Fréttablaðið - 25.11.2022, Síða 3
Rannsóknin leiðir í
ljós að það er miklu
meira um hjartasjúk-
dóma hjá fólki með
litla menntun.
Thor Aspelund,
prófessor í líf-
tölfræði við Há-
skóla Íslands
2 5 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Fyrirhöfnin er
svo falleg
Pussy Riot
á Íslandi
Tímamót ➤ 36 Menning ➤ 42
Vefverslun Heklu www.hekla.is
Svartir dagar í vefverslun Heklu
*N
em
a
a
f h
le
ðs
lu
la
us
nu
m
Nýjar rannsóknir á vegum
Hjartaverndar sýna að bein
fylgni er á milli menntunar og
lífslengdar fólks hér á landi.
ser@frettabladid.is
H E I LB R I G Ð I S M Á L Mennt u na r-
stig hefur veruleg áhrif á lífslíkur
Íslendinga, einkum kvenna, að því
er nýjar íslenskar rannsóknir benda
til. Sérstaka athygli vekur að konur
sem fengið hafa litla menntun geta
almennt gert ráð fyrir styttri lífs-
lengd en langskólagengnar konur –
og fer munurinn vaxandi. Þar
munar orðið mörgum árum.
„Auðvitað spyr maður af hverju
þetta er svona,“ segir Thor Aspel-
und, prófessor í líftölfræði við
Háskóla Íslands, sem er einn þeirra
sem unnu rannsóknina að tilhlutan
Hjartaverndar.
Rannsóknin tók til sex þúsund
þátttakenda sem voru f lokkaðir
eftir menntunarstigi, „og þá kom
í ljós þetta bil á milli fólks,“ segir
Thor, sem var gestur í nýjasta þætti
af Vísindunum og okkur á Hring-
braut þar sem fjallað er um fræða-
störf vísindamanna innan skólans.
Thor telur svarið líklega felast í
lífsstíl. „Rannsóknin leiðir í ljós að
það er miklu meira um hjartasjúk-
dóma hjá fólki með litla menntun
en hjá þeim sem hafa sótt sér meiri
menntun,“ bendir Thor á – og telur
að ætla megi að hinir meira mennt-
uðu hafi meira svigrúm í lífinu.
Rannsóknin sýni fram á mikil-
vægi menntunar. „Það er eitthvað
í henni sjálfri sem gerir fólk sterk-
ara og hjálpar því við að viðhalda
hreysti og lengja lífið fyrir vikið,“
segir Thor.
Tölur Hagstofunnar staðfesti
þessa þróun, en þar er fylgst með
fylgni menntunar og lífslengdar.
„Þetta sést líka í sambærilegum
erlendum rannsóknum. Við erum
ekkert öðruvísi en aðrir hvað þetta
varðar,“ segir Thor og telur fulla
ástæðu til að hafa áhyggjur. „Það er
ekki aðeins að bilið á milli kvenna
með litla menntun og langa skóla-
göngu er að aukast hér á landi held-
ur sýnist okkur að það stefni í sömu
átt hjá körlum.“
Samfélagið þurfi að læra af niður-
stöðunum. „Þetta er auðvitað ekki
sanngjarnt og fyrir vikið verðum
við að leggja áherslu á að auka
jöfnuð í samfélaginu,“ segir Thor. n
Munur á lífslíkum kvenna að aukast
REYKJAVÍK JÁTNING
RAGNAR JÓNASSON, KATRÍN JAKOBSDÓTTIR ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON
Stíft var fundað milli aðila vinnumarkaðarins í Karphúsinu, skrifstofum ríkissáttasemjara, í gærdag. Meðal annars var rætt um gerð skammtímakjarasamninga. SJÁ SÍÐU 4 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FASTEIGNIR Meira en fimmtungi
færri íbúðir í fjölbýli voru seldar á
höfuðborgarsvæðinu í síðastliðnum
október samanborið við mánuðinn
þar á undan. Færri fjölbýli hafa ekki
verið seld í einum mánuði á suð-
vesturhorninu í meira en tvö ár.
„Vaxtahækkanir og óvissa bíta
augljóslega,“ segir Ýmir Örn Finn-
bogason, yfirmaður viðskiptagrein-
ingar hjá Deloitte. SJÁ SÍÐU 8
Sögulega fáar
íbúðir seldar
Ýmir Örn
Finnbogason,
yfirmaður við-
skiptagreiningar
hjá Deloitte