Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 42
Það litla sem ég
keypti hefði kostað
margfalt meira hérna
heima.
Birna María Þorbjörnsdóttir
Birna María Þorbjörns-
dóttir eyddi svörtum
föstudegi í Boston fyrir
nokkrum árum. Þótt hún
hafi ekki eytt miklum fjár-
hæðum sjálf, var dagurinn
skemmtileg upplifun.
starri@frettabladid.is
Einn þeirra fjölmörgu Íslendinga
sem hafa kynnst stemningunni
kringum svartan föstudag í
Bandaríkjunum er Birna María
Þorbjörnsdóttir. Hún heimsótti
Boston fyrir nokkrum árum í
nokkurs konar vinnu- og árs-
hátíðarferð. „Á þessum tíma var
ég að vinna hjá ferðaskrifstofunni
Mundo. Við vorum svo heppin að
vera samferða nokkrum stelpum,
eiginkonum starfsmanna Vivaldi,
og fengum inni í æðislegu húsi í
Magnolia, rétt fyrir utan Boston,
sem er í eigu Jóns Stephensonar
von Tetzchner, eiganda Vivaldi.
Vivaldi-stelpurnar höfðu farið
áður á þessum tíma og við fengum
að njóta leiðsagnar þeirra um
mollin og verslunarþorpin. Við
elduðum líka og borðuðum risa-
stóra þakkargjörðarmáltíð í sömu
ferð.“
Góð tilboð í gangi
Stemningin í Boston var bæði
skemmtileg og öðruvísi en hún
átti að venjast heima. „Að rölta
um í búðunum og verslanamið-
stöðvunum var svolítið eins og
jólastemning en svo voru líka
haustlegar Thanksgiving-skreyt-
ingar úti um allt. Eftir því sem leið
á svarta föstudaginn sjálfan jókst
fólksfjöldinn í búðunum og stress-
ið varð meira hjá fólki. Ég heyrði
sagt að stundum kæmi meira að
segja fyrir að fólk færi að slást yfir
síðustu f líkinni á einhverju góðu
tilboði.“
Þótt Birna hafi ekki keypt mikið
sjálf sá hún vel hversu góð tilboð
Svolítið galin stemning í Boston
Birna María
Þorbjörnsdóttir
fyrir miðju
ásamt ferða-
félögum sínum
og fyrrverandi
vinnufélögum,
Margréti Jóns-
dóttur Njarð-
vík og Herði
Tryggvasyni.
myndir/aðsendar
Birna eyddi svörtum föstudegi í verslunarmiðstöðvum í úthverfi Boston og því var stemningin aðeins rólegri en
annars staðar í borginni þennan daginn.
Hluti af flíkunum sem fóru í mjúku pakkana hjá bræðrabörnunum.
Þakkargjörðardagurinn var haldinn
hátíðlegur degi á undan svörtum
föstudegi.
voru í gangi víða. „Það var alveg
hægt að gera mjög góð kaup á
fatnaði. Það var aðallega það sem
hópurinn okkar var að skoða, föt
og skór. Það litla sem ég keypti
hefði kostað margfalt meira hérna
heima.
Bræðrabörn mín nutu reyndar
góðs af þessu og fengu stóra mjúka
pakka þau jólin. Ferðafélagar
mínir voru mun duglegri, en þær
voru f lestar búnar að fara áður
og kunnu því einstaklega vel á
svæðið. Sumar þeirra voru meðal
annars búnar að kaupa helling á
netinu og láta senda á staðinn sem
við dvöldum á.“
Skemmtileg upplifun
Þrátt fyrir allt var skemmtilegt að
upplifa þennan dag í Boston. „Það
sem var kannski eftirminnilegast
við þennan dag var hvað þetta
var í raun svolítið galin stemning.
Við vorum samt í svona úthverfa-
verslunarmiðstöðvum og því var
frekar „rólegt“ þar miðað við aðra
verslunarkjarna í borginni.“
Þótt minningarnar séu góðar
er Birna lítið spennt fyrir því að
upplifa f leiri svarta föstudaga
erlendis. „Ég væri miklu meira til í
krúttlegan jólamarkað með glögg
og ristuðum möndlum einhvers
staðar í Danmörku eða Þýska-
landi, eða eyða tíma á prúttmark-
aði í Thamel-hverfinu í Katmandú
í Nepal.“ n
4 kynningarblað 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURSvartur föStudagur