Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 33

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 33
ABEIMDIIMG til deilda og stofnana ríkisins Þér forstjórar, fulltrúar og aðrir, sem annist innkaup fyrir ríkið eða ríkisfyrirtæki, hafið í huga að stofnun vor er til þess að annast öll innkaup fyrir ríkið og einstakar deildir þess, að einkasölum frá- töldum. Lög og reglugerð hér að lútandi hafa verið sniðgengin að nokkru leyti. Fjölmargar ríkisstofnanir hafa þó gert innkaup sín fyrir milli- göngu vora á mjög ánægjulegum og hagkvæmum grundvelli. — Sannanir eru fyrir því, að milljónir króna hafa sparazt fyrir ríkið vegna tilveru og starfa Innkaupastofnunar ríkisins. Innkaupastofnun ríkisins var stofnsett í tvennum tilgangi: í 1. lagi, að safna á eina hönd öllum innkaupaþörfum ríkis og ríkis- fyrirtækja, þannig að í krafti þess mikla vörumagns fengist allra lægsta verð á heimsmarkaðinum. í 2. lagi, að spara sömu stofnunum að hafa mann með sérstakri verzlunarþekkingu, og jafnframt spara dýrmæta starfs- krafta tæknisérfræðinga, s. s. verkfræðinga, lækna, veð- urfræðinga o. s. frv., sem víða veita opinberum stofnunum forstöðu, og hafa þurft að vasast í vöruinnkaupum jafn- hliða starfi sínu. Kynnið yður starfsemi þessarar stofnunar. Innkaupaistofiiiin ríkisiaiis. Ránargötu 18, sími 24420. S I M AB LAÐ IÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.