Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Blaðsíða 17

Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Blaðsíða 17
IÐNAÐUR OG VERZLUN --------- Smásaga, eftir óþekkfan höfund: 15 Gráa herbergiS Ungi Blendau var á ferðalagi til Ítalíu í einkalest þýzkrar prinsessu. Kann var einkaritari hennar. Þau komu til borgar í Norður-Þýzkalandi, og þar ákvað prinsessan því að dvelja í nokkra daga. Blendau fékk leyfi til að heimsækja vin sinn Rebmann, sem var kanslari í nærliggjandi konungsriki og átti heima í nokkurra milna fjarlægð frá borginni, þar sem prinsessan og lest hennar höfðu staðnæmzt. Þeir höfðu gengið í skóla saman, og Blendau hafði ekki séð hann, síðan hann var fjórtán ára gamall, fyrir sjö árum. Hann ákvað að koma vini sínum og fjölskyldu hans á óvænt, og þar sem hann var mjög kunnugur staðháttum og landslagi, leigði hann sér hest og hélt af stað aleinn í gegn um skógana, þó það væri um miðsvetrarskeið. Veðrið var mjög fagurt um morg- uninn, en síðdegis varð himininn skýj- aður, og um kvöldið mikil snjókoma. Þetta tafði hann talsvert, og færðin var slæm, og stórar snjóflygsur fylltu augu hans og blinduðu, svo hann gat varla stýrt hestinum eftir troðn- ingunum. Hann villtist nokkrum sinn- um, og þó hann hefði gert ráð íyrir að komast til vinar síns um fimm leyt- ið, var klukkan orðin niu, þegar hann loksins kom, kaldur og uppgefinn, og hafði þá ferðast um tuttugu mílur úr leið. — Rebmann þekkti hann varla aftur, svo mjög hafði hann breytzt, frá því þeir höfðu sézt síðast. En þegar hann hafði uppgötvað, hver þessi gest- ur var, tók hann hjartanlega á móti honum. Hann sagði, að sér þætti fyrir því, að kona sín og börn hefðu farið til nágrannaborgarinnar til að vera viðstödd giftingu frænda síns, og myndu þau ekki koma aftur fyrr en að nokkrum dögum liðnum. Lét hann bera dýrindis mat fyrir vin sinn og bezta vínið úr kjallaranum, og þegar Blendau hafði drukkið þrjár flöskur af Meer- steiner og spjallað um ýmislegt það, sem drifið hafði á daga hans síðustu sjö árin, fann hann, að þreytan eftir erfiði ferðalagsins var á förum. En samt sem áður kom yfir hann einhver andleg ofþreyta, svo að hann neyddist til að slíta þessum glaðlegu samræðum og bað um leyfi til að ganga til hvílu. Rébmann kannaðist hlæjandi við, að þetta kæmi sér nú í hálfgerða klípu. Kona sín væri fjarverandi, og öll her- bergin, nema þau, sem fjölskyldan byggi í, væru auð og án allra hús- gagna. Auk þess hefði húsfreyjan ver- ið svo forsjál, að taka með sér lykl- ana að öllum hirzlum, svo að ekki væri hægt að ná í neinn sængurfatnað. Hann kallaði á Bridget, gömlu vinnu- konuna, og bar upp fyrir henni vand- ræði sín. Hún svaraði: „Það er nú þegar uppbúið rúm í gráa herberginu, því það er gestaherbergið, eins og þér vitið, herra minn. Herra Blendau getur sofið þar, ef hann kærir sig um“. „Nei“, sagði Rebmann, „Blendau vin- ur minn vill ekki dvelja næturlangt í gráa herberginu, það er ég sannfærð- ur um“. „Nú, hvers vegna ekki?“ spurði gamla konan. „í gráa herberg- inu? — ertu gertgin af göflunum? Hefirðu gleymt henni Geirþrúði?" — Rebmann sneri sér að gesti sínum, í- bygginn á svip. „Blessaður vertu, það er nú svo langt síðan það var, að ég hafði stein- gleymt því“, hrópaði Blendau. „Held- urðu, að ég sé ennþá haldinn af þess- um barnalega bjánaskap? Nei, komdu, góði, og lofaðu mér að sofa í þessu al- ræmda herbergi í nótt. Nú er ég hvorki hræddur við drauga né illa anda, og Láfið okkui lifa- Kemiskhreinsa eða pressa fatnað yðar fyrir jólin! Hjólkurfélagshúsin Sími 3599 Hafnarsfrmfi 5 Eina efnalaugin á landinu er lifar »Geríisilki« ALAFOSS-FÖT eru bezt fljótt afgreidd ■ eru saumuð nákvæmlega á hvern viðskjftamann. VERZLIÐ V I Ð > ÁLAFOSS‘ ‘t Þingholtstræti 2. Rvfk.

x

Iðnaður og verzlun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaður og verzlun
https://timarit.is/publication/1725

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.