Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 36
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Kertasníkir og Hurðaskellir eru
komnir í hátíðarskap og verða í
banastuði í Kópavogi á morgun,
laugardag. „Við erum mjög pepp-
aðir fyrir laugardeginum,“ segir
Hurðaskellir, hress í bragði. „Við
höfum nokkrum sinnum áður
verið á aðventuhátíð í Kópavogi,
síðast árið 2019 og það var alveg
meiri háttar að hitta alla krakkana
og syngja og dansa með þeim.“
Kertasníkir tekur undir með
bróður sínum og bætir við að þeir
séu fegnir að núna megi halda
aðventuhátíð. „Undanfarin jól
hafa verið óttalega skrýtin hjá
okkur jólasveinunum út af þessari
glötuðu veiru. Engin jólaböll og
voða lítið um að vera. Við vorum
alltaf bara úti að labba með jóla-
köttinn og fórum svo reyndar
allir í bað í fyrra. Það gerðum við
því Grýla, mamma okkar, er með
hreinlætisæði og pínir okkur í bað
á fimmtán ára fresti.“
Hlakka til að hitta alla krakkana
og syngja með Sölku Sól
Þeir Hurðaskellir og Kertasníkir
mæta því tandurhreinir og fínir í
Kópavoginn klukkan 16 á laugar-
daginn; taka lagið með Sölku Sól
og dansa í kringum jólatréð með
nýtendruð ljósin. Skólahljómsveit
Kópavogs og Kór Hörðuvallaskóla
munu líka flytja tónlist. „Þetta
verður alveg geggjað og við vonum
að sem flestir krakkar mæti,“ segja
þeir bræður einum rómi.
Aðventuskúlptúrar og
pólskt jólaföndur
Frá klukkan 13 á laugardaginn
verður boðið upp á jóladagskrá
fyrir alla fjölskylduna í menn-
ingarhúsunum. Hægt verður að
móta sinn eigin aðventuskúlptúr
með listamannateyminu Gorklín
á Náttúrufræðistofu, búa til pólskt
jólaföndur í Gerðarsafni og eiga
notalega stund yfir jólaperli á
Bókasafninu.
Sögustundir helgaðar hinum
ógurlega jólaketti fara fram
nokkrum sinnum yfir daginn og
kórar og tónlistarhópar koma fram
og flytja aðventutóna. Í fordyri
Salarins verður hægt að kaupa jóla-
gjafir og aðventukrásir og í Gerðar-
safni er hægt að njóta sýninganna
Geómetría og För eftir ferð, en þar
verður einnig opið á Reykjavík
Roasters og í safnbúðinni.
Á Aðventuhátíð verður enn
fremur hægt að taka þátt í listaverki
í mótun, en fyrir Vetrarhátíð 2023
mun Þóranna Björnsdóttir gera
verk sem varpað verður á Kópa-
vogskirkju. Verkið byggir Þóranna á
myndbandsupptökum af augna-
ráði og munu gestir
á Aðventuhátíð
geta ljáð verkinu
auga en upp-
tökur fara fram
inn af fordyri
Salarins.
Jólalegur
Kópavogur
Á laugardaginn
verður aðventu-
dagskrá víðar í Kópavogi
en í menningarhúsunum, má þar
nefna að í Auðbrekku 6 munu
listamenn opna vinnustofur
sínar og í Guðmundarlundi mun
Leikhópurinn Lotta bjóða upp á
Ævintýri í Jólaskógi en sýningar á
þessu bráðskemmtilega jólaævin-
týri munu standa yfir út desemb-
er. Í Gjábakka, félagsheimili eldri
borgara, verður hinn árvissi laufa-
brauðsdagur, en þar munu einnig
koma fram tónlistarhópar og
f lytja jólatónlist. Fram undan eru
svo fjölmargir aðventutónleikar
og jólalegir viðburðir um allan
Kópavog, en hægt er að kynna
sér það sem fram undan er inni á
vefnum meko.is. n
Salka Sól verður kynnir á Aðventuhátíð í Kópavogi á morgun,
laugardag, og tekur lagið með Hurðaskelli og Kertasníki.
Flautukór úr Tónlistarskólanum í Kópavogi kemur fram á Aðventuhátíð.
Ljósin verða tendruð á jólatré Kópavogsbæjar en við það tilefni munu jóla-
sveinar stíga á stokk og taka lagið með Sölku Sól og dansa kringum jólatréð.
Skólahljómsveit Kópavogs leikur lauflétt jólalög.
Kvennakór Kópavogs tekur nokkur vel valin jólalög. Fjölskyldan getur átt notalega stund yfir jólaperli á Bókasafni Kópavogs.
Dagskrá Aðventuhátíðar frá klukkan 13- 17
Bókasafn Kópavogs og Náttúru-
fræðistofa Kópavogs
Gjafapoka- og merkimiðasmiðja
Jólaperl og jólagjafainnpökkun
Aðventuskúlptúrar
Sögu- og fróðleiksstundir helg-
aðar jólakettinum
Gerðarsafn
Pólskt jólaföndur
Fordyri Salarins
Jólamarkaður. Tau frá Togo,
Silli kokkur, Ás styrktarfélag,
Möndluvagninn
Gefðu okkur auga. Þátttökuverk
fyrir Vetrarhátíð 2023
Lifandi tónlistarflutningur
Kl. 13.30 Samkór Kópavogs
- í Gerðarsafni
Kl. 14.00 Barnakór Smáraskóla
- í fordyri Salarins
Kl. 14.30 Kvennakór Kópavogs
- í fordyri Salarins
Kl. 15.00 Flautukór Tónlistar-
skólans í Kópavogi - í Gerðar-
safni
Kl. 15.15 Kammerkórinn
- í fordyri Salarins
Jólatrésskemmtun frá kl. 15.45
Fram koma Skólahljómsveit
Kópavogs og Kór Hörðuvalla-
skóla, Salka Sól og jólasveinar
Þetta verður alveg
geggjað og við
vonum að sem flestir
krakkar mæti.
Hurðaskellir og Kertasníkir
2 kynningarblað A L LT 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR