Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 22

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 22
Árni Árnason, ritsímavarð- stjóri í Vestmannaeyjum, lét af starfi sinu 1. des. s.l. eftir 40 ára símritarastarf. Snorri Lárusson, fulltrúi á aðalskrifstofunni, sagði lausri stöðu sinni frá 1. jan. s.l., og vinnur nú á skrifstofu sonar síns, Sveins lögfræðings. Allir hafa þessir félagar komið mikið við sögu F.Í.S., og oft á tíðum haft mörg trún- aðarstörf á hendi fyrir fé- lagið. Fylgja þeim því þakkir og framtíðaróskir frá starfssyst- kinum þeirra og félögum. hundrað, og eru þar á meðal flest hinna stærri sam- taka launþega og atvinnurekenda, auk margra fyrir- tækja og stofnana. Eins og áður er sagt ætlar félagið að láta hvers konar hagsýslu, hagræðingu og stjórnun til sín taka. Hefur það á stefnuskrá sinni að efla áhuga manna á þessum málum og hyggst vinna að því á sem breið- ustum grundvelli m. a. með fundahöldum, námskeið- um og útgáfustarfsemi. Hér á landi sem annars staðar liafa orðið stórstig- ar tæknilegar framfarir, sem hafa gjörbreytt atvinnu- háttum landsmanna á fáum áratugum. Fyrirtækin hafa stækkað, verkaskiptingin hefur aukizt og hefur það valdið því, að mörg ný vandamál hafa skotið upp kollinum í rekstri fyrirtækja og þörfin fyrir að gefa þessum málum gaum orðið æ brýnni. Þótt segja megi að hagræðingarstarfsemi sé ekki ný af nálinni, þá er það ekki fyrr en í lok síðustu ald- ar, sem farið er að vinna skipulega að þeim málum. Urðu Bandaríkjam. fyrstir til þess að taka upp þessa starfsemi, en í Evrópu byrjar liún 20—30 árum síðar. Mætti nefna nöfn ýmsra brautryðjenda, er gert hafa merkilegar athuganir á þessu sviði og mótað þessi fræði. Skal hér aðeins nefndur einn, handaríski verk- fræðingurinn F. W. Taylor (1856—1915), sem oft hefur verið nefndur faðir vísindalegrar stjórnunar. Á síðustu áratugum hefur þróunin orðið mjög ör á þessu sviði, þannig að nú eru þessi fræði orðin all umfangsmikil fræðigrein. I mörgum löndum eru starfandi félög hliðstæð SFÍ og hafa þau myndað með sér samtök er nefnast Comité International de l’Organisation Scientifique — skammstafað CIOS — (Alþjóðanefnd vísindalegra stjónunarmála) og liafa þau aðalaðsetur í Genf í Sviss. Tilgangur ])essara samtaka er, eins og hinna einstöku stjórnunarfélaga, að stuðla að aukinni framleiðni og þar með bættum lifskjörum. Samtökin halda öðru hvoru alþjóðaþing, þar sem fjallað er um ýmis mark- verðustu mál á sviði stjórnunar- og efnahagsmála, sem efst eru á baugi liverju sinni. SFl hefur þegar gerzt aðili að CIOS, en í samtökun- um eru nú yfir 30 lönd í öllum álfum heims. BÍ M AB LAÐ IÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.