Fréttablaðið - 25.11.2022, Síða 58
Ég hugsaði bara með mér
að píanóin, fiðlurnar og
hvaðeina – þetta væri allt
úrelt!
Þau Hallveig og
Elmar eru söngv-
arar í heimsklassa
og það skilar sér
mjög vel í þessum
lögum.
Þorvaldur
Gylfason
Merkisatburðir
1667 Jarðskjálfti ríður yfir Kákasushérað og verður 80
þúsund manns að bana.
1867 Sænski efnafræðingurinn Alfred Nobel fær einka-
leyfi fyrir framleiðslu
dínamíts.
1949 Jólaslagarinn Rúdolf
með rauða trýnið birt-
ist fyrst á vinsælda-
listum vestanhafs.
1953 Öflugur jarðskjálfti
skekur Honsu í Japan.
Flóðbylgja fylgir í kjöl-
farið.
1955 Kynþáttaaðskilnaður
bannaður í lestum
og langferðabílum
sem fara á milli ríkja í
Bandaríkjunum.
1963 John F. Kennedy
lagður til hinstu hvílu í
Arlington-kirkjugarðinum í Virginíuríki.
1969 John Lennon skilar OBE-heiðursnafnbót til að mót-
mæla stuðningi Bretlands við Víetnamstríðið.
1970 Rithöfundurinn Yukio Mishima sviptir sig lífi eftir
misheppnaða valdaránstilraun í Japan.
1971 Bandaríska leikkonan Christina Applegate fædd.
1975 Súrinam öðlast sjálfstæði
frá Hollandi.
1984 Þrjátíu og sex tónlistar-
menn safnast saman í
hljóðveri í Notting Hill
í Lundúnum og taka
upp lagið „Do they
know it´s Christmas?“
og safna þannig fé
til styrktar hungr-
uðum í Eþíópíu.
2005 George Best, hinn
kunni norður-írski
fótboltamaður,
deyr. Hann hafði
ekki lifað heilsu-
samlegu lífi.
2014 Lionel Messi
setur markamet
í meistaradeild
Evrópu.
Sexæringurinn Stanley var fyrsti fiski-
báturinn á Íslandi til að vélvæðast.
Hann var fyrst sjósettur með tveggja
hestafla vél þann 25. nóvember 1902
við Hnífsdal.
Áður hafði Stanley gengið í gegnum
nokkur eigendaskipti, en hann var lík-
lega smíðaður í kringum 1860. Hann var
á einhverjum tíma kallaður Skálin, því
þáverandi eigandi hans var sagður fara
með bátinn eins og hann væri glerskál
eða postulín. Síðar keypti maður að
nafni Árni Gíslason bátinn og kallaði
Stanley.
Útgerð Stanley gekk vel þar til hann rak
í Borgarbót í Skötufirði og brotnaði.
Árið 2006 afhentu Ísfirðingarnir Guð-
mundur Guðmundsson og Jón Páll
Halldórsson Einari K. Guðfinnssyni,
þáverandi sjávarútvegsráðherra, mynd
af bátnum sem markaði tímamót í
sjávarútvegssögu landsins. n
Þetta gerðist: 25. nóvember 1902
Vélbáturinn Stanley sjósettur
Ungur var Hjálmar á því að tónlist væri einungis á færi guðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hjálmar H. Ragnarsson fagnar
sjötugsafmælinu með málstofu
og síðbúnum frumflutningi.
arnartomas@frettabladid.is
Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og
fyrrverandi rektor Listaháskóla Íslands,
fagnaði sjötugsafmæli fyrr í haust. Í til-
efni af stórafmælinu býður tónlistar-
deild skólans til málstofu í dag, en
samhliða henni verður á sunnudaginn
frumflutt verk eftir hann á raftónlistar-
hátíðinni Erkitíð.
„Það er bara gleðiefni,“ svarar Hjálm-
ar, spurður um hvernig sjötíu árin sæki
að honum. „Þegar maður er við góða
heilsu og hausinn á manni er í lagi þá er
ekkert nema gaman að eldast.“
Í tilefni afmælisins heimsótti Hjálmar
Grikkland í fyrsta sinn, fyrst Aþenu og
fór svo ásamt Ásu eiginkonu sinni til
Krítar. „Þetta var gamall draumur, ég
hafði aldrei komið til Grikklands, stór-
kostleg upplifun“ segir hann.
Engir guðakomplexar
Í málstofunni í dag munu þau Þorbjörg
Daphne Hall dósent í tónlistarfræðum
og Hjálmar ræða um verk hans og list-
rænan feril.
„Við ætlum að fara í gegnum upphafið
og stórt æskuverk sem ég gerði þegar ég
var rúmlega tvítugur,“ segir Hjálmar.
Umrætt verk kallast Noktúrna eða
Næturljóð, og munu þær Herdís Anna
Jónasdóttir og Áshildur Haraldsdóttir
leika brot úr verkinu, sem er fyrir fjöl-
rása rafhljóð, sópran-rödd og altflautu.
Verkið verður síðan f lutt í fullri lengd
á sunnudaginn á tónleikum Erkitíðar í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
„Ég fór í tónsmíðar upphaflega í gegnum
raftónlistina, heillaðist af henni með
einhverjum óskýranlegum hætti, og á
þessum tíma þegar ég teikna upp Nokt-
úrnuna er raftónlistin í algjörri frum-
bernsku.“
Þá verður í málstofunni einnig rætt
um hvað varð til þess að Hjálmar byrjaði
að smíða tónlist og skapa sér grundvöll
sem tónsmiður.
„Mér þótti á þeim tíma að það væru
bara guðir sem gætu gert tónlist, Beet-
hoven og svona,“ segir hann og hlær.
„En það breyttist allt þegar ég kynntist
raftónlistinni í námi mínu í Bandaríkj-
unum.“
Þú ert þá ekki með neina guðakomp-
lexa?
„Nei, þetta bjargaði mér alveg, að
kynnast þessari tónlist, hún var fram-
andi og spennandi, og ólík öllu öðru sem
ég hafði kynnst áður,“ segir hann. „Að
lokum förum við Þorbjörg yfir einhver
af nýjustu verkum mínum, þá aðallega
Partítu fyrir sóló-fiðlu, sem var frum-
flutt nú fyrr á árinu. Við tökum sum sé
upphafið og endinn, en skiljum miðjuna
eftir.“
Síðbúinn frumflutningur
Það fór nú svo að Noktúrnan lenti niðri
í skúffu og var aldrei flutt á tónleikum.
„Mér fannst þetta kannski ómögulegt
verk eða eitthvað, ég veit ekki hvað það
var. Tæknin breyttist og svo komu PC
tölvur og svona svo ég setti þetta verk
bara til hliðar og kláraði það ekki einu
sinni, það er söngröddina og f lautu-
partinn.“
Kjartan Ólafsson, listrænn stjórnandi
Erkitíðar, vissi hins vegar af verkinu og
skikkaði Hjálmar til að gjöra svo vel að
klára það og undirbúa fyrir f lutning á
hátíðinni, sem fer fram núna á sunnu-
daginn.
Hljóðfærin orðin úrelt
Það eru ekki margir hér sem hafa verið
þátttakendur í þróun nýrrar tónlistar-
gerðar frá fyrstu skrefum, eins og Hjálm-
ar hefur verið með raftónlistinni. Hann
segist í dag finna fyrir miklum áhuga á
þessari svokölluðu sígildu raftónlist.
„Það var allt opið á þessum tíma og
þótt tæknin hafi verið erfiðari þá en
í dag þá er eitthvað fallegt við hana og
fyrirhöfnina sem henni fylgdi,“ útskýrir
hann. „Það er fallegt í sjálfu sér hvernig
tæknin og þessi tónlistarhugsun mætt-
ust.“
Hjálmar var svo heitur í þessu á sínum
tíma að hann skoraði á fólk að henda
bara gömlu hljóðfærunum, það væru
komnir nýir tímar.
„Ég hugsaði bara með mér að píanóin,
fiðlurnar og hvaðeina – þetta væri allt
úrelt! Ég var alltaf heltekinn af þessu.“
Málstofan í Listaháskólanum hefst
klukkan 12.45 í dag og mun Hjálmar
f lytja verk sitt Erkitíð á tónleikum í
Listasafni Reykjavíkur sem hefjast 17.30
á sunnudag. n
Fyrirhöfnin er svo falleg
arnartomas@frettabladid.is
Sumar ferðin, ný r söng-
lagaf lokkur eftir Þorvald
Gylfason við kvæði eftir
Kristján Hreinsson, verður
fluttur í Hörpu næsta sunnu-
dag. Flokkurinn er framhald
fyrri f lokks sem var frum-
fluttur í Hannesarholti 2017,
Sextán söngvar fyrir sópran
og tenór, og eru lögin og
ljóðin sögð fjalla um söknuð,
sorg og gleði, viljann og von-
ina, ástina, lífið og listina.
„Veturinn er til þess að
hlakka til sumarsins!“ svarar
Þorvaldur Gylfason, spurður
hvort það sé nú ekki skrítið
að leggja í slíka sumarferð að
vetri til. „Við erum að tala um
síðari hlutann af þrjátíu og
níu laga bálki. Þetta eru tutt-
ugu og eitt lag, samin við ljóð
Kristjáns sem eru bæði falleg
og dýrt kveðin.“
Til stendur að gefa laga-
bálkinn í heild sinni út á
næsta ári, bæði á geisladiski
og í nótnabók, sem verður
fjórða prentaða nótnabók
Þorvaldar. Flytjendur á tón-
leikunum verða þau Hallveig
Rúnarsdóttir sópran, Elmar
Gilbertsson tenór og Snorri
Sigfús Birgisson píanóleikari,
auk þess sem skáldið sjálft
mun sinna hlutverki þular
og f lytur stuttar skýringar
á innihaldi textanna á milli
laga.
Þorvaldur segir að gestir
megi vænta strauma frá
Garda-vatni í sumum lag-
anna sem samin voru á Ítalíu
í tónleikaferð þeirra Krist-
jáns fyrr á árinu.
„Sum lögin voru prufu-
keyrð á ítölsku við Garda-
vatn svo það er innangengt á
milli,“ segir Þorvaldur. „Þau
Hallveig og Elmar eru söngv-
arar í heimsklassa og það
skilar sér mjög vel í þessum
lögum. Maður heldur ekki
svona konsert upp á önnur
býti en þau að sumir tón-
leikagestirnir gangi syngj-
andi út í leikslok.“
Tónleikarnir hefjast klukk-
an 16 á sunnudag og fer miða-
sala fram á tix.is. n
Vil helst sjá gestina
ganga syngjandi út
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR