Fréttablaðið - 25.11.2022, Síða 30

Fréttablaðið - 25.11.2022, Síða 30
Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fyr irv ar a. Skíðaferða Fjölbrey úrval 595 1000 www.heimsferdir.is Flug & hótel frá 124.250 Frábært verð! Í JANÚAR & FEBRÚAR Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram í dag, föstudaginn 25. nóvember kl. 17.00 á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu of beldi. Dagur- inn markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu of beldi sem UN Women á Íslandi er í forsvari fyrir ásamt fjölda annarra öflugra félaga- samtaka hér á landi. Af þessu tilefni verður Harpa lýst upp í appelsínu- gulum lit. Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er Konur, líf, frelsi eða Zan, Zendegi, Azadi sem, eins og þekkt er orðið, er slagorð mótmælanna sem hafa staðið yfir í Íran í tæpa 3 mánuði. Í ár beinir 16 daga átakið gegn kynbundu of beldi kastljósinu að kvenmorðum (e. Femicide) um allan heim. En samkvæmt tölum frá UN Women voru 81.000 konur um allan heim myrtar árið 2020. 58% þeirra voru myrtar af maka eða öðrum nákomnum aðila. Það samsvarar því að ein kona sé myrt á heimili sínu á 11 mínútna fresti. Kvennmorð er hatursglæpur sem beinist að konum og stúlkum fyrir það eitt að vera kvenkyns og eru því gróf brot á grunnmannréttindum kvenna og rétti þeirra til lífs, frelsis og öryggis. Áratuga barátta fyrir kvenfrelsi gufar upp Við höfum vafalaust flest fylgst agn- dofa með baráttuþreki og hugrekki íranskra kvenna á síðastliðnum mánuðum. Sem berjast nú fyrir kvenréttindum, lífi sínu og frelsi. Í tilfelli landa á borð við Afganistan og Íran, eru kvenmorð gjarnan framin af ógnarstjórn ríkjanna. Meðal annars fyrir brot á harð- neskjulegum lögum sem takmarka verulega mannréttindi þeirra og frelsi. Í síðustu viku bárust fregnir af því að Talibanastjórnin hefði skipað dómstólum í landinu að koma á full- um sjaríalögum þar í landi. Ljóst er að slík breyting er gífurlega hættu- legt pólitískt tæki til að sporna gegn útbreiðslu á lýðræði og mannrétt- indum. Með þessu sýna talíbanar að þeim er fúlasta alvara með að afnema að fullu þau réttindi sem konum í Afganistan áskotnuðust á síðustu áratugum. Þær framfarir sem höfðu orðið hverfa með einu pennastriki. Ári eftir valdatöku Talibana í Afganistan geta konur unnið að takmörkuðu leyti og þurfa að vera í fylgd karlmanna ef þær þurfa að ferðast langar vegalengdir, aðgengi þeirra að samfélaginu hefur í raun og veru verið þrengt gífurlega. Þær mega til að mynda ekki lengur koma í líkamsræktarstöðvar, bað- hús eða almenningsgarða og er skylt að hylja höfuð með slæðum þegar þær fara úr húsi. Jina (Masha) Amini – nafnið sem ekki gleymist Í Íran hafa staðið yfir mótmæli til stuðnings Jina (Masha) Amini, sem lét lífið í haldi lögreglu um miðjan september eftir að hafa verið hand- tekin af velsæmislögreglu í Teheran. Hún var aðeins 22 ára þegar hún var myrt en nafn hennar mun aldr- ei gleymast. Mótmælin hafa verið leidd af hugrökkum konum sem gera sér grein fyrir þeirri hættu sem þær eru í, fyrir það eitt að tjá sig og óhlýðnast yfirvöldum. En velja að gera það samt. Á hverjum degi f lykkist fólk út á götur og stræti og hrópar slagorð gegn kúgunarstjórn Íran. Mótmælendur í Íran hafa verið dæmdir til dauða fyrir vikið og er ríkur vilji hjá írönskum þing- mönnum að refsa mótmælendum harðlega. Óttast mannréttindasam- tök víða um heim að fjöldaaftökur gætu verið yfirvofandi í landinu. Með því að taka þátt í Ljósa- göngunni í ár, sýnum við táknræna samstöðu með þeim hugrökku konum sem leggja líf sitt í hættu á hverjum degi með vonarneista um betri og frjálsari heim þar sem mannréttindi þeirra eru virt. Ljós- berar sem leiða gönguna í ár eru Íranir og Afganir sem búsettir eru á Íslandi. Þau eiga það sammerkt að hafa notað rödd sína hérlendis til að vekja athygli á stöðu mála í heimalöndum sínum og berjast úr fjarlægð með fólkinu sínu sem trúir og berst fyrir frjálslyndari gildum en þeim sem ríkjandi eru í heimalöndum þeirra. Við hvetjum ykkur öll til að gera slíkt hið sama og mæta á Arnarhól í dag klukkan 17.00 og sýna þannig stuðning við baráttu þeirra og að mannréttindi allra séu virt alls staðar. n Konur – líf – frelsi Stella Samúelsdóttir framkvæmda- stýra UN Women á Íslandi Tíu ár eru frá því að Carbfix hóf tilraunir með að binda CO2 í jarð- lögum á Hellisheiði, eða á einföldu máli: að breyta því í stein neðan- jarðar. Síðan þá höfum við bundið yfir 80 þúsund tonn af CO2 úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar. Frá því í fyrra höfum við einnig bundið CO2 sem svissneska fyrirtækið Climeworks fangar úr andrúms- loftinu. Aðferð okkar til bindingar er umhverfisvæn, varanleg og ein sú hagkvæmasta sem þekkist. Við vinnum nú að því í samstarfi við Orku náttúrunnar að þrefalda bindingu á CO2 útblæstri Hellis- heiðarvirkjunar. Til þess fengum við um 600 milljóna króna styrk frá Nýsköpunarsjóði Evrópu, en hann er fjármagnaður með tekjum af sölu losunarkvóta í samevrópska ETS-kerfinu til iðnfyrirtækja sem valda næstum helmingi af allri losun álfunnar. Einnig er í undir- búningi að binda útblástur frá Nesjavöllum í samvinnu við ON og Þeistareykjavirkjun í samvinnu við Landsvirkjun. Stærsta loftslagsverkefnið Til viðbótar eigum við í samstarfi við stóriðjuna á Íslandi um að leita leiða til að binda útblástur frá fyrir- tækjum þeirra. Í Straumsvík ætlar Carbfix að reisa stóra móttöku- og förgunarstöð fyrir CO2, Coda Terminal, með bindigetu upp á 3 milljónir tonna á ári. Það er um 50% meira af CO2 en allur iðnaður á Íslandi losar samanlagt. Því mun bróðurpartur starfseminnar felast í að taka á móti CO2 frá iðnaði í Evrópu, en Rio Tinto mun einnig freista þess að fanga útblástur frá álverinu sem Coda Terminal gæti bundið. Annar íslenskur iðnaður, meðal annars á svæðinu, gæti auð- vitað gert hið sama. Þess vegna Ísland Sum spyrja hvers vegna binda ætti CO2 frá öðrum löndum á Íslandi og finnst jafnvel að það sé okkur óviðkomandi. Svörin við þessu eru margvísleg og höfða ábyggilega missterkt til fólks eftir gildismati og forgangsröðun hvers og eins. Í fyrsta lagi eru hér kjöraðstæður hvað varðar jarðlög og f leira til að nýta íslenskt hugvit til stórfelldrar bindingar á magni sem er langt umfram innanlandsframboð á CO2. Hvað varðar samhengið við skuldbindingar Íslands í loftslags- málum þá eru þær að verulegu leyti samevrópskar skuldbindingar, ekki síst hvað varðar ETS-kerfið, þann- ig að okkar markmið eru hluti af markmiðum Evrópu í stærra sam- hengi. Það er einmitt ein af for- sendum þess að Nýsköpunarsjóður Evrópu, sem er fjármagnaður af ETS-kerfinu eins og áður segir, ákvað að styrkja Coda Terminal verkefnið um 16 milljarða króna. Efnahagslegur ávinningur er verulegur: tugmilljarða uppbygg- ing innviða og hugverkaiðnaðar og síðan störf, gjaldeyristekjur, hag- vöxtur og skatttekjur. Ísland markar sér verðmæta sérstöðu á alþjóðavettvangi með því að vera í fararbroddi grænnar nýsköpunar í þágu einnar stærstu áskorunar mannkyns. Og vandinn stendur okkur nærri því norður- heimskautið hlýnar hraðar en heimurinn að meðaltali, með til- heyrandi áhrifum á lífríki og nátt- úru. Þá má auðvitað segja að loftslags- verkefni af þessari stærðargráðu sé í eðli sínu fagnaðarefni nema í ljós komi að það hafi einhver óþekkt neikvæð umhverfisáhrif í för með sér, sem ekkert bendir til. (Þess má geta að sjónræn áhrif af verkefninu verða tiltölulega lítil). Loks er í siðferðilegu samhengi ekki fráleitt að horfa á kolefnis- spor Íslands frá neyslusjónarmiði, fremur en framleiðslusjónarmiði eins og gert er í hefðbundnu lofts- lagsbókhaldi. Framleiðslan á því gífurlega magni af vörum sem við f lytjum inn frá útlöndum er hvergi skráð á ábyrgð Íslands, þó að vör- urnar séu sannarlega framleiddar í okkar þágu og fyrir okkur. Þessa staðreynd má hafa í huga þegar við veltum fyrir okkur hvað við getum gert til að stemma stigu við lofts- lagsvandanum. Byrjað á heimavelli Fræðileg bindigeta jarðlaga á Íslandi með Carbfix-aðferðinni skiptir þús- undum milljörðum tonna af CO2. Ekki stendur hins vegar til að nýta nema agnarlítið brot af því. Hvorki Carbfix né Ísland munu leysa lofts- lagsvanda heimsins. En við viljum gera eins mikið og við mögulega getum, fyrst hér á Íslandi, á heima- vellinum sem við þekkjum best, og síðan með því að hasla Carbfix- tækninni völl í öðrum löndum, þar sem er svo sannarlega mikill áhugi á henni. Við Íslendingar njótum góðs af alls kyns erlendum tækni- lausnum í okkar loftslagsaðgerðum, en við höfum líka margt að bjóða öðrum. Það er vissulega klisja að segja að við séum öll í sama báti. Og nún- ingurinn á milli heimshluta sem einkenndi nýafstaðna loftslagsráð- stefnu S.Þ. sýnir að við erum það ekki að öllu leyti. En gróðurhúsa- lofttegundir í andrúmsloftinu virða engin landamæri og því eru það á endanum sameiginlegir hagsmunir allra að það takist að hemja hlýnun þess. Samstarf þvert á landamæri er algjör forsenda þess. Markmiðið um að takmarka hlýnun við 1,5 gráður hangir nú á bláþræði og mun ekki nást án þess að lagst verði á árarnar með öllum raunhæfum lausnum. Áframhaldandi þróun og innleið- ing Carbfix-aðferðarinnar er eitt af tækifærum Íslands til að vera þar í fararbroddi. n Carbfix í stærra samhengi Ég hef aldrei verið á f lótta. Ég skil hins vegar vel hvað það hefur mikil áhrif þegar fótunum er kippt undan manni og framtíð fjölskyld- unnar er í uppnámi. Forfeður mínir f lúðu vosbúð, fátækt og takmörkuð tækifæri á Ísland yfir til Kanada. Ég á fjölskyldu frá Ekvador sem hefur f lúið heimalandið yfir til Bandaríkjanna af sömu ástæðu og margir f lýja nú Venesúela. Á sitt- hvorri öldinni f lúðu þessir hópar til landa sem tóku þeim með opnum faðmi, sköpuðu þeim tækifæri og gáfu þeim nýtt tungumál. Flóttafólk er frábært fólk, rétt eins og við Hér búum við á þessari friðsælu og fallegu eyju, með nóg af endur- nýjanlegri orku til að halda á okkur hita og lýsa okkur leið. Strjálbýlið hefur reynst okkur áskorun og áratuga umræða hefur verið um byggðaþróun. Nú stöndum við frammi fyrir nýjum veruleika, stríði í Evrópu og fjöldi f lótta- fólks sem vill koma til Íslands og taka hér þátt í samfélaginu aldrei verið f leiri. Flóttafólk er upp til hópa alveg frábært fólk, fólk sem hefur bjargir og getu til að fara af stað. Fólk sem treystir sér til að aðlagast nýjum tungumálum, siðum og venjum. Þessu fólki eigum við að taka opnum örmum því í þeirra löngun til að verða partur af íslenskri þjóð felst okkar fram- tíðarauður. Stefnulaus þjóð Í öllu þessu ölduróti dregst skýrt fram að við erum ekki með stefnu í innf lytjendamálum. Við búum okkur til lög og reglur sem við þrefum stöðugt um en erum ekki með grundvallarstefnu sem lýsir okkur leið. Nú er sannarlega komin tími til að vinna langtímastefnu um hvernig íslensk þjóð ætlar að stækka og þróast á næstu ára- tugum. Stefnu sem þjóðin kemur að því að semja. Stefnuvinnu þar sem við horfumst í augu við ólík sjónarmið sem með okkur bærast, stefnu sem byggir á sannreyndum gögnum, rannsóknum og lærdómi frá nágrannalöndum okkar til vesturs og austurs. Reykjavík opnar faðminn Reykjavíkurborg mun nú í sam- starfi við ríkið taka á móti allt að 1.500 f lóttamönnum fram til desember 2023. Markmiðið er að tryggja f lóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur. Við viljum tryggja nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og að tækifæri séu til staðar til þátttöku í samfélaginu. Við í Reykjavík sjáum það alla daga hvað fjölbreytileiki og mannrétt- indi hafa mikið að segja við þróun borgar og þess vegna opnum við faðminn. n Opnum faðminn Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgar- stjórnar og oddviti Viðreisnar Flóttafólk er fólk sem treystir sér til að aðlagast nýjum tungu- málum, siðum og venjum. Þessu fólki eigum við að taka opnum örmum. Edda Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix Ísland markar sér verðmæta sérstöðu á alþjóðavettvangi með því að vera í fararbroddi grænnar nýsköpunar í þágu einnar stærstu áskor- unar mannkyns. 28 Skoðun 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.