Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 64
Leiðtogar
Rússlands
eru hryðju-
verka-
menn og
það ætti að
dæma þá í
alþjóð-
legum
stríðs-
glæpadóm-
stól.
Maria Alyokhina
Femíniski andófslista-
hópurinn Pussy Riot opnaði
sýninguna Flauelshryðju-
verk í Kling & Bang í gær, sem
er fyrsta yfirlitssýningin á
verkum þessa heimsþekkta
hóps. Í kvöld flytja Pussy Riot
svo tónlistargjörninginn Riot
Days í Þjóðleikhúsinu.
Meðlimir Pussy Riot og starfsmenn
Kling & Bang voru í óðaönn að
undirbúa uppsetningu yfirlitssýn-
ingarinnar Flauelshryðjuverk þegar
blaðamaður hitti Mariu (Möshu)
Alyokhina, forsprakka listhópsins,
í Marshallhúsinu.
Hvers má fólk vænta af sýning-
unni?
„Fyrir margt fólk er Rússland
núna bara hryðjuverkaríki og fyrir
það var það svartur ókannaður
blettur á landakortinu. Við erum
að opna rifu á gluggann um það
hvernig Rússar eru að mótmæla
Pútín og hvernig við höfum reynt
að vekja athygli á því sem er í gangi
þar í landi, sérstaklega eftir að við
eyddum tveimur árum í fangelsi.“
Handteknar og fangelsaðar
Pussy Riot vöktu heimsathygli þegar
þær frömdu pólitískan gjörning sinn
„Pönkbæn: María Mey, hrektu Pútín
á brott“ í kirkju Krists í Moskvu 2012.
Þær voru fordæmdar af rússneskum
yfirvöldum og rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunni og í kjölfarið voru
þrjár þeirra handteknar, Masha,
ásamt þeim Nadyu Tolokonnikova
og Yekaterinu Samutsevich.
Þær voru hver fyrir sig kærðar og
dæmdar til að sæta tveggja ára refsi-
vist í fangavinnubúðum. Pussy Riot
hafa þó sannarlega ekki bugast og
hafa haldið áfram að mótmæla rík-
isstjórn Pútíns og fremja gjörninga
sína alla tíð síðan.
„Árið 2014 þegar þegar Krímskag-
inn var innlimaður reyndum við að
segja heimsbyggðinni að Rússland
myndi ekki stoppa. Það ætti að sæta
refsiaðgerðum og Vesturlönd ættu að
hafna innlimun annarra landsvæða.
Þannig að frá upphafi og til dagsins
í dag höfum við sýnt í gegnum
gjörninga okkar mismunandi þrep
og mismunandi dæmi kúgunar auk
þess að mótmæla þessari kúgun,“
segir Masha.
Hræðilegur raunveruleiki
Af hverju eruð þið að halda þessa
sýningu á Íslandi og af hverju núna?
„Á Íslandi af því okkur var boðið
að sýna hér af Kling & Bang. Af
hverju núna? Af því núna er rétta
augnablikið, með alla þessa mar-
tröð í kringum okkur. Jafnvel ég
gat ekki ímyndað mér að Pútín og
allt hans lið myndi ganga svona
langt. Í níu mánuði
höfum við lifað við
hræðilegasta raun-
veruleika sem við
höfum séð á okkar
líftíma.“
Þú meinar stríðið?
„Já, stríðið. Það eru margir
Rússar sem hafa verið á móti Pútín
og eru enn á móti Pútín. Það situr
fullt af fólki í fangelsum og sætir
pyntingum, sum þeirra myrt, fullt
af fólki sem hefur f lúið land og er
að berjast, til að mynda allir sjálf-
stæðu blaðamennirnir. Til að fjalla
um Úkraínu verður þú að gera það
erlendis, annars verðurðu fangels-
aður og munt ekki fjalla um neitt
nema fangelsislífið.“
Pussy Riot hafa undanfarna
mánuði verið á tónleikaferðalagi
með sviðsverk sitt Riot Days, sem
þær munu flytja í kvöld í Þjóðleik-
húsinu. Á ferð sinni safna þær fjár-
munum til að styðja við Úkraínu en
allur hagnaður af tónleikunum og
sýningunni rennur til Úkraínu.
Leiðtogarnir hryðjuverkamenn
Spurð að því við hverju fólk megi
búast við á tónleikunum í Þjóðleik-
húsinu, segir Masha um að ræða
verk á mörkum ólíkra listgreina.
„Það lítur út eins og tónleikar
með vídeólist en þetta er meira
en bara tónleikar. Þetta er á
mörkum tónlistar, leikhúss, heim-
ildarmyndar og með nokkrum
óútreiknanlegum pörtum af per-
formans. Í grunninn er þetta
stefnuyfirlýsing og fólk má búast
við baráttuköllum.“
Eins og gefur að skilja er Masha
mjög andvíg stríðsrekstri sam-
landa sinna í Úkraínu. Hún segir
innrásina sjálfa ekki hafa komið
sér svo mikið á óvart, en kveðst þó
ekki hafa órað fyrir þeim hryllingi
sem Rússar hafa stundað í Úkraínu
á undanförnum níu mán-
uðum.
„Engin okkar bjóst við
því sem við höfum séð
í Bútsja og engin okkar
bjóst v ið spreng ju-
árásum á
Kænugarð, harmleiknum í Maríu-
pol og öllu því. Þetta er eitthvað
sem er algjörlega sjokkerandi,“
segir hún.
Þurfti stríðið til að vekja Vestur-
lönd til umhugsunar um það sem er
að gerast í Rússlandi Pútíns?
„Já, ég held að það sé kominn
tími fyrir fólk að vakna upp og
skilja eitt mjög einfalt: Leiðtogar
Rússlands eru hryðjuverkamenn
og það ætti að dæma þá í alþjóð-
legum stríðsglæpadómstól, eins og
við Nürnberg-réttarhöldin. Það er
allt og sumt.“
Ekkert mál að dúsa í fangelsi
Masha var búsett í Rússlandi allt
þar til síðasta vor, en fjallað var um
ævintýralegan f lótta hennar frá
heimalandinu í heimspressunni.
Masha og kærasta hennar, Lucy
Shtein, dulbjuggu sig sem matar-
sendla og laumuðu sér úr landi
á mismunandi tímum. Íslenski
my nd list a r maðu r inn R ag na r
Kjartansson spilaði lykilhlutverk
í f lóttanum, með því að útvega
Möshu vegabréfsáritun frá ónefndu
Evrópuríki sem gerði henni kleift
að smygla sér yf ir landamæri
Hvíta-Rússlands og þaðan til Litá-
en. Ragnar er einn sýningarstjóra
sýningarinnar í Kling & Bang ásamt
eiginkonu sinni Ingibjörgu Sigur-
jónsdóttur og Dorotheé Kirch.
Var orðið of hættulegt fyrir þig að
vera í Rússlandi?
„Öll þessi ár voru hættuleg og
eru það enn, það er barnalegt að
hugsa sem svo að maður sé öruggur
erlendis. Mér finnst þetta ekki vera
spurning um hættu, fyrir mig er það
spurning um að ég vil geta gert
yfirlýsingar mínar gegn þessu
stríði eins háværar og mögulegt
er. Ég lenti í tveimur dómsmálum
sem tóku annars vegar tvö ár og
hins vegar eitt og hálft ár. Ég eyddi
mörgum dögum, vikum,
Leiðinlegra
að gefast upp
Maria (Masha) Alyokhina úr Pussy Riot segir heimaland sitt Rússland vera orðið að hryðjuverkaríki. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Pussy Riot
framdi gjörn-
inginn Pútín er
að pissa á sig á
Rauða torginu
í Moskvu 2012.
MYND/
DENIS SINYAJOV
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
mánuðum og árum inni í ólíkum
fangelsum. Það er ekkert vanda-
mál að búa þar og lesa bækurnar og
hlusta á útvarpið. Það sem skiptir
mig mestu máli er að heimurinn
skilji hvað er að gerast. Að fólk sé
ekki hræsnarar og átti sig á því að
það að steypa Pútín af valdastóli er
sameiginlegt markmið heimsins,
ekki bara verkefni Rússa.“
Andóf meðal Rússa
Getur Rússland breyst á meðan
Pútín er við völd?
„Ég er ekki viss um að heimur-
inn þekki Rússland að innan, af
því Rússar eru allt öðruvísi fólk. Ég
get ekki sagt að Rússar styðji þetta
stríð. Þeir gera það ekki og það er
enginn meirihluti fyrir stríðinu á
meðal Rússa.“
Að sögn Möshu hefur myndast
umfangsmikil neðanjarðarhreyfing
gegn stríðsrekstrinum innan Rúss-
lands, sem samanstendur meðal
annars af pólitísku andófi á borð
við útgáfu neðanjarðardagblaða og
skemmdarverka sem beinast gegn
innviðum rússneska hersins.
„Það er ekki hægt að segja að
þetta sé hreyfing með forystu, en
það eru sjaldgæfir gjörningar sem
fólk er að byrja að framkvæma. Til
dæmis voru tuttugu herkvaðning-
arskrifstofur brenndar víðs vegar
um Rússland. Það eru tuttugu dæmi
þess að fólk hafi sett saman móló-
tov-kokteila og bara brennt þær til
grunna,“ segir hún.
Elskar landið sitt
Þú hefur ítrekað verið handtekin
og fangelsuð fyrir mótmæli þín.
Hvernig viðheldurðu baráttuvilj-
anum án þess að gefast upp?
„Ég veit það ekki. Að gefast upp
er leiðinlegra en að gefast ekki upp,
held ég. Ef maður gefst ekki upp þá
getur maður gert alls konar áhuga-
verða og svala hluti. Ef þú sleppir
því þá munu þeir aldrei verða til.“
Þannig að það kemur ekkert til
greina að hætta?
„Nei, ekki enn sem komið er.
Úkraína er að þjást miklu meira en
ég og mér finnst að við ættum að
gera allt sem í valdi okkar stendur
til að stoppa þetta stríð.“
Spurð um hvort hún telji að hún
muni snúa aftur til Rússlands segist
Masha gjarnan vilja það.
„Ég elska það Rússland sem ég
þekki og ég óska þess að það verði
frjálst, af öllu mínu hjarta. Þess
vegna geri ég allt það sem ég geri.
Ég vil sýna þetta Rússland öllum
þeim sem hér búa.“ n
42 Menning 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR