Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Qupperneq 13
IÐNAÐUR OG VERZLUN
11
munandi miklar eftir árstíðum,
er heppilegast að ákveða trygg-
ingarupphæðina í samræmi við
vörumagn það sem að jafnaði er,
en taka síðan viðbótartryggingu
fyrir þann eða þá tíma ársins,
sem vörubirgðirnar eru meiri. —
.Yrði þetta í flestum tilfellum ó-
dýrara en að miða tryggingar-
upphæðina við verðmæti varanna
þegar þær eru mestar.
Eins og fyrr getur, ber að miða
vátryggingarupphæðina við inn-
kaupsverð aðkeyptra vara, ef um
eigin framleiðslu er að ræða, þá
framleiðsluverð, og ef um útflutn-
ingsvörur er að ræða, þá hvort
sem er landbúnaðar- eða sjávar-
afurðir markaðsverð á útflutn-
ingshöfn. Þó eru til undantekn-
ingar frá þessari meginreglu.
Vil eg nú lýsa vátryggingar-
skilyrðum í aðaldráttum, og er
aðallega stuðst við skilyrði þau,
er gilda hjá Sjóvátryggingarfé-
lagi íslands, en flest þau vátrygg-
ingarfélög er hér á landi starfa,
hafa sömu eða mjög líkar reglur:
Félagið bætir það tjón, sem
bruni, elding eða gassprenging
frá opinberri gasstöð veldur á
hinum vátryggðu hlutum á þeim
stað, þar sem þeir eru vátryggðir,
skv. skírteininu, svo og það tjón,
er hlýzt af slökkvitilraunum og
nauðsynlegum flutningi. (Þetta
ber að skilja svo, að bótaskyldar
séu skemmdir af vatni, svo og
brotaskemmdir. Einnig ber að
bæta fyrir þá hluti er glatast al-
veg). Loks bætir félagið vátryggð
um sanngjarnan kostnað við
björgun og geymslu á hinum
tryggðu munum.
Váiryggingin nær til alls, sem
er á vátryggingarstaðnum og
heimfærzt getur til þess vá-
tryggða, og eigi er sérsta'klega
undanskilið. — Málverk, mynd-
höggvaraverk og aðra listamuni,
gull- og silfurgripi og aðra
skrautgripi bætir félagið eigi
meiru en 500 kr. fyrir hvern ein-
stakan slíkan hlut. Fyrir bóka-
safn greiðir félagið þó í bruna-
bætur allt að 10 af hundraði af
vátryggingarupphæð innanhúss-
muna, án þess að sérstaklega hafi
verið um það samið.
Séu hinir vátryggðu hlutir
BRUNA-
TRYGGINGAR
ÁHERZLA LÖGÐ Á FLJÓT
SKAÐABÓTA UPPGJÖR.
REKSTURSSTÖÐVUNAR-
TRYGGINGAR
KYNNIÐ YÐUR ÞESSA
TEGUND TRYGGINGA.
s