Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 13

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 13
svið. Hefur það orðið að samkomulagi milli þessara áhugamanna, að stofna tómstundaklúbb á vegum Símablaðsins í þessum tilgangi. Verða þar fyrst og fremst söngmenn og hljóðfæraleikarar, sem foryst- una hafa, á eftir kunna að koma málfundaklúbbar, - lestrarklúbbar, sem ræða íslenzkar bókmenntir, bókbandsklúbbar o. s. frv. Starfsemi slíkra ldúbba eða hringa tíðkast mjög innan félagssamtaka starfsfólks pósts og síma í Sviþjóð, og gefst vel. Er það síður en svo, að bún dragi á nokkurn liátt úr vöku samtakanna á sviði hagsmunamálanna. En yfir félagsstarfinu ríkir meiri menningarbragur, en minni lágkúruháttur. Símablaðið væntir þess, að allir þeir, sem eitt- hvað geta lagt af mörkum, leggi sinn skerf fram, til að koma þeim svip á félagsstarf okkar og gera þar með félagana samhentari í hinni óumflýjan- legu haráttu fyrir hættum kjörum, og þá um leið verðugri þess að fá þau. En undir því er kominn árangur þessarar við- leitni, að sem fæstir þeirra, sem leitað verður til, skerist úr leik. NÁMSKEIÐ I RÆÐUMENNSKU. Hannes Jónsson félagsmálafræðingur hefur und- anfarið haldið námskeið í ræðumennsku fyrir fé- lagsdeild símvirkja. Hefur það verið allvel sótt. Hafa farið þar fram rökræður um ýms mál, — og' jafnframt kennd fundarstjórn. Á þessu námskeiði liafa ýmsir ungir símamenn stigið fyrstu sporin upp í ræðustólinn og yfirunnið feimnina við hann. Hefur Simablaðið sannfrétt, að margir góðir ræðumenn liafi komið þar í leitir, — eftir að hin almenna ræðu- mennskufeimni var horfin. Er þess að vænta, að þessum æfingum verði hald- ið áfram innan vébanda F.I.S., og munu þátttak- endur hafa hug á því. Símablaðið mun stvðja þessa viðleitni eftir mætti. ☆ ☆ Talæfing. kjaramál opinberra starfs- manna, og hafa stjórnarvöld- in frá upphafi viðurkennt B.S.R.B. sem viðræðuaðila um kjaramál starfsmanna ríkis og bæja. Frá stofnun B.S.R.B. hefur það verið eitt af áhugamálum þess, að opinberir starfs- menn öðlist samningsrétt um kaup og kjör til jafns við aðrar launastéttir, og að a.f- numin verði lög frá 1915, ei banna verkfall opinberra starfsmanna, að viðlagðri refsingu. Segja má, að fyrsta við- fangsefni bandalagsins hafi verið að beita sér fyrir end- urskoðun laga um lífeyris- sjóði, og voru ný lifeyrissjóðs- lög sett á árinu 1943. Ákvæð- in um eftirlaun ríkisstarfs- manna voru þá orðin mjög úr- elt. Þágildandi lífeyrissjóðslög voru frá 1919. Síðan hefur af hálfu sam- takanna verið unnið að því að fá framgengt margvislegum kjarabótum til handa opinber- SÍ M AB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.