Fréttablaðið - 25.11.2022, Síða 56
Það voru Max Verstappen
og Red Bull Racing sem báru
höfuð og herðar yfir keppi-
nauta sína á nýafstöðnu
keppnistímabili í Formúlu 1
þar sem vel heppnuð frum-
sýning nýrra bíla fór fram.
Árið 2022 í Formúlu 1 bauð
upp á margt þó svo að úrslitin
hafi verið ráðin of snemma
fyrir smekk flestra.
aron@frettabladid.is
Formúla 1 Drama, háhraði, spenna,
skemmtun, ótrúleg mistök og glæst-
ir sigrar, eru orð sem koma upp í
hugann þegar maður lætur hugann
reika yfir tímabilið, en eitt er víst og
það er að Formúla 1 hefur skipað
sér sess meðal áhugaverðustu og
skemmtilegustu íþrótta í heimi.
Hér er farið yfir það markverðasta
frá tímabilinu. n
Frumsýning sem
gefur góð fyrirheit
Niðurstaða ársins
Vel heppnuð frumsýning
Formúla 1 hefur stigið gæfuspor með nýrri kynslóð bíla. Það
hefði verið ósanngjarnt af okkur að biðja um sömu spennu og
boðið var upp á á síðasta tímabili, en tímabilið í heild sinni hefur
verið mjög gott. Niðurstaðan er sú að næsta tímabil í Formúlu 1
hefur alla burði til þess að geta farið í sögubækurnar af góðum
ástæðum. Þrjú lið standa framar öðrum og eru líkleg til þess að
blanda sér í baráttuna um titlana sem í boði eru. Okkur dreymir
um slag milli Red Bull, Ferrari og Mercedes, vonum að það verði
að veruleika því það verður allt lagt í sölurnar.
Keppni ársins
Silverstone
Yfirburðir Verstappen á Red Bull-bílnum ollu því að oft og tíðum var ekki
mikil spenna um sigur í keppnum, en í Silverstone-kappakstrinum í Bret-
landi var boðið upp á mikla skemmtun þar sem Carlos Sainz, ökumaður
Ferrari, vann sinn fyrsta sigur á ferlinum. Öryggisbíll var kallaður út undir
lok keppninnar, það þjappaði hópnum saman og úr varð æsispennandi
lokakafli úti um alla braut.
Vonbrigði ársins
Mercedes og Ferrari
Tvennt sem stendur upp úr hér. Sú staðreynd að Mercedes var aldr-
ei í baráttu um heimsmeistaratitla, og afhroð Ferrari trekk í trekk.
Höldum okkur við Ferrari hér. Liðið virtist hafa neglt blönduna fyrir
nýja kynslóð Formúlu 1 bíla, byrjaði tímabilið vel með hraðan bíl, en
gerði allt of mörg mistök og kom sér allt of oft í vonda stöðu. Þegar
Ferrari gengur vel, þá eykur það áhuga á Formúlu 1. Vonandi verður
það staðreyndin á næsta ári.
Kveðjustund ársins
Sebastian Vettel
Fjórfaldi heimsmeistarinn
Sebastian Vettel hefur
yfirgefið Formúlu 1 sviðið og
kveður sem goðsögn í móta-
röðinni. Vettel verður einna
helst minnst fyrir ótrúlega
sigurgöngu sína með Red
Bull, en einnig fyrir að reyna
slíkt hið sama með Ferrari. Þá
er það virðingarvert hvernig
hann hefur nýtt sér stöðu sína
sem heimsfrægur ökumaður
til þess að vekja athygli á
brýnum málefnum utan
Formúlu 1. Danke, Seb!
Staðreynd ársins
Sigurlaus Hamilton
Tímabilið 2022 fer í sögu-
bækurnar sem fyrsta tímabil Sir
Lewis Hamilton í Formúlu 1 þar
sem honum tekst ekki að vinna
keppni. Hamilton hóf Formúlu 1
feril sinn árið 2007. Þessi sjöfaldi
heimsmeistari gekk í gegnum
fordæmalaust tímabil í ár, þar sem
bíll Mercedes reyndist ekki sam-
keppnishæfur fremst í rásröðinni
fyrr en undir lok árs.
Ökumaður ársins
Max Verstappen
Það er ekki hægt að líta
fram hjá Max Verstappen
í þessum flokki. Hollend-
ingurinn var í sérflokki í ár,
setti met yfir fjölda sigra á
einu tímabili (15) og tryggði
sér sinn annan heimsmeist-
aratitil á ferlinum. Hann er
maðurinn sem setur markið
hátt fyrir aðra ökumenn
mótaraðarinnar.
34 Íþróttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR