Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 3

Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 3
Rannsóknin leiðir í ljós að það er miklu meira um hjartasjúk- dóma hjá fólki með litla menntun. Thor Aspelund, prófessor í líf- tölfræði við Há- skóla Íslands 2 5 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2 Fyrirhöfnin er svo falleg Pussy Riot á Íslandi Tímamót ➤ 36 Menning ➤ 42 Vefverslun Heklu www.hekla.is Svartir dagar í vefverslun Heklu *N em a a f h le ðs lu la us nu m Nýjar rannsóknir á vegum Hjartaverndar sýna að bein fylgni er á milli menntunar og lífslengdar fólks hér á landi. ser@frettabladid.is H E I LB R I G Ð I S M Á L Mennt u na r- stig hefur veruleg áhrif á lífslíkur Íslendinga, einkum kvenna, að því er nýjar íslenskar rannsóknir benda til. Sérstaka athygli vekur að konur sem fengið hafa litla menntun geta almennt gert ráð fyrir styttri lífs- lengd en langskólagengnar konur – og fer munurinn vaxandi. Þar munar orðið mörgum árum. „Auðvitað spyr maður af hverju þetta er svona,“ segir Thor Aspel- und, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, sem er einn þeirra sem unnu rannsóknina að tilhlutan Hjartaverndar. Rannsóknin tók til sex þúsund þátttakenda sem voru f lokkaðir eftir menntunarstigi, „og þá kom í ljós þetta bil á milli fólks,“ segir Thor, sem var gestur í nýjasta þætti af Vísindunum og okkur á Hring- braut þar sem fjallað er um fræða- störf vísindamanna innan skólans. Thor telur svarið líklega felast í lífsstíl. „Rannsóknin leiðir í ljós að það er miklu meira um hjartasjúk- dóma hjá fólki með litla menntun en hjá þeim sem hafa sótt sér meiri menntun,“ bendir Thor á – og telur að ætla megi að hinir meira mennt- uðu hafi meira svigrúm í lífinu. Rannsóknin sýni fram á mikil- vægi menntunar. „Það er eitthvað í henni sjálfri sem gerir fólk sterk- ara og hjálpar því við að viðhalda hreysti og lengja lífið fyrir vikið,“ segir Thor. Tölur Hagstofunnar staðfesti þessa þróun, en þar er fylgst með fylgni menntunar og lífslengdar. „Þetta sést líka í sambærilegum erlendum rannsóknum. Við erum ekkert öðruvísi en aðrir hvað þetta varðar,“ segir Thor og telur fulla ástæðu til að hafa áhyggjur. „Það er ekki aðeins að bilið á milli kvenna með litla menntun og langa skóla- göngu er að aukast hér á landi held- ur sýnist okkur að það stefni í sömu átt hjá körlum.“ Samfélagið þurfi að læra af niður- stöðunum. „Þetta er auðvitað ekki sanngjarnt og fyrir vikið verðum við að leggja áherslu á að auka jöfnuð í samfélaginu,“ segir Thor. n Munur á lífslíkum kvenna að aukast REYKJAVÍK JÁTNING RAGNAR JÓNASSON, KATRÍN JAKOBSDÓTTIR ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON Stíft var fundað milli aðila vinnumarkaðarins í Karphúsinu, skrifstofum ríkissáttasemjara, í gærdag. Meðal annars var rætt um gerð skammtímakjarasamninga. SJÁ SÍÐU 4 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FASTEIGNIR Meira en fimmtungi færri íbúðir í fjölbýli voru seldar á höfuðborgarsvæðinu í síðastliðnum október samanborið við mánuðinn þar á undan. Færri fjölbýli hafa ekki verið seld í einum mánuði á suð- vesturhorninu í meira en tvö ár. „Vaxtahækkanir og óvissa bíta augljóslega,“ segir Ýmir Örn Finn- bogason, yfirmaður viðskiptagrein- ingar hjá Deloitte. SJÁ SÍÐU 8 Sögulega fáar íbúðir seldar Ýmir Örn Finnbogason, yfirmaður við- skiptagreiningar hjá Deloitte

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.