Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 32
Knattspyrnuheimur
inn er breyttur frá því
Fenway Sports Group
keypti Liverpool. Lík
legt er að aðrir eig
endur leiði félagið inn í
nýja tíma.
Tvö stærstu knattspyrnufélög
Englands, Manchester United
og Liverpool, eru til sölu.
Þessi stórtíðindi bárust með
skömmu millibili á dögunum.
Framtíðin er óljós og stuðn-
ingsmenn beggja félaga bíða
óþreyjufullir eftir tíðindum af
framtíð þeirra.
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Fyrr í vikunni var greint
frá því að eigendur enska knatt-
spyrnufélagsins Manchester United,
Glazer-fjölskyldan, væru tilbúnir
að hlusta á tilboð í félagið. Fóru
þeir þar með í f lokk með eigendum
Liverpool, Fenway Sports Group,
sem einnig hefur verið sett á sölu.
Fréttablaðið fékk Jóhann Má
Helgason, knattspyrnusérfræðing
sem þekkir vel til viðskiptahliðar
íþróttarinnar, til að fara yfir hvað
tíðindin þýða fyrir félögin og hvað
framtíðin gæti borið í skauti sér.
Jóhann bendir á að eigendur
Liverpool, með John W. Henry í
fararbroddi, hafi keypt félagið er
það var í miklum fjárhagskröggum
fyrir tólf árum síðan. Þeir hafi búist
við því að reglur í kringum kaup og
sölu á leikmönnum (Financial Fair
Play) yrðu strangari með tímanum
og að refsingar fyrir að brjóta þær
yrðu harðari. Eigendurnir voru til
að mynda verulega óánægðir þegar
CAS áfrýjunardómstóllinn ógilti
dóm evrópska knattspyrnusam-
bandsins um að Manchester City
færi í bann frá Meistaradeild Evrópu
fyrir sín brot á reglunum.
„Sú þróun sem er að verða á fót-
boltanum, að lið eins og
Newcastle verði
o f u r -
rík undir eignarhaldi sádí-arabíska
ríkisins, gerir það að verkum að
bardaginn verður alltaf flóknari og
erfiðari fyrir lið eins og Liverpool,
sem vill reka félagið réttu megin
við núllið og dæla ekki peningum í
liðið,“ segir Jóhann.
Hann telur að kaup Bandaríkja-
mannsins Todd Boehly á Chelsea í
sumar, hafi einnig haft áhrif.
„Þar kepptust fjárfestingahópar
um að kaupa liðið og fékk Raine-
bankinn, sem annaðist söluna á
Chelsea, yfir 150 fyrirspurnir og yfir
fimmtán fullgild tilboð. Áhuginn á
svona fjárfestingu var því mikill.
Liverpool er þekktara vörumerki
en Chelsea, þeir eru búnir að fjár-
festa töluvert í Anfield og geta því
hugsanlega fengið tilboð upp á
fjóra milljarða punda, sem er rúm-
lega þrettánföldun á upprunalegu
fjárfestingunni – þeir myndu ganga
afar sáttir frá borði.“
Engin ástríða í eignarhaldinu
Staðan er aðeins öðruvísi hjá Uni-
ted. Áhuginn ætti þó að verða mikill
á félaginu. Glazer-fjölskyldan keypti
félagið á tæplega 800 milljónir
punda árið 2005. Um leið skuldsetti
hún félagið þó verulega.
„Hún setti ekkert fjármagn inn í
félagið, sem hefur farið óskaplega
í taugarnar á stuðningsmönnum
United. Það þarf að hafa í huga að
félagið er eitt þekktasta vörumerki
heims og eitt stærsta knattspyrnu-
félag heims, samkvæmt öllum
f járhagsleg um mælik vörðum.
Glazer-fjölskyldan vill fá um fimm
milljarða punda, eitthvað sem ég tel
ekki ólíklegt að muni eiga sér stað.“
Eins og Jóhann segir er mikil
óánægja á meðal stuðningsmanna
með eigendur United.
„Stuðningsmenn United eru
búnir að vera ósáttir við Glazer-
fjölskylduna því hún hefur ekkert
fjárfest í klúbbnum, en greiðir sér
reglulega út arð. Hvorki Carring-
ton-æfingasvæðið né Old Trafford
hafa fengið neina upplyftingu
– félagið er allt að staðna. Glazer-
fjölskyldan skiptir sér líka ekkert af
United, það er tilfinnanlega engin
ástríða í þessu eignarhaldi þeirra á
klúbbnum – þau líta bara á félagið
sem gróðamaskínu.“
Viðhorf stuðningsmanna Liver-
pool til sinna eigenda er öllu
jákvæðara.
„Þeir hafa gert vel fyrir Liverpool
og reynt eftir fremsta megni að
styðja við Jürgen Klopp. En það kom
samt í ljós pirringur núna í sumar
þegar félagið gat ekki keypt miðju-
mann, þrátt fyrir að það hafi blasað
við allra augum að slík fjárfesting
væri nauðsynleg.“
Jóhann var spurður út í það
hverja hann telji líklegasta til að
kaupa United.
„Samkvæmt fréttum mun Sir Jim
Ratcliffe reyna að kaupa félagið.
Það mun gleðja stuðningsmenn-
ina mikið, því þegar hann reyndi
að kaupa Chelsea í vor þá gaf hann
það út að hann hefði engan áhuga á
að græða peninga í kringum United.
Hann mun þvert á móti setja pen-
inga inn í félagið og örugglega lofa
endurbótum á Old Trafford. Hann
mun samt pottþétt fá samkeppni og
það er hávær orðrómur um að við-
skiptajöfur frá Dúbaí ætli einnig að
gera tilboð í félagið.“
Jóhann segir öllu erfiðara að spá
fyrir um hver kaupir Liverpool.
„Mér þætti ekki ólíklegt að þar
kæmu inn samsettir viðskipta-
hópar, ekki ósvipað og var í til-
felli Chelsea, þar sem Todd Boehly
og Clearlake Capital keyptu liðið
saman,“ segir Jóhann Már Helgason
knattspyrnusérfræðingur. n
Turnarnir tveir til söluÁ mun betri stað nú
Fenway Sports Group keypti
Liverpool árið 2010, en þar
hefur John W. Henry verið
fremstur í flokki. Liðið var í
fjárhagskröggum á þeim tíma.
Undanfarin ár hefur liðið náð
frábærum árangri. Það varð
Englandsmeistari árið 2020
og Evrópumeistari árið áður.
Þá sigraði Liverpool báðar
bikarkeppnirnar á Englandi
á síðustu leiktíð. Nú eru hins
vegar breyttir tímar fram
undan í knattspyrnuheim-
inum og FSG leitast við að
selja Liverpool.
Aldrei verið vinsæl
Glazer-fjölskyldan, með
Avram Glazer í fararbroddi,
hefur átt Manchester United
síðan 2005. Strax frá upphafi
komu fram gagnrýnisraddir
í garð Bandaríkjamannanna.
Eigendurnir hafa tekið mun
hærri fjárhæðir út úr klúbbn-
um heldur en þeir hafa fjár-
fest í honum á tíma sínum þar.
Þetta hafa stuðningsmenn
alla tíð verið ósáttir við. Þrátt
fyrir það sem á hefur gengið
hefur United fimm sinnum
orðið Englandsmeistari undir
eignarhaldi Glazer-fjölskyld-
unnar. Þá varð liðið Evrópu-
meistari 2008, svo eitthvað
sé nefnt.
Stuðningsmenn Man
chester United eru
sáttir við að félagið
hafi verið sett á sölu.
Óánægja hefur verið
með Glazerfjölskyld
una um langa hríð.
30 Íþróttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR