Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 38

Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 38
Þjóðminjasafnið Þjóðminjasafnið verður með glæsilega dagskrá á aðventunni sem endranær. Flestir Reyk- víkingar eiga minningu um að hitta gömlu jólasveinana á safninu og taka þeir glaðir á móti börnunum eftir að þeir koma til byggða. Áður en þeir líta við verður þó ýmislegt skemmtilegt. Núna á sunnudag, fyrsta sunnudag í aðventu, mun jólakötturinn fela sig á safninu. Þá verða einnig til sýnis jólatré safnsins og lítill jólatorfbær, Jólageirsstaðir. Sunnudag í næstu viku, annan sunnudag í aðventu, kemur Grýla fram á safninu ásamt týnda tröllabarninu Svavari Knúti. Leppalúði lætur einnig sjá sig, en hann er örlítið feimnari og hræddari við sviðs- ljósið en spúsa hans. Jólasveinarnir koma svo einn af öðrum klukkan 11, morguninn eftir að þeir koma til byggða. Stekkjarstaur sér því um skemmtunina 12. desember og svo koll af kolli. Jóladagskrá og -sýningum safnsins lýkur svo á þrettándanum. Tilboð verður á heitu kakói og kleinu eða súkku- laðiköku yfir aðventu og jól. n Dansgarðurinn Dansgarðurinn mun bjóða upp á skapandi smiðjur fyrir fjölskyld- ur í Breiðholti og aðra áhuga- sama í nóvember og desember sem tilbreytingu í aðventudag- skrána. Smiðjurnar eru ætlaðar foreldrum með börn á aldrinum 6–10 ára. Í smiðjunum sem eru alltaf á sunnudögum klukkan 14.00 munu reyndir listamenn bjóða upp á námskeið í mis- munandi listgreinum í tengslum við dans: Sirkus-, tónlistar- og teikninga-smiðjur. Að loknum vinnustofum verður boðið upp á kaffi, kakó og kex svo þátt- takendur fái tækifæri til að eiga óformlegt spjall og kynnast. Smiðjurnar fara fram í Stúdíói Klassíska listdansskólans í Mjódd sem er á þriðju hæð og er inngangurinn við hliðina á Subway. Takmarkað pláss er í smiðj- urnar og fólk er beðið að skrá sig með tölvupósti: dansgardur- inn@gmail.com. Dagskráin er eftirfarandi: n 27. nóvember kl. 14.00: Dans og teikning með Katrínu Gunnarsdóttur og Rán Flygen- ring. n 4. desember kl. 14.00: Dans og tónlist með Völu Rúnars- dóttur og Hermigervli. n 11. desember kl. 14.00: Dans, sirkus og akróbatík með Hringleik. n Ég var bara búinn að vera með stíflu síðan ég útskrifaðist svo ég ákvað að reyna að hreinsa niðurföllin mín með þessari sýningu. Ekki sturta niður Vanilluhringir eins og amma gerði þá n Uppskriftin 25. nóv 26. nóv 27. nóv Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Hvað er að gerast um helgina? Viktor Þór Viktorsson heldur sýningu í Núllinu. mynd/aðsend friminutur@frettabladid.is n Hringrásarjól kl. 13.00 Norræna húsið Komið með gamlar flíkur, stuttermaboli eða annan textíl, og glæðið nýju lífi með Prent og vinum – sem bjóða gestum og gangandi að gera sitt eigið silki- prent. Þátttakendur geta einnig prentað á pappír, til dæmis með því að koma með gamla papp- írspoka og gera jólakort eða jólamerkimiða úr þeim. Einnig verður jóla skipti mark að ur. Sónó Matseljur verða með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði. n Jólasnjókorn kl. 13.30 Borgarbókasafnið, Grófinni Lærum að klippa út einstök og falleg snjókorn með listakon- unni Kristínu Arngrímsdóttur. Snjókornin eru tilvalið skraut í glugga, á veggi, pakka, sem borðskraut eða hvað sem okkur dettur í hug. n Jólaljósin tendruð á Oslóartrénu kl. 16.00 Austurvöllur Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika aðventu- og jólalög frá klukkan 15.30. Fyrir athöfnina mun Tröllið Tufti mæta á Austurvöll og gleðja gesti. Sigríður Thorla- cius og Valdimar flytja falleg jólalög ásamt hljómsveit. Einnig munu jólasveinar stelast í bæinn og syngja og skemmta kátum krökkum. Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir og verður dag- skráin túlkuð á táknmáli. n Kveikt á jólatrénu á Djúpavogi kl. 17.00 Djúpivogur Alfreð Örn Finnsson sóknar- prestur mun halda stutta tölu og í kjölfarið mun nemandi Djúpavogsskóla kveikja á trénu. Þá verður tónlist, sungið og dansað í kringum jólatré og jóla- sveinar verða á stjái. n Moses Hightower: Önnur Mósebók 10 ára kl. 21.00 Græni hatturinn Hljóðgervlagaldrakarlinn Magnús Jóhann Ragnarsson og blásararnir sem blésu á plötunni sjálfri: Kjartan Hákonarson, Óskar Guðjónsson og Samúel Jón Samúelsson leika með hljómsveitinni. Platan í heild og aðrir smellir leiknir af Moses í sparifötunum! n Ilm-útgáfuhóf kl. 16.00 Fichersund 3 Nýjasti ilmur ilmvatnsfjölskyld- unnar í Fichersundi lítur dagsins ljós: Fichersund no. 101. n Drekktu betur #954 kl. 18.00 Ölstofa Kormáks og Skjaldar Hin goðsagnakennda bar svars- keppni siglir áfram. Alvöru nördakeppni sem lætur engan ósnortinn. Spyrill er Heiða Dögg Liljudóttir. n Tónleikar með Sigur Rós kl. 19.00 Laugardalshöll Lokatónleikar viðamikils heims- tónleikaferðalags. n Jóli Hólm kl. 19.30 Bæjarbíó Sóli er mikill aðventudrengur og því fáir betur til þess fallnir að koma fólki í jólaskap. n 19.30 Þakkargjörðarhátíð Midgard Basecamp Alvöru þakkargjörðarmáltíð með safaríkum kalkúni og girni- legu meðlæti. n Aðventuhátíð í Kópavogi kl. 13.00 Víðs vegar í Kópavogi Kynnir á jólatrésskemmtun er Salka Sól. Jólasveinar bregða sér í bæinn og dansa í kringum jóla- tréð. Skólahljómsveit Kópavogs og Kór Hörðuvallaskóla flytja jólatónlist. Frá klukkan 13.00 verður boðið upp á fjölbreytta jóladagskrá fyrir alla fjölskyld- una á. Ljósin á jólatrénu verða tendruð klukkan 16.00. n Roller Derby kl. 13.00 Hertz höllin, Seltjarnarnesi Fyrst taka Ragnarök á móti danska liðinu Copenhagen Ladybugs og eftir þann leik verður blandaður vinaleikur þar sem blandað verður í lið úr bæði Ragnarökum og Copenhagen Ladybugs. n Aðventuhátíð í Garðabæ kl. 13.00 Víðs vegar í Garðabæ Aðventuhátíð um víðan völl. Fram koma allan daginn: Barna- kór Vídalínskirkju, Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónafljóð. Einnig verður jólaball og föndursmiðjur. n Jólasnúningur Dropans, Matbars og Dragon Dim Sum kl. 18.30 Geirsgötu 3 Óhefðbundinn jólamatur og draglistafólk. Jólahefðum snúið á hvolf á einstöku kvöldi. n Ég býð mig fram 4: Nýr heimur kl. 20.30 Tjarnarbíó Örverkaveisla Unnar Elísa- betar sem hefur fengið frábæra dóma. n Heima um jólin kl. 20:.30 Salurinn, Kópavogi Friðrik Ómar tekur á móti frábærum gestum á aðventunni líkt og undanfarin ár í Salnum. Fastir gestir eru Jógvan Hansen og Margrét Eir en einnig verða leynigestir. n Sycamore Tree kl. 21.00 Græni hatturinn Sycamore Tree fagnar út- gáfu plötunnar Colors. Ekki sturta mér niður er nafnið á fyrstu listasýningu Viktors Þórs Viktorssonar eftir útskrift hans úr myndlistarnámi við Institute of Arts hjá Háskólanum í Cumbria, Bretlandi. Sýningin fer fram í Núll- inu, litlu en sjarmerandi galleríi við Bankastræti, gegnt Pönksafn- inu. Áður var galleríið almenn- ingssalerni, sem verður að teljast viðeigandi í ljósi þema verkanna og titils sýningarinnar. Á meðan sveitarfélög biðla til almennings um að sturta ekki niður blautþurrkum og olíu í niður- föllin biðlar Viktor Þór til listunn- enda að sturta ekki niður listinni. Þrjú verk eru til sýnis í Núll- inu, þar á meðal veggskúlptúr af pípulögnum þar sem listin hefur hreinlega stíflað niðurföllin. „Ég var bara búinn að vera með stíflu síðan ég útskrifaðist svo ég ákvað að reyna að hreinsa niðurföllin mín með þessari sýningu,“ segir Viktor. Í verkum Viktors má finna mörg lagskipt smáatriði og óregluleg form en sjálfur gefur Viktor lítið fyrir slíkar lýsingar. „Þetta er hálf- gerður pervertismi, mjög dekora- tívur stíll. Sumir kalla þetta að vera nostrari en ég meina, hvað kallarðu manneskju sem málar skip í f löskum annað en pervert?“ segir Viktor. Sýningin stendur yfir í stuttan tíma. Hún var opnuð í gær og stendur yfir til klukkan 16.00 á sunnudag. Fullkomið jafnvægi á móti jólaljósum og aðventu. n Þessi klassíska uppskrift kemur úr smiðju Helgu Sigurðardóttur sem gaf út bókina Matur og drykkur. Vanilluhringir um 100 stykki 500 g hveiti 375 g smjör 250 g sykur 1 egg ½ tsk. hjartarsalt Vanilla eða 2 tsk. vanilludropar Hveitinu og hjartarsaltinu er sáldrað á borðið. Smjörlíkið mulið með höndunum. Vanillu og sykr- inum blandað saman við. Vætt í með egginu. Hnoðið deigið uns það verður jafnt og engar eggjarákir eru í því. Hveiti sáldrað á bretti og deigið látið á það. Látið bíða á köldum stað í um það bil klukkustund eða þangað til það er orðið stíft. Einnig er hægt að hnoða deigið í hrærivél ef það hentar ykkur betur. Mótið lengjur úr deiginu, auð- veldast er að nota smákökufram- lengingu á Kitchen Aid-hrærivél, og búið til hringi. Ef þið eigið blikkmótin gömlu, sem til þess eru ætluð, og söxun- arvél, þá getið þið saxað deigið og þá kemur bárótt lengja sem er skorin í sundur og búnir eru til hæfilegar stórir hringir. Setjið á ofnplötu með smjör- pappír og bakið við 250°C í um tíu mínútur eða þar til hringirnir fara að taka á sig ljósbrúnan lit. n Vanilluhringir voru alltaf bakaðir fyrir jólin hér áður fyrr. 4 kynningarblað A L LT 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.