Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 68

Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 68
Ása Tryggvadóttir er ein þeirra nítján listamanna sem sýna verk á sýningunni Leir á loftinu á Hlöðulofti Korpúlfsstaða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK MYNDLIST Leir á loftinu Samsýning Leirlistafélags Íslands Hlöðuloftið á Korpúlfsstöðum Listamenn: Þórdís Sigfúsdóttir, Þórdís Baldursdóttir, Unnur S. Gröndal, Ólöf Sæmundsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Katrín Valgerður Karlsdóttir, Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir, Hrönn Waltersdóttir, Halldóra Hafsteinsdóttir, Hafdís Brands, Guðný Margrét Magnúsdóttir, Glytta, Daði Harðarson, Auður Inga Ingvarsdóttir, Auður Gunnur Gunnarsdóttir, Arnfríður Lára Guðnadóttir, Arnbjörg Drífa Káradóttir, Ása Tryggvadóttir, Aldís Yngvadóttir. Aðalsteinn Ingólfsson Nú þegar ýmsir leiðandi leirlista- menn okkar eru annað hvort horfnir til feðra sinna eða hafa dregið saman seglin, er löngu kominn tími til að taka púlsinn á leirlistinni í landinu, gaumgæfa hvað yngri kynslóðin hefur fyrir stafni og hvaða mark- mið hún hefur. Yfirlitssýningar á leirlist hafa verið fátíðar síðustu ár, kannski vegna þess að fyrir áhuga- leysi safnanna hefur það dæmst á leirlistafólkið sjálft að efna til slíkra sýninga. Það gefur auga leið að það ágæta fólk hefur margt þarfara að gera og hefur þar að auki takmarkað bolmagn til að sinna slíkum verk- efnum. Auk þess er umdeilanlegt hvort fagfólk í greininni á yfirhöfuð að vera að leggja hvort tveggja list- rænt og sögulegt mat á verk kollega sinna. Listasöfnin eða Hönnunar- safnið væru hinn eðlilegi vettvangur slíkra úttekta. Allt um það hafa leirlistamenn nú tekið sig saman og sett saman stóra sýningu á Hlöðulofti Korpúlfsstaða, rýminu þar sem listamenn hafa haldið svokallaðar „messur“ sínar á síðustu árum og stendur sýningin til 27. nóvember. Og viti menn, þessi sýning reynist helst til lítil fyrir þetta gímald sem Hlöðuloftið er. Verkin, sem mörg hver eru ekki mikil um sig, nánast týnast út við veggi eða úti í hornum eða eru borin ofurliði af dáldið groddalegum arki- tektúrnum á staðnum. Heildarsvip sýningarinnar hefði þurft að móta með markvissari hætti, til dæmis að koma henni allri fyrir á misjafnlega háum stöllum miðsvæðis. Einhvers konar sýningarskrá hefði vel mátt fylgja með. Staða mála í leirlistinni Því er hún soldið hrá og ómarkviss, þessi sýning. Engu að síður, þegar áhorfandinn er búinn að átta sig á henni, er á henni að finna ýmsar vísbendingar um stöðu mála í leir- listinni eins og hún blasir við í dag. Ég held að við séum í miðju milli- bilsástandi. „Stóru“ nöfnin sem áður báru uppi íslenska leirlist, fólk eins og Haukur Dór, Kogga, Elísabet Haraldsdóttir, Jónína Guðnadóttir, Kristín Ísleifsdóttir og Ólöf Erla Bjarnadóttir, svo nokkur dæmi séu nefnd, eru hér fjarri góðu gamni. Því er þessi sýning óneitanlega ekki eins rismikil og ýmsar fyrri yfirlitssýningar. Það vantar sterkan karakter, einn eða f leiri, til að gefa tóninn. Ágætlega menntað fagfólk Hins vegar er lítið út á sýnend- urna 19 að setja, svona á heildina litið. Það er upp til hópa ágætlega menntað fagfólk, sem hefur fullt vald á hvort tveggja þeim klassísku vinnuaðferðum sem það aðhyllist eða frjálslegri formgerð. Og til- raunir sýnenda með glerjunga eða aðskiljanlegar áferðir gera víðast hvar í blóðið sitt. Sérstaklega þóttu mér glerjungar Kristbjargar Guð- mundsdóttur glæsilegt handverk. Fulltrúi klassíska viðhorfsins, hreinræktuðu nytjalistarinnar, gæti sem best verið eini karlmaðurinn á sýningunni, Daði Harðarson, en ef nefna mætti leirlistamenn á skúlp- túrvængnum eru þær einna mest áberandi Arnbjörg Drífa Káradóttir og Unnur S. Gröndal. Þetta fólk þarf hins vegar að fá f leiri sýningartækifæri og þénugri sýningaraðstöðu til að það fái notið sín til fulls. Þá efa ég ekki að þau fræ sem hér er sáð muni bera ávöxt. n NIÐURSTAÐA: Ágætt fagfólk á fremur rislítilli sýningu. Fremur rislítil leirlistasýning BÆKUR Gættu þinn handa Höfundur: Yrsa Sigurðardóttir Útgefandi: Veröld Fjöldi síðna: 335 Björn Þorláksson Það þarf ekki að hafa mörg orð um flinkheit Yrsu Sigurðardóttur sem rithöfundar. Hún opnar bækur sínar jafnan með áhugaverðum hætti og er furðu fljót að klófesta áhuga les- andans. Í nýju bókinni, Gættu þinna handa, fer lesandinn úr í Vest- mannaeyjum í blábyrjun. Líkt og jafnan hefur maður ekki lesið lengi er válegir atburðir verða. Vina- hópur, sem sumpart er aðeins of steríótýpískur, kemur saman vegna útfarar. Líkt og háttar svo oft til hjá Yrsu, finnur farangur fortíðarinnar sér leið inn á færibönd hins óupp- gerða – og þvílíkt uppgjör! Þess vegna elskum við Yrsu Mér fannst gaman að endurnýja kynni við gamla vini úr fyrri verk- um Yrsu og mörg mannleg smá- myndin er meistaralega gerð í ansi flóknu plotti. Oft hefur Yrsa valdið vel að halda mörgum boltum á lofti og ekki síst í síðustu bók sinni, Lok, lok og læs. Þá var Yrsa forspá og framsýn, var í raun á undan samtíma sínum í því að spyrja áleitinna spurninga um blóðmerahald svo eitt sé nefnt. Hún hefur oft náð að skrifa bæði samfélags- og spennusögu í sömu bókinni. Þess vegna elskum við bækurnar hennar. Framleiðslukrafan yfirsterkari? En í Gættu þinna handa hald- ast ekki allir boltarnir á lofti og kannski eru þeir of margir. Kannski er samfélagssagan pínu- lítið banal á sama tíma. Það ber á klisjum og grunnum lausnum sem þó eru ekki slíkur ágalli að yndislesturinn fari forgörðum. En bókin mun ekki falla í hóp þeirra bestu frá Yrsu, enda ekki hægt að gera kröfu um að svo af kastamiklir höfundar hitti allt- af í mark. Það má spyrja hvort fram- leiðslukrafan sé of mikil, hvort Gættu þinna handa hefði getað orðið mun betri bók með árs yfirlegu í viðbót. En það breytir ekki því að sú sem er eins flink og Yrsa gleður lesenda- hóp sinn í hvert skipti sem hún stígur fram í nýju verki. Spennan mátt vera meiri Lesendahópur Yrsu er breiður en hann er líka kröfuharður og það er af væntumþykju sem verður að segja það eins og er að f lækj- urnar í bókinni fá ekki allar far- sæla úrlausn. Oft hefur Yrsa komið manni á óvart og allir þræðir fallið saman í sögulok. Gættu þinna handa er ekki besta dæmið um hæfileika höfundar. Mér fannst á köflum eins og tveir höfundar væru að skrifa kaflana til skiptis. Annar væri með allt á hreinu en hinn staddur á hringleika- sviðinu í beinni útsendingu, pínu- lítið óöruggur, kannski með það í huga að atriðið væri e k k i a l v e g t i lbú ið. Það v a n t a r l í k a meiri spennu í þessa bók , hæ f i lei k a r n i r eru til staðar en minna fer fyrir snilldinni. Það sem tekst b e s t e r s a g a meinafræðings- ins Iðunnar en leitandi spurning er hvor t fæk ka hefði mátt útvið- um og halda sig meira við innviði sögunnar – ef svo mætti að orði komast. Enginn er óskeikull. Bíð spenntur næstu bókar frá Yrsu. n. NIÐURSTAÐA: Fer vel af stað en lausn flækjunnar reynist ekki full- komin. Freistandi að spyrja hvort sagan hefði þurft betri yfirlegu. Spennan hefði mátt vera meiri, en sérhver bók Yrsu er þess virði að lesa hana. Margir boltar á lofti í of hröðum leik Yfirlitssýningar á leirlist hafa verið fátíðar síðustu ár, kannski vegna þess að fyrir áhugaleysi safn- anna hefur það dæmst á leirlistarfólkið sjálft að efna til slíkra sýn- inga. AUGLÝSING UM SKIPULAG Í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Galtarholt II – minnkun frístundabyggðar (F32) Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. nóvember 2022 eftirfarandi tillögu að óverulegri breytingu á landnotkun í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is. Vakin er athygli á málskotsrétti skv. 52. gr. skipulagslaga og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda. Sveitarstjórn Borgarbyggðar Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga og 1. mgr. 41. gr. sömu laga er hér með auglýst tillaga að breytingu Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð. Víðines í landi Hreðavatns – aðalskipulagsbreyting, Frístundabyggð (F5) breytt í íbúðabyggð (Í8) Íbúðasvæði Víðiness að Hreðavatni (áður Frístundabyggð að Hreðavatni) - deiliskipulagsbreyting Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. september 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á landnotkun í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 og að breytingu deiliskipulags frístundabyggðar í Víðinesi í landi Hreðavatns frá árinu 2006 m.s.br. Ofangreindar tillögur eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 25. nóvember 2022 til og með 13. janúar 2023. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum til 13. janúar 2023. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is. Borgarbyggð, 25. nóvember 2022 Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar. 46 Menning 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.