er tollað með 29—
67%. Vagnhjól eru skattfrjáls,
en smíðaefnið í vagnhjól er toll-
að með háum tolli.
Þannig er tollalöggjöfin
,,hlynnt“ og „velviljuð“ hinni
innlendu framleiðslu, sem hún
er fyrst og fremst gerð til að
styðja og varðveita. ■— Gjörvalt
Frarah. á bls. 14.
H.F. HAMPIÐJAN
Sími 4390. Simnefni Hampiðja
Bolnvörpugarn
Dragnótagarn (Man.)
Spyrðubönd
Fisk'bindigarn
Geeru'bindigarn
Saumgarn
Pakkagarn
Pvottasnúrur.
FLÓRA
Sími: 2039.
Austurstræti 7.
, Athugið að kaupa matjurta og blómafræið í tíma.
Höfum stærsta og fjölbreyttasta úrval, sem fáanlegt er
á landinu. — Fræpokarnir eru með íslenzkum leiðarvísi
um sáningu.
FLÓRA