Fréttablaðið - 25.11.2022, Page 76
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
KEYPTUM ÓSKASKRÍNUM7% AFSLÁTTUR EF KEYPT
ERU TVÖ EÐA FLEIRI10%
SVARTUR FÖSSARI
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
Fallegar rauðar varir, svört
augnlína og gerviaugnhár eru
klassískur hluti af hátíðar-
dressinu, en langt frá því að
vera eina leiðin sem hægt er
að fara. Það eru margar leiðir
til að farða sig í hátíðargírinn
og hver og ein vara hefur
fjölda spennandi eiginleika.
Við lítum á nokkur dæmi.
ninarichter@frettabladid.is
Það er hávetur, þú hefur ekki séð
til sólar svo mánuðum skiptir og
desembermataræðið einkennist af
salti og sykri. Svefninn mætti vera
betri og þetta Netf lix-maraþon
sem þú tókst í gær skilar sér í bláum
baugum. En það eru tíu veislur fram
undan, þú ert að fara að hitta fullt af
fólki sem þú hittir einu sinni á ári og
það í sparifötunum.
Við viljum gjarnan líta vel út í lok
ársins og það er gaman að klæða sig
upp, sérstaklega þegar jóla- og ára-
mótaveislur síðustu tveggja ára hafa
verið blásnar af. Flauelskjólar og
lakkskór eru rifnir innan úr innstu
myrkrum fataskápsins og nú skal
dansað, borðað, sungið og stillt upp
fyrir myndatökur.
Falleg förðun setur punktinn yfir
i-ið í hátíðleikanum. Það má finna
ákveðin stef í jólaförðun á milli ára,
svokallaða klassíska jólaförðun.
Hér má fá innblástur en hér eru
engar reglur – eina reglan er að láta
sér líða vel og gera það sem manni
sýnist. Förðun er skemmtilegur og
skapandi tjáningarmáti sem öll kyn
geta leikið sér með. n
Fjör og fegurð í
hátíðarförðun
Varalitur
Varalitur er oft fyrsta förð-
unarvaran sem fólk prófar,
en þrátt fyrir það hræðast
margir að nota liti og fara út
fyrir þægindarammann. Sé
ætlunin að fara í rauðan lit er
gott að fá ráðgjöf í snyrti-
vöruverslun þar sem grunn-
tónn getur ráðið miklu um
útkomuna. Gott er að gæta
jafnvægis milli augnförð-
unar og varalitar og margir
förðunarfræðingar telja að
sé augnförðunin dramatísk
sé gott að halda varalitnum
hlutlausari, og öfugt.
Grunnur
Grunnurinn að jólaförðuninni
þinni er áferðarfalleg húð. Áferðin
fæst með jafnvægi og húðin
verður oft þurr á veturna. Það er
því gott að dekra húðina svo-
lítið, nota rakakrem og jafnvel
skella á sig rakagefandi maska
kvöldið áður en halda skal til
veislu. Fljótandi meik getur verið
sniðugt, sem er auðvelt að blanda
og ágætt að nota til þess svamp
eða bursta. Passið bara að áhöldin
séu hrein svo að þið séuð ekki
að dreifa bakteríum á
húðina. Það er gott
að fara varlega
í púðrið, sem
getur ýkt
ásýnd
þurrks.
Augnskuggi
Ef þú vilt bæta smá lit við
förðunina, skaltu íhuga að nota
augnskugga. Þegar þú ert að velja
rétta litinn fyrir augnförðunina
ættir þú að velja lit sem passar
við húðlitinn þinn og dregur fram
augnlitinn. Gráir og brúnir tónar
klæða alla. Glitrandi augnskuggar
eru vinsælir í kringum hátíðirnar
og halda vinsældum sínum ár eftir
ár. Svokallað smokey-útlit er líka
vinsælt á þessum árstíma, kvöld-
förðun sem einkennist af dökkum
máðum lit og þar er lykillinn að
blanda og blanda svo meira.
Eyeliner
Eyeliner, augnlína sem gegnir
enska heitinu í daglegu tali,
er fasti í klassískri jólaförðun.
Eyeliner kom til baka í hátískuna
af fullum krafti á árinu, bæði í
svartri og mjög ýktri útgáfu í anda
Juliu Fox, en var líka áfram vinsæll
í litríkum útgáfum. Ef þið eruð að
prófa eyeliner í fyrsta sinn
er gott að gefa sér tíma
og jafnvel horfa á
nokkur kennslu-
myndbönd.
Mörgum
finnst auð-
veldara að
byrja við
augn-
beinið og
vinna sig
að auganu.
Maskari
Maskari er ein vinsælasta förð-
unarvaran og miðar að því að ýkja
útlit augnháranna, lita þau, lengja
og þykkja. Maskari rammar inn
útlitið og er bókstaflega ómiss-
andi þegar jólaförðunin er annars
vegar. Það er hægt að fá bursta
af ýmsu tagi og meðal annars eru
til trefjamaskarar sem lengja.
Það eru til vatnsheldir maskarar,
ofnæmisprófaðir maskarar og
meira að segja maskarar með
glimmeri. Dökkbrúnir litir geta
gefið náttúrulegra og mildara
útlit á meðan svartir eru ögn
dramatískari.
Augnhár
Gerviaugnhár hafa náð gríðar-
legum vinsældum á seinni árum
og gera mikið fyrir hátíðlega
jólaförðun. Það er örlítil kúnst
að festa þau á sig og gott er fyrir
byrjendur að hafa nokkur atriði
í huga. Í fyrsta lagi þurfa augn-
hárin að passa og það er gott að
klippa þau til svo að þau henti
stærð augnsvæðisins. Eftir að
límið er borið á er gott að leyfa
því að þorna stutta stund. Hægt
er að kaupa „stök“ augnhár og
auðveldara er að koma þeim fyrir
og fá náttúrulegt útlit. Þau allra
hörðustu fara í augnháralenging-
ar á snyrtistofum. Möguleikarnir
eru næstum endalausir.
54 Lífið 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ