Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 65
ninarichter@frettabladid.is
Sverrir Norland rithöfundur lenti í
því óhappi að bókin Feluleikur, sem
hann þýddi fyrir AM forlag, eftir
myndhöfundana Lolitu Séchan og
Camille Jourdy, innihélt prentgalla.
„Það eru prentgallar í þessu fyrsta
upplagi – og því höfum við tekið
bókina úr sölu í búðum. Við fisk-
uðum út þau eintök sem eru næst
því að standast gæðakröfur AM for-
lags og ætlum að halda þeim í sölu á
vefsíðunni okkar, amforlag.com, á
hálfvirði,“ segir Sverrir á Facebook.
Hann segir að fæstir lesendur
komi til með að taka eftir göllunum.
„En við erum í þessum bransa til
að gera eins fallegar bækur og við
mögulega getum. Engin miskunn.
Við erum ekkert að grínast,“ segir
Sverrir og bætir við að nýtt upplag
af bókinni komi fyrir jól.
„Þessi bók er hins vegar stórfeng-
lega skemmtileg og ég vona að þið
njótið hennar sem flest. Sem sagt:
Hreppa má góðu eintökin á hálf-
virði á síðunni okkar meðan birgðir
endast, á aðeins 1.745 kr.“
Sverrir skemmti sér vel við þýð-
ingu bókarinnar. „Það var gaman
að íslenska hana og leika sér með
textann, og ég fékk meira að segja
leyfi hjá Sveinbirni I. Baldvinssyni
til að nota nokkur vel valin brot úr
Laginu um það sem er bannað.“ n
Tóku bókina úr búðum vegna prentgalla
Sverrir Norland
Sýningunni innan skamms, aftur,
eftir Örnu Óttarsdóttur lýkur í i8
galleríi um helgina. MYND/AÐSEND
tsh@frettabladid.is
Sýningin innan skamms, aftur,
lýkur í i8 galleríi um helgina. Þetta
er önnur sýning Örnu Óttarsdóttur
í i8 og inniheldur ný vefnaðar-
verk sem listamaðurinn hefur ofið
á vinnustofu sinni undanfarna
mánuði. Arna sækir innblástur úr
minnisbókum sem geyma hvers-
dagslegar hugdettur og teikningar
listakonunnar.
Með því að umbreyta skissum í
vefnað beislar hún líf lega og per-
sónulega orku sem skín í gegn í
verkunum á sýningunni. Nýju
verkin blanda saman abstrakt og
fígúratívum þáttum, á sama tíma
og þau kanna eðlislæga eiginleika
efniviðarins.
Arna Óttarsdóttir (f. 1986) býr og
starfar í Reykjavík. Árið 2021 voru
verk hennar hluti af sýningunni Iða-
völlur: Íslensk myndlist á 21. öld í
Listasafni Reykjavíkur og einkasýn-
ing hennar Allt er frábært var haldin
í Nýlistasafninu í Reykjavík árið
2019. Verk hennar hafa verið sýnd á
alþjóðlegum vettvangi, meðal ann-
ars á Nordatlantens brygge í Kaup-
mannahöfn, Turner Contemporary
í Margate, Åplus í Berlín og Cecilia
Hillström Gallery í Stokkhólmi. n
Sýningarlok hjá
Örnu Óttars í i8
tsh@frettabladid.is
Dagana 24. til 26. nóvember verður
haldið málþing og viðburðir í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi,
undir yfirskriftinni KvikMyndlist.
Umræðuefni málþingsins eru
mörk kvikmynda og lista, varð-
veisla og miðlun kvikra og staf-
rænna miðla á söfnum og þær
áskoranir sem felast í því. Ráð-
stefnan tengist safneign og sýn-
ingarhaldi í Listasafni Reykjavíkur,
sem og fyrirhugaðri verðlauna-
hátíð Evrópsku kvikmyndaverð-
launanna í desember.
Listasafn Reykjavíkur varðveitir
nú viðamikið safn kvikra verka
og ekki úr vegi þegar slík hátíð
kemur til landsins að líta inn á við
og skoða þær tengingar sem liggja
fyrir.
Að sögn Listasafnsins er mikill
fengur í að fá bæði fagaðila um
varðveislu kvikmynda og lista-
menn til að sýna afrakstur vinnu
sinnar og hvetja til frekari umræðu
og rannsókna á þessu sviði.
Á meðal þeirra sem koma fram
á málþinginu eru Sigurður Guð-
jónsson listamaður, Gunnþóra
Halldórsdóttir, verkef nastjór i
varðveislu og rannsókna hjá Kvik-
myndasafni Íslands, Jina Chang
hjá Nasjonalmuseum í Osló, Jos-
hua Reiman myndlistarmaður og
Ásta Fanney Sigurðardóttir, skáld
og myndlistarmaður. n
Málþing um mörk
kvikmynda og lista
Verkið Tape eftir Sigurð Guðjónsson.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
FRÍ HEIMSENDING INNANLANDS
Á ÖLLUM BÓKUM Í VEFVERSLUN
ALLA HELGINA 25.–28. NÓV.
Gerðu jólainnkaupin snemma í ár á forlagid.is!
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 2022 Menning 43FRÉTTABLAÐIÐ