Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 4

Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 4
Veturinn hefur verið æðislegur. Þú færð ekkert væl úr mér. Elvar Kristinn Sigurgeirsson, framkvæmda- stjóri Þotunnar í Bolungarvík SVARTUR FÖSTUDAGUR 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM ALLA HELGINA KÓÐI Í VEFVERSLUN: SVARTUR LINDESIGN.IS Heiðursgestir í Hörpu Mikið var um dýrðir í Hörpu í gærmorgun þegar úkraínski balletthópurinn Kyviv Grand Ballet tók lokaæfingu af Hnotubrjótnum eftir Tsjajkovskíj ásamt Sin- fóníuhljómsveit Íslands fyrir sérstaka heiðursgesti. Flóttafólki frá Úkraínu var boðið á sýninguna en fyrsta formlega sýningin fór fram í gærkvöldi. Ballett- hópurinn hefur verið á tónleikaferðalagi um heiminn síðan stríðið í Úkraínu hófst. SJÁ SÍÐU 44 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Rut Jónsdóttir, forstöðumaður umhverfis- og sorpmála á Akureyri Óhemju lítið hefur snjóað í vetur og lítil þörf á snjó- mokstri. Framkvæmdastjóri að vestan segist sáttur við snjóleysið. Forstöðumaður umhverfis- og sorpmála á Akureyri segir sparnað bæjar- ins töluverðan. benediktarnar@frettabladid.is VEÐUR Öfugt við  undanfarin ár hefur lítið sem ekkert snjóað á land- inu það sem af er vetri. Elvar Krist- inn Sigurgeirsson, framkvæmda- stjóri Þotunnar í Bolungarvík, segir gott að geta unnið í sínum venju- legu verkefnum. „Veturinn hefur verið æðislegur. Þú færð ekkert væl úr mér. Það er svo mikið að gera í jarðvinnu að við viljum ekki sjá snjó. Það er bara svo- leiðis,“ segir Elvar, sem hefur sinnt vetrarþjónustu fyrir Vegagerðina á Flateyrarvegi fyrir vestan. Undanfarin ár hefur Elvar þurft að takast á við mikinn snjó og hafa þrjár snjóblástursvélar sem hann á verið á fullu við að ryðja vegi, sem hafa orðið ófærir sökum snjós. Elvar segist ekki verða fyrir tekju- tapi þrátt fyrir að lítið sem ekkert sé að gera í snjómokstri. „Málið er það að hérna fyrir vestan er mikil uppbygging og það eru allir á fullu. Sú vinna sem við stundum daglega, hún leggst af þegar við förum í snjómokstur. Þannig að þetta jafnast út,“ segir Elvar og bætir við að hann sé samt sem áður alltaf klár þegar kallið kemur. „Ég er með þrjár vélar sem standa bara á keðjum núna og eru að bíða eftir snjó. En mér er alveg sama, af því að það er svo mikið að gera,“ segir Elvar. Snjóleysi á landinu vekur ánægju á landsbyggðinni Snjómoksturstæki hafa lítið verið kölluð út það sem af er vetri. Verk- takar sem ryðja vegi eru ánægðir með snjóleysið. MYND/AÐSEND Rut Jónsdóttir, forstöðumaður umhverfis- og sorpmála á Akureyri, segir að aðeins hafi verið kallaðir út verktakar til að moka snjó einu sinni í nóvember. „Við höfum lítillega þurft að hálkuverja götur og gangstéttir, þannig að kostnaðurinn við snjó- mokstur þetta haustið er nánast enginn,“ segir Rut og bætir við að hreinsun gatna hafi fengið meiri athygli þetta árið en venjulega. „Í staðinn höfum við náð að halda götunum hreinum. Það er aukinn kostnaður þar, en ekkert saman- borið við að vera með tuttugu snjó- ruðningstæki úti,“ segir Rut. Rut telur að verktakarnir sem eru kallaðir út til að moka snjóinn fagni því að sinna venjulegum verk- efnum. Sömuleiðis segir Rut að Akureyr- arbær nái að sinna þeim verkefnum sem hefðu venjulega farið á hilluna út af snjó. „Við náum að vinna í þeim áfram vegna góðra veðurskilyrða.“ Akureyringar eru þekktir fyrir heit sumur og snjómikla vetur. Rut segir samt sem áður að ekki sé hægt að spá hvort jólin verði rauð eða hvít fyrir norðan. „Viljum við ekki hvít jól og fá snjóinn?“ spyr Rut. n erlamaria@frettabladid.is MENNING Stórsöngvarinn Helgi Björns lofar alvöru sveitaballa- stemningu í kvöld, þegar hljómsveit- in SSSól stígur á stokk á stórdansleik í Kvikunni í Grindavík. Hann segist ekki muna hversu langt er síðan hljómsveitin lék síðast á sveitaballi. „Maður er kominn á þann aldur að maður getur leyft sér að segja „ég man ekki neitt“,“ segir Helgi. Tími sveitaballanna hafi verið frábær tími, sveipaður ákveðnum dýrðarljóma. „Þetta var mjög sérstakur tími og skemmtilegur. Við vorum að spila og fólk mætti með flöskuna í strengn- um, setti hana á borðið og svo var dansað út í eitt. Þetta voru alvöru „live“ tónleikar. Bara íslensk bönd að spila íslensk lög og allir með, allur aldur. Ég held að það verði þann- ig á morgun,“ segir Helgi, og heldur áfram: „Þetta er sjaldgæft tækifæri til að mæta á alvöru ball og vera í stuði. Og ef einhverjir kunna að skemmta sér, þá eru það Grindvíkingar.“ n Lofar alvöru sveitaballastemningu Hljómsveitin SSSól spilar á stórdans- leik í Kvikunni í Grindavík í kvöld. sbt@frettabladid.is MANNRÉTTINDI Mann réttinda ráð Sam einuðu þjóðanna sam þykkti í gær á lyktun Ís lands og Þýska lands um að stofnuð verði sjálf stæð og óháð rann sóknar nefnd. Á hún að safna upp lýsingum og gögnum sem nýst geta til að draga þá til á- byrgðar sem of sótt hafa frið sama mót mælendur í Íran undan farnar vikur. „Þetta eru gríðarlega sterk skila- boð til þeirra sem eru að berjast fyrir grundvallarréttindum í Íran,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra. Ályktunin var samþykkt með 25 atkvæðum gegn 6. Undan farnar vikur hafa fjöl- menn mót mæli geisað í Íran þar sem konur og stúlkur hafa krafist þess að njóta grund vallar mann- réttinda. Stjórn völd hafa tekið mót mælendum af fá dæma hörku og talið er að á fjórða hundrað hafi látið lífið síðan mót mæla hrinan hófst. n Ályktun Íslands og Þýskalands var samþykkt í gær Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utan- ríkisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 2 Fréttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.