Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 25
Karl Th.
Birgisson
n Í dag
Umræður um að hunza HM í fót-
bolta í Katar eru eins skiljanlegar og
þær eru fyrirsjáanlegar.
Stefna yfirvalda þar í mannrétt-
indamálum er viðurstyggileg. Hún
á rætur í trúarbrögðum, eins og
flest annað slæmt í mannlífinu
Þeim er beitt til þess að tryggja
völd og forréttindi karla, í samræmi
við öll trúarbrögð úr ranni Abra-
hams.
Hvað um hina?
Svipuð viðhorf komu upp fyrir
Ólympíuleikana í Kína 2008. Kína
er næstversta alræðisríki heims,
eins og vonandi þarf ekki að rekja.
Aftur varð slík umræða fyrir HM
í Rússlandi 2018, þar sem nýjasti
keisarinn lætur myrða þá pólitísku
andstæðinga sem hann sendir ekki
í fangabúðir. Ef hann er þá ekki
upptekinn við að leggja undir sig
nágrannaríkin.
Í báðum tilvikum var samt rétt
að taka þátt, fremur en að hunza.
Ekki bara af því að án þess hefði
Ísland ekki fengið gott silfur, gulli
betra, í handbolta og Hannes ekki
varið víti frá Messi.
Heldur af því að samskipti eru
alltaf betri en einangrun. Að því
leyti hefur Vanda Sigurgeirsdóttir
nákvæmlega rétt fyrir sér.
Þetta er ekki „what-about-ismi“
eða svo bætt eitt böl, að benda á
eitthvað annað.
Mér sýnast fréttir frá Katar styðja
þessa skoðun. Upp úr hverjum fjöl-
miðlinum af öðrum renna lýsingar
á absúrdismanum í Katar, sem
hefðu ekki verið fluttar ef enginn
hefði mætt.
Því má endilega bæta við, að
Edda Sif Ríkisútvarpsins hefur
staðið sig einkar vel, en Heimir
Hallgrímsson mætti stilla sig í ara-
bafurstablætinu.
Íþróttaþvættið
Þegar þetta er skrifað er mótið rétt
nýhafið, en það er bullandi pólitík
út um allt.
Fyrir utan fréttir af fáránleika
feðraveldisins í Katar og aðkeypta
stuðningsmenn til að fylla
stúkurnar, þá neitaði landslið Írans
að syngja þjóðsönginn til stuðnings
við réttindi kvenna þar.
Mér er hálfvegis til efs að fyrir-
liðinn þori að snúa aftur heim, eins
og hann talaði á fréttafundum.
Vonandi fær hann hæli í Hollandi,
þar sem hann spilar, en reynir
ekki að eiga við Jón Gunnarsson á
Íslandi.
Þýzka landsliðið sýndi karakter
með því að halda fyrir munn sér í
hópmyndatöku fyrir leik í fyrradag.
Að óbreyttu bendir ekkert til
þess að Katar græði neitt á íþrótta-
þvættinu, sumsé betri ímynd sem
það ætlaði að kaupa sér með því að
eyða mörg þúsund milljörðum í að
halda HM í fótbolta.
Og drepa 6.500 farandverka-
menn í leiðinni.
Þvert á móti. Ég kann ekki
arabísku, mandarín eða hindí, en
þeir miðlar sem ég les hafa lang-
flestir sömu sögu að segja: Þetta eru
Að greiða atkvæði með iðrunum
dýrustu og um leið misheppnuð-
ustu ímyndarkaup sögunnar.
Hvers vegna? Vegna þess að fjöl-
miðlar eru á staðnum og segja frá
því innihaldsleysi sem blasir við.
Og mótið er rétt að byrja.
Dyggðaskreytingin
Samfélagsmiðlar bjóða upp alveg
sérstakan vinkil á málinu.
Hann er frá þeim sem segjast
ekki ætla að horfa á beztu fót-
boltamenn og -þjóðir heims spila
– af því að mótið er í Katar.
Þeim sem segjast ætla að slökkva
á sjónvarpinu í mótmælaskyni.
Sumir hæðast að þessu fólki fyrir
að básúna opinberlega hversu það
sé réttsýnt og vel innréttað.
Eins og margt annað í lífinu er
þetta bæði rétt og ósanngjarnt.
Eflaust reyna margir að prýða
sig upplognum mannkostum
með slíkum yfirlýsingum, en við
hljótum að vilja skilja hina, sem er
raunverulega og réttilega misboðið.
Ef ekki vegna Katar, þá hyskisins
sem virðist stýra FIFA.
Athöfnin sjálf, eða athafnaleysið,
að kveikja ekki eða slökkva á sjón-
varpinu, er samt merkingarlaus.
Hún kann að láta einhverjum
líða betur í iðrunum yfir því að hafa
gert eitthvað rétt þann daginn, en
út fyrir ristilinn nær hún ekki.
Það breytir engu um mannrétt-
indi í Katar hvort við horfum á fót-
boltaleiki þar eða ekki. Það breytir
heldur engu um að leikirnir verða
sýndir, og auglýsingar eru fyrir
löngu framleiddar og seldar.
Ef áhrifin eru einhver, sem er
mjög vafasamt, væru þau helzt að
draga ofurlítið úr tekjum fjöl-
miðlanna, sem segja okkur einmitt
núna fréttir af þessu misheppnaða
peningabruðli í Katar.
Við hin dyggðum prýddu
mættum hafa það í huga.
Sjálfur hyggst ég horfa á sem
flesta leiki og halda með Bandaríkj-
unum og Íran. Eins og alltaf. n
Þetta eru dýrustu og
um leið misheppnuð-
ustu ímyndarkaup
sögunnar.
Fylgstu með
frábærum tilboðum
á S22 línunni
fyrir jólin.
samsungmobile.is
Jólagjöfin í ár
Á myndinni eru Erling Haaland sem líklega er öflugasti framherji í knattspyrnu karla í dag og
Galaxy S22 Ultra sem líklega er öflugasti farsími sem hægt er að fá fyrir jólin 2022.
Erling skilur norsku en S22 línan skilur íslensku.
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 2022 Skoðun 23FRÉTTABLAÐIÐ