Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 12
Fimm milljarða fram- kvæmdir eru fyrirhugaðar við höfnina í Þorlákshöfn til ársins 2026. Mest allt grjótið kemur úr námu sem varð til við landmótun lóðar fisk- eldisstöðvar. benediktboas@frettabladid.is   ÖLFUS Umfangsmik lar f ram- kvæmdir standa nú yfir í höfninni í Þorlákshöfn. Meðal helstu verk- þátta eru lenging Suðurvarargarðs um 250 metra, endurbygging Suð- urvararbryggju og endurbygging Svartaskersbryggju. Í drögum að fjárhags- og framkvæmdaáætlun, sem tekin var fyrir í framkvæmda- og hafnarnefnd, er gert ráð fyrir að heildarkostnaður til ársins 2026 verði 5,6 milljarðar króna. Þar af 1,8 milljarðar á næsta ári. „Umsvif Smyril Line í Þorláks- höfn eru mikil og hafa aukist mikið á síðustu árum. Þessar hafnarbætur eru til þess gerðar að bæta aðstöð- una fyrir  fyrirtækið. Auk þess er verið að vinna að framkvæmdum við landeldisverkefni, sem munu geta framleitt allt að 130 þúsund tonn af laxi auk f leiri stórra verk- efna í sveitarfélaginu. Við erum því að vinna að uppbyggingu nauðsyn- legra innviða eins og stækkunar hafnarinnar,“ segir Eiríkur Vignir Pálsson, formaður framkvæmda- og hafnarnefndar Ölfuss. Þær framkvæmdir sem eru þegar farnar af stað eru lenging Suður- varargarðs og endurbygging Svarta- skersbryggju. Gífurlega mikið efni þarf til að lengja Suðurvarargarð og er heildarstærð framkvæmdasvæð- isins um 4,5 hektarar. Grjótmagnið sem fer í lengingu brimvarnar- garðsins er áætlað um 300.000 rúm- metrar. Allt grjót nema það stærsta kemur úr námu sem varð til við landmótun lóðar fiskeldisstöðvar- innar Landeldis ehf. í Þorlákshöfn. „Landeldi ehf. þarf að móta lóð- ina hjá sér til að setja upp fjöldann allan af kerjum fyrir laxeldi,“ segir Eiríkur og bendir á að til þess hafi fyrirtækið þurft að taka burt 300 þúsund rúmmetra af efni. „Þar sem þetta átti að gerast á sama tíma og framkvæmdirnar við höfnina var farið í að rannsaka bergið í lóð Landeldis og kom í ljós að það hent- aði ágætlega.“ Ölfus samdi því við forsvarsmenn Landeldis um að framkvæmdaaðil- ar hafnarinnar sæju um að sprengja og moka burt efninu en Landeldi myndi borga vissa upphæð á hvern fermetra. „Verktakinn fær í staðinn að hirða grjótið. Með þessu verður framkvæmdin hagstæðari fyrir Landeldi og við fáum grjót á góðum kjörum,“ segir Eiríkur. Hann segir að þessar fram- kvæmdir séu til þess gerðar að gera Þorlákshöfn mögulegt að taka á móti 180-200 metra löngum skipum. Þá bendir hann á að fram- kvæmdirnar muni bæta öryggi notenda hafnarinnar því þær séu til þess gerðar að gera öldulag betra og auðveldara fyrir stór skip að athafna sig innan hafnarinnar. „Áætlanir gera ráð fyrir að þegar vinnu við þessar framkvæmdir er lokið þá verði höfnin þegar orðin of lítil til að mæta þörfum atvinnu- lífsins. Þess vegna erum við byrjuð að undirbúa næstu skref sem liggja í frekari stækkun hafnarinnar til norðurs,“ segir Eiríkur. n Með þessu verður framkvæmdin hag- stæðari fyrir Landeldi og við fáum grjót á góðum kjörum Eiríkur Vignir Pálsson, for- maður Fram- kvæmda- og hafnarnefndar Ölfuss Höfnin í Þorlákshöfn mun taka stakkaskiptum með framkvæmdunum. MYND/AÐSEND Stórhuga hafnarbændur í Þorlákshöfn fá ódýrt grjót kristinnpall@frettabladid.is REYKJAVÍK Á nýjasta fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram spurningu um hvort að tíma- bært væri að endurskoða útboð í tengslum við Miðborgarleikskóla og fjölskyldumiðstöð að Njálsgötu 89. Í tveimur útboðum til þessa hafi ekki tekist að ná samningum og því sé hægt að spyrja hvort breyta þurfi forsendum. „Það er  mín skoðun að það þurfi eitthvað að endur- meta verkefnið, þar sem það berst ekki tilboð sem er í takt við þessa kostnaðaráætlun heldur fer langt fram úr. Þá ber að staldra við,“ segir Marta Guðjónsdóttir, annar full- trúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu. Vorið 2020 var fyrsta skrefið tekið með því að boða til hönnw- unar- og framkvæmdasamkeppni um nýjan miðborgarleikskóla og fjölskyldumiðstöð sem ætti að rísa á  reit sem hefur iðulega verið titl- aður Njálsgötu róló. Í árslok 2020 var tilkynnt hvaða hönnun varð fyrir valinu og var farið í útboð fyrr á þessu ári. Engin tilboð bárust í verkefnið í fyrra útboðinu á Evrópska efnahags- svæðinu í nýbyggingu og lóða- hönnun leikskólans, en þegar verkefnið var boðið aftur út barst aðeins eitt tilboð. Það var upp á 2,6 milljarða sem er 1,1 milljarði yfir kostnaðaráætlun, 71,6 prósentu- stigum hærra en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. „Það eru valkostir til staðar. Hönnunin er mjög dý r, það er  kannski hugmynd að endur- hanna bygginguna eða fram- kvæma þetta í áföngum til að hægt sé að opna leikskólann sem fyrst. Það ætti að vera forgangsatriði að endurmeta þetta verkefni svo að það sé hægt að taka næsta skref. Við erum enn með hundruð barna á biðlista eftir leikskóla- plássi og það er ekki hægt að una því lengur,“ segir Marta og heldur áfram: „Ef áætlanir hefðu staðist værum við langt á veg komin og farið að styttast í að húsið yrði nothæft. Það þarf að bregðast við svona seinagangi strax.“ n Vilja endurmeta hönnun leikskóla í miðbænum svo opna megi sem fyrst Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálf- stæðisflokks í Reykjavík 10 Fréttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.