Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 22
Þeir félagar Óskar, Stefán Stefánsson og Alexander Örn Númason hoppa af
kæti í Vínarborg eftir vel lukkaða tónleika.
Bíllinn sem
bilaði í Tékk-
landi og úr varð
tólf tíma bið
eftir viðgerð.
Morgunskokk í
París fyrir tón-
leika á Back-
stage By the
Mill-staðnum.
Staðið upp og klappað eftir vel lukkaða tónleika í Búdapest. Myndir/aðsendar
Stund milli
stríða í Þýska-
landi með stóra
krús af öli.
Rokkhljómsveitin The Vintage
Caravan er komin heim til
Íslands eftir sjö vikna ferða-
lag um Evrópu. Drengirnir
spiluðu víða og lentu í alls
konar ævintýrum. Þeir blása
til tónleika í Hörpu í kvöld en
fara eftir það í langþráð frí.
benediktboas@frettabladid.is
„Við ákváðum að spara aðeins og
vera á einhvers konar camper-bíl
en fólk reyndar skildi ekkert í að við
værum að ferðast um alla Evrópu á
þessum bíl.
Það voru sjö kojur í bílnum, smá
setustofa og hress pólskur bílstjóri
með græjurnar okkar í eftirdragi. En
það fór vel um okkur og allt í góðu,“
segir Óskar Logi Ágústsson, söngv-
ari hljómsveitarinnar The Vintage
Caravan, sem er nýkomin heim eftir
sjö vikna ferðalag um Evrópu.
Hljómsveitin hitaði fyrst upp fyrir
sænsku málmsveitina Opeth í tvær
vikur en tók svo fimm vikna túr þar
sem hún var aðalnúmerið og hljóm-
sveitin Volcanova tók að sér að hita
upp. Farið var um Spán, Frakkland,
Þýskaland og flest öll lönd í Austur-
Evrópu. Meira að segja Armeníu þar
sem þeir spiluðu á Starmus-hátíð-
inni, þar sem margt af gáfaðasta fólki
heims kom saman.
„Þetta var alveg grillað en stór-
skemmtilegt,“ segir Óskar en hátíðin
snýst um geiminn og vísindi. Brian
May, gítarleikari Queen, hefur lengi
mætt á hátíðina og teymi frá NASA
heldur fyrirlestra auk Evrópsku
geimferðastofnunarinnar.
Myglaður bíll
„Skyndilega vorum við farnir að
hanga með fólki sem vinnur fyrir
NASA og fólki sem hefur farið út í
geim. Einn Nóbelsverðlaunahafi
vildi selfí með okkur. Sagðist vera
aðdáandi sem var skemmtilegt.
Svona hálf súrrealískt,“ segir Óskar.
Fleiri tónlistarmenn létu sjá sig eins
og Serj Tankian, söngvari System of
a Down, og trommuleikarinn Simon
Phillips.
Eftir að hafa fengið VIP-meðferð í
Armeníu var haldið út á vegi Evrópu
á þessum litla camper-bíl. „Margir
bílar hafa staðið síðan Covid-bylgjan
skall á. Fyrst fengum við vitlausan
Fóru í gegnum þrjá bíla á
sjö vikna tónleikaferðalagi
bíl og notuðum einn frídag til að
sækja þann rétta. En hann var eigin-
lega bara myglaður. Við urðum bara
leiðir við að fara inn í bílinn. Það var
allt skítugt og myglublettir í loft-
ræstikerfinu. Hann líka bilaði í veg-
kanti tveimur tímum síðar þannig
að það var bara fínt. Bílstjórinn fór í
að bjarga málunum og talaði við allt
og alla og snéri svo að okkur og sagði
að góðu fréttirnar væru að hjálpin
myndi koma. En hún myndi ekki
koma fyrr en eftir tólf klukkutíma,“
segir Óskar og hlær.
Eftir sjö vikur á ferðalagi er komið
að lokahnykk ársins. Stórtónleik-
um í Hörpu. Hann segir að það sé
aðeins öðruvísi að spila hér heima
en erlendis. „Það er ekkert óþægi-
legt þegar mamma eða pabbi mæta
því pabbi hefur fylgt okkur lengi.
Pabbi var alltaf að róta fyrir okkur
því við byrjum bara þrettán ára að
spila á pöbbum í borginni. Það er
alltaf voða skemmtilegt að spila fyrir
pabba.
En auðvitað er það skrýtið að
renna sér á hnjánum og hlaða í eitt-
hvert gítarsóló og litli frændi minn
sem er orðinn stór situr skyndilega
beint fyrir framan mig. Og maður
einhvern veginn bara, halló! En svo
heldur maður bara áfram,“ segir
Óskar.
Hann lofar góðri og gleðilegri sýn-
ingu í Hörpu. „Ég held að við höfum
aldrei verið betri. Við erum í frábæru
spilaformi og höfum aldrei fengið
svona góð viðbrögð og á þessum túr.
Þetta toppaði allt. Fólk var að ferðast
langt að til að koma og sjá okkur. Það
var til dæmis fólk að fljúga frá Tyrk-
landi til Amsterdam til að sjá okkur.
Nokkrir voru komnir með tattú af
hljómsveitinni og það fór allt upp
um mörg þrep.“ n
Einn Nóbelsverð-
launahafi vildi selfí
með okkur. Sagðist
vera aðdáandi.
Óskar Logi Ágústsson,
söngvari The Vintage Caravan
tónlist Fréttablaðið 25. nóvember 2022 FÖstUDAGUR
Fótóbombaðir af Eivøru
„Við vorum í Hamborg og stoppuðum fyrir utan einhverja kynlífs-
tækjaverslun alveg í banastuði. Nema að það labbaði manneskja
inn í rammann þegar ég var að taka mynd. Fótóbombaði hana. Og
við fórum bara að hlæja að því en fannst þetta grunsamlegt því
okkur fannst við kannast við manneskjuna,“ segir Óskar.
„Og þá var þetta Eivør Pálsdóttir. Við fórum að kalla á eftir henni
en hún svaraði því ekkert. Áttuðum okkur svo á því að við værum
átta karlar að kalla á eftir henni við einhverja kynlífstækjabúð. Ég
hafði samband við hana og baðst afsökunar sem hún tók vel í en ég
meina, hverjar eru líkurnar?“ bætir hann við.