Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 51
Hvað er um að vera í næstu viku?
KFC um jólin
Í Japan er KFC-kjúklingur sá matur
sem fólk tengir við vestræn jól.
Það var Takeshi Okawara, sem
stýrði fyrsta KFC-útibúinu í Japan,
sem sagði í viðtali að á Vestur-
löndum væri djúpsteiktur kjúkl-
ingur gjarna notaður til hátíðar-
brigða í stað kalkúns. KFC í Japan
er byrjað að taka við pöntunum
fyrir jólamatinn í ár. n
n Skrítin staðreynd vikunnar
Þegar við pælum í því, þá eru
afar fáir partístaðir sem standa
við Laugaveginn sjálfan. Vissu-
lega erum við með staði á borð
við Bravó, Big Lebowski, Prikið
og Sólon, en hliðargötur sem
þvera Laugaveg eru einnig mjög
gjöfular. Röntgen stendur á horni
Ingólfsstrætis og Hverfisgötu,
Kaffibarinn er við Bergstaðastræti
og Ölstofan er við Vegamótastíg.
Hins vegar ber Klapparstígurinn
höfuð og herðar yfir þessar
götur. Ef við byrjum að ganga frá
Hverfisgötu ber fyrst að nefna The
Irishman Pub, þar sem írskur andi
svífur yfir vötnum, það eina sem
vantar eru vikuleg River Dance-
kvöld. Óskir um slík er komið hér
á framfæri. Stór staður sem hentar
stærri vinahópum og ekki má
gleyma góðri karaokeþjónustu.
Örlítið ofar er svo Kokkteilbar-
inn á Monkeys. Stemmarinn þar
er örlítið fágaðri en á þeim írska.
Þar er hægt að njóta hanastéla í
dásamlega fallegum lestarvagni
sem kallaður er Kampavínslestin.
Fullkomið fyrir vinkonuhitting
með Gatsby-þema eða til að
ímynda sér að fólk sé að ferðast
með Austurlandahraðlestinni.
Við horn Laugavegar stendur
Bravó sem stendur fyrir sínu, með
góð tilboð á barnum á vissum
tíma dags. Frábær staður fyrir
trúnó og sjarmerandi sjabbí, eins
og bestu rokkbarir í Williams-
burg.
Nýjasti demantur Klapparstígs-
ins er svo leynivínbarinn Apéro
sem er á annarri hæð Laugavegar
28b, gengið inn frá Klapparstíg, í
rými sem mörg tengja við Á næstu
grösum og Gló. Þarna er alvöru
Parísarandi, frábært vínúrval og
góðir smáréttir.
Frá París förum við svo norður.
Kaldi bar ber sama nafn og bjór-
inn sem bruggaður er á Árskógs-
sandi. Stundum er gripið í píanó
staðarins og breytist hann um
stund í eins og útibú frá hinum
akureyrska Götubar. Hinum
megin við götuna er svo Veður,
sem býður upp á það ferskasta í
íslenskri kokkteilamenningu. Ef
heppnin er með þér situr smar-
tasta barpar landsins fyrir utan
í múnderingu sem minnir á
Camden-hverfið í London.
Á horni Klapparstígs og Grettis-
götu stendur svo Pasta Basta-húsið,
sem lengi vel hýsti Bar Ananas.
Gaman verður að sjá hvað verður í
því húsi þegar fram líða stundir, en
það var nýlega auglýst til sölu. n
Heimsreisa upp Klapparstíg
28. nóvember
Mánudagur
n Mánudjass á Húrra kl. 21.00
Mánudjass snýr aftur heim
á Húrra og verður framvegis
annan hvern mánudag. Hús-
bandið spilar eitt sett og svo er
sviðið opið. Öllum er velkomið
að spila, syngja, dansa eða bara
njóta tónlistarinnar.
30.
nóvember
Miðvikudagur
n Jólajazz með Kristjönu Stefáns
kl. 12.15
Salurinn, Kópavogi
Tríó jazzdívunnar Kristjönu
Stefáns kemur okkur í nota-
legan jólagír í upphafi aðventu.
Tónleikarnir fara fram í fordyri
Salarins. Aðgangur ókeypis og
öll hjartanlega velkomin.
n Flotmeðferð kl. 19.00
Álftaneslaug
Tíminn inniheldur nudd og nær-
andi slökun, á meðan flotið er
með öllum tilheyrandi búnaði
og stuðningi. Fullkomin út-
kúplun frá jólaálagi.
n Erik Qvick og Jazz sendiboð-
arnir á Múlanum kl. 20.00
Björtuloft, Hörpu
Hljómsveitin tekur ofan hattinn
fyrir goðsögnum „Hard Bop“
tímabilsins. Leikin verða lög
eftir Curtis Fuller, Freddie
Hubbard, Cedar Walton, Bobby
Timmons og fleiri.
1. desember
Fimmtudagur
n Hugur, hjarta, hönd - Macramé
með með Heru kl. 20.00
Móar studio, Bolholti 4
Heilandi samverustund þar sem
við fræðumst um það hvaðan
macramé kemur, spjöllum um
heilunarmátt handavinnunnar
og lærum undirstöðuhnúta í
macramé svo hægt sé að byrja
að skapa, flæða og gera þitt
eigið verk, það sem hugurinn,
hjartað og hendurnar girnast.
n Hið ósagða kl. 20.30
Tjarnarbíó
Þrír vinir hittast í máltíð á T.G.I.
Fridays, eitt þeirra var að slá
í gegn. Undir sakleysislegum
samskiptum þeirra leynist
grátbrosleg styrjöld, persónu-
legt stríð milli þriggja beiskra
og venjulegra einstaklinga sem
þekkja veikleika hver annars
utan að.
n Obbossí – Fyrsti í graðventu
kl. 21.00
Þjóðleikhúskjallarinn
Nemendasýning nýjustu
búrlesk meyja bæjarins. Fjöl-
breytt sýning þar sem hlátur,
þokki, gleði og líkamsvirðing
eru í hávegum höfð. Sérstakir
gestir frá Kramhúsinu eru Brit-
ney-nemendur Berglindar Jóns,
magadansnemendur Rósalindar
Hansen og búrleskdívan Vice
Versa.
n J ólabjöllurnar í hátíðarsköp-
um kl. 21.00
Gaukurinn
Jólabjöllurnar eru sönghópur
sem fagna nú tíundu jólunum
saman. Undir sakleysislegu yfir-
borðinu leynist talsvert djarfari
hlið. Þær hafa á undanförnum
árum sérhæft sig í að skemma
uppáhaldsjólalög landsmanna
með frumsömdum textum um
meðal annars jólaþvagleka,
uppstoppaða jólahamstra og
jólasveinakynlíf.
Late Night Fiesta Eldhúsið okkar er opið til
miðnættis föstudaga og laugardaga
treslocos.is
Klapparstígurinn ber höfuð og
herðar yfir margar götur.
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 25. nóvember 2022