Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 70
Bækur Kona / spendýr Ragnheiður Lárusdóttir Fjöldi síðna: 57 Útgefandi: Bjartur Kristján Jóhann Jónsson Ljóðabókin Kona/spendýr fellur í f lokk með pólitískum baráttu­ ljóðum. Ljóðmælandanum er heitt í hamsi og hann freistar þess að binda harm sinn og reiði í ljóð­ rænan texta, tengja sig þannig lesendum sem líta heiminn svip­ uðum augum og opna augu þeirra sem gera það ekki. Baráttuskáld benda á að stétt þeirra, kynþáttur, þjóð, kyn, aldurshópur eða einhver minnihlutahópur, hafi verið og sé beittur órétti. Hér er sjónum beint að kvenkyninu og margvíslegum yfirgangi karlkynsins. Erfitt yrkisefni Ljóðmælandinn í þessari bók stendur í nokkurri fjarlægð frá efn­ inu, talar í þriðju persónu og er „til vitnis“ um skarðan hlut kvenna. Oft v irðist tex t inn samt byggður á eigin reynslu og nátengdur ljóð­ mælanda. Hann segir frá tilfinn­ ingum sem eng­ inn annar gæti verið til frásagnar um. Sjónarhorn sögumanns sem vitnis gerir ljóðin óp er s ónu leg r i en ja f n f r a mt almennari. V ö l d k a r l ­ manna og yfir­ gang ur gag n­ va r t konu m , fyrr og síðar, er nú til dags nokkuð erfitt yrkisefni. Allt frá bráðskemmt ileg u upphlaupi Rauðsokka fyrir rúmri hálfri öld hefur þetta umræðuefni verið fellt í sögur, leikrit og ljóð. Orð og umræðuefni eiga það til að dofna ef mjög oft er farið í gegnum þau á svipaðan hátt. Ragnheiður segir í bók sinni að konum sé haldið niðri í okkar forherta karlasamfélagi og það er laukrétt. Ef einhverjir þykj­ ast ekkert skilja er það ekki trú­ verðugt. Hinir, sem vilja jafnrétti, eru í stöðu Sýsifosar. Steinninn veltur alltaf aftur niður brekkuna. Hvað er þá til ráða? Hvern­ ig er hægt að segja frá k úg un, hörk u og samsærum á ein­ hvern þann hátt að þetta birtist (helst) öllum í nýju ljósi og verði að her­ hvöt? Baráttuljóð fyrir femínista Í bókinni er kaf laskipting sem aðgreinir kvæðin ekki vel að mati undirritaðs. Lokakaflinn skilur sig að vísu vel frá hinum. Í þeim eru kvæði um það sem konur þurfa að gera til að fá viðurkenningu. Þeim er gert að „leysa óleysanlegar þrautir“. Stelpan og amma hennar standa bróðurnum og afanum miklu framar og eru samt kallaðar veikara kynið og ljóðmælandinn vill frekar vera strákur. Konan fæðir börnin, stendur undir vel fer ð f jöl­ skyldunnar og hlúir að heim­ ilismönnum og hún þarf stöðugt að berjast gegn ofríki og yfir­ gangi. Yfir henni vofir kynferðis­ leg misnotkun og árásir. Eitt ljóð í bókinni lætur að því liggja að gaman geti verið að vera kona. Það er ljóst að ljóðabókin Kona/ spendýr mótast af kvenlegri reiði í garð karllægs samfélags. Þetta eru baráttuljóð fyrir femínista, til hvaða kyns sem þeir telja sig. Baráttuljóð sem knúin eru áfram af eindreginni réttlætiskennd eiga það til að leggja minna en ella í ljóðrænan texta. Hér eru þó ýmis dæmi um ljóðræn sniðugheit. Til dæmis mætti nefna stúlkuna sem býr í föðurlandi en talar móður­ mál, stúlkuna sem bakar sér typpi þegar mamma bakar brauð, kon­ una sem „nærir barnið og nær verð­ ur ekki komist“. Allir á heimilinu hafa verið í líkama hennar, hún er „sjálfsköpuð kona á eigin dúkkuheimili.“ n NIÐURSTAÐA: Femínísk ljóðabók sem gefur karl- mönnum engin grið. Það er ljóst að ljóða- bókin Kona/spendýr mótast af kvenlegri reiði í garð karllægs samfélags. Þetta eru baráttuljóð fyrir femín- ista. Kristján Jóhann Jónsson Þrátt fyrir að Nýr heimur sé fjórða útgáf- an af Ég býð mig fram er byrjendabragur yfir sýningunni. Sigríður Jónsdóttir Ljóð um ranglæti Kona/spendýr er þriðja ljóðabók Ragnheiðar Lárusdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Leikhús Ég býð mig fram 4 - Nýr heimur Tjarnarbíó Leikstjóri: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir Flytjendur: Anais Barthe, Annalísa Hermannsdóttir, Berglind Halla Elíasdóttir, Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Júlíanna Ósk Hafberg, Thomas Burke, Tinna Þorvalds Önnudóttir Aðstoðarleikstjóri: Ellen Margrét Bæhrenz Tónskáld: Annalísa Hermannsdóttir Leikmynda- og búningahöfundur: Sara Hjördís Blöndal Ljósahönnuðir: Hafliði Emil Barðason og Juliette Louste Sigríður Jónsdóttir Nýlega var fjórða útgáfan af Ég býð mig fram, hugarfóstri sviðslistakon­ unnar og leikstjórans Unnar Elísa­ betar Gunnarsdóttur, frumsýnd í Tjarnarbíó. Sýningin er auglýst sem „örverkaleiksýningin þar sem leikstjórinn Unnur Elísabet býður listamönnunum úr ólíkum áttum til samstarfs“ og ber undirtitilinn Nýr heimur. Áhorfendur mæta sýningunni um leið og gengið er inn í Tjarnar­ bíó. Útstillingarnar í anddyrinu eru fagurfræðilega forvitnilegar, glimm­ er og gamansemi ráða þar ríkjum, en virka sem skraut frekar en efnis­ leg viðbót við sýninguna. Rof er á milli fagurfræðinnar í forsalnum og á sviðinu. Glys og litadýrð tekur á móti gestum en síðan tekur við fremur dapurlegur samtíningur inni í sal. Sviðið er minnkað með stóru tjaldi og sýningin verður þannig frekar f löt fyrir utan ein­ staka uppbrot. Sara Hjördís Blön­ dal hannar leikmynd og búninga, en búningarnir gefa sýningunni lit í annars einfaldri leikmynd. Byrjendabragur yfir sýningunni Þrátt fyrir að Nýr heimur sé fjórða útgáfan af Ég býð mig fram, er byrjendabragur yfir sýningunni. Hér eru á ferðinni ýmsar vanga­ veltur um tilgang lífsins en þær rista sjaldan djúpt eða eru nægilega fyndnar til að hengja heila sýningu á. Fyrsta atriðið snýst um tvær mjög ólíkar frásagnir tveggja kvenna um að koma nýjum einstaklingi inn í þennan heim og eitt af seinni atrið­ unum, um hvað gæti mögulega gerst ef við hefðum bara tíu mínútur eftir af tilvistinni á þessari jörð. Inn á milli eru ýmis atriði þar sem aðrir þátttakendur í sýningunni velta fyrir sér tjáningu okkar í hinu daglega lífi, sorg og erfiðleikum. Yfirleitt eru atriðin of löng fyrir hugmyndirnar sem þau byggja á og fjara þannig út. Langbesta atriði sýningarinnar er samtal hópsins við Guð, eða allavega guðlega veru, leikna af Bryndísi Ósk Þ. Ingvars­ dóttur. Hún kemur með nýja orku inn í verkið og er keyrð inn á litlum krana. Atriðið inniheldur pólitík, húmor og afslappaða nálgun, eitt­ hvað sem sárlega vantaði í sýning­ una yfirhöfuð. Skortir skýrari sýn Unnur Elísabet er manneskjan á bak við þessa hugmynd sem á að setja sviðslistafólk í forgrunn, en setur sjálfa sig iðulega fremst á svið, þetta er ekki vettvangur fyrir annað lista­ fólk heldur oftar en ekki verkfæri fyrir listakonu til að staðsetja sjálfa sig í verkum annarra. Seinna í kynn­ ingartextanum fyrir Nýjan heim stendur: „Útkoman er óvenjuleg leikhúsupplifun, suðupottur nýrra hugmynda, eins konar smárétta­ veisla fyrir áhorfendur.“ Lítið fer fyrir frumlegu smáréttaveislunni. Þrátt fyrir frábæra grunnhugmynd og áform um framkvæmd skortir Ég býð mig fram 4 ­ Nýr heimur, sterkari listrænan metnað, skýrari sýn á samvinnu listafólks sem að sýningunni kemur og djörfung til að ögra eða skemmta áhorfendum almennilega. n NIÐURSTAÐA: Illa farið með góða hugmynd. Samhengislítil samsýning Gagnrýnandi Fréttablaðsins var lítt hrifin af fjórðu útgáfu Ég býð mig fram, eftir Unni Elísabetu Gunnarsdóttur. MYND/LEIFUR WILBERG ORRASON Fjöldi listamanna kemur að sýningunni Ég býð mig fram 4 - Nýr heimur eftir Unni Elísabetu Gunnarsdóttur. MYND/LEIFUR WILBERG ORRASON 48 Menning 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.