Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 82
Uppáhalds Bítlalag
Heiðu útgefanda er
Live and let die.
Heiða Björk
Þórbergsdóttir
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ný bók um Bítlana er komin
út í íslenskri þýðingu. Bókin
sem er í myndasöguformi er
eftir finnska teiknarann og
rithöfundinn Mauri Kunnas,
og þýdd úr frummálinu. Bæði
útgefandi og þýðandi hafa
alist upp við tónlist Bítlanna
og sjá þá ef til vill í örlítið
breyttu ljósi eftir lesturinn.
ninarichter@frettabladid.is
Bókaútgáfan Krónika gefur bókina
út. Heiða Björk Þórbergsdóttir for-
leggjari segir að aðdragandann
megi rekja til Ólafs Páls Gunnars-
sonar útvarpsmanns á RÚV. „Hann
fékk senda til sín enska útgáfu af
bókinni frá útvarpsmanni sem
vinnur í Finnlandi, sem gaf honum
ensku bókina,“ segir Heiða. „Hann
ætlaði upphaf lega að þýða hana
sjálfur, en þegar við höfðum sam-
band við forlagið úti í Finnlandi
vildu þau að við þýddum hana úr
frummálinu. Þá heyrði ég í Erlu,“
segir hún.
Lennon ofdekraður leiðindapúki
Að sögn Heiðu hafa ekki komið út
margar teiknimyndasögur sem
sérstaklega eru ætlaðar fullorðn-
um. „Ég er alin upp við Bítlana. Ég
vissi af fimmta Bítlinum sem hafði
verið þarna með þeim, en ég vissi
til dæmis ekki hvernig Ringo Starr
kom inn í hans stað. Hann var þarna
eldri og búinn að vera að vinna með
öðrum hljómsveitum og annað,“
segir Heiða, um þann fróðleik sem
finna má á síðum bókarinnar.
„Ég vissi heldur ekki að John Len-
non hefði verið svona ofdekraður
leiðindapúki og frekja. Þegar maður
er búinn að lesa þetta fær maður
aðra sýn á hann. Paul McCartney
var síðan svona draumabarnið,
draumur foreldra,“ segir útgefand-
inn.
Heiða svarar játandi, aðspurð
hvort hún sjái sveitina í nýju ljósi
eftir lesturinn. „Ég sé harkið hjá
þeim þessi fyrstu ár. Hvað þeir voru
þrautseigir og hvað þá langaði að
slá í gegn. Það var aðallega John
Lennon sem þráði hvað heitast að
verða frægur og geta lifað á tónlist.
Svo voru þeir mjög heppnir með
umboðsmanninn sem þeir fengu.
Hann lagði mikið í sölurnar fyrir
þá til að koma þeim á kortið.“
Líka fyrir þá sem lesa ekki
Heiða segist vera í skýjunum með
útkomuna. „Ég er rosalega ánægð
með að hafa fengið þessa bók,“ segir
hún. Brotið á bókinni er stærra en
venjuleg teiknimyndasaga. Það er
Júní 1962
Piltarnir sneru aftur heim frá Hamborg og
í júníbyrjun héldu þeir vongóðir til London.
En John, Paul, George, Pete og Neil ráku sig
á sama vandamál og ferðamenn etja við
enn þann dag í dag: Það er snúið að finna
hljóðupptökuverið við Abbey Road, af því að
það lítur ekkert út eins og hljóðupptökuver.
Þetta á að vera
einhvers staðar hér.
Þeir eru ekki sem verstir, en þessi lög ná
aldrei inn á vinsældalistana. Og hver gæti
verið forsprakkinn - Cliff Richards þeirra
Bítlanna?
Strákskömmin.
Ég er hrifinn af
þessu bindi!
Það var óneitanlega skrýtið að standa í stóru, tómlegu
hljóðveri og reyna að komast í rétta stemningu. George
Martin bað þá að spila hin og þessi lög til að sjá hvað
hver og einn þeirra kynni.
Hérna … viljið þið
ekki spyrja um
neitt? Er eitthvað
sem ykkur líst
ekki á?
Bindið þitt, svona
til að byrja með …
Þessi hnyttna athugasemd
George hefur haldið áfram
að framkalla hlátrasköll
í hálfa öld og er alltaf
jafn bráðfyndin …
Í það minnsta braut þetta
ísinn og var upphafið að
stórgóðu samstarfi
George Martin og Bítlanna.
Þeir fundu stúdíóið þó að lokum. George Martin virtist ágætis
náungi, kannski helst
til skólastjóralegur.
Hann sýndi piltunum
búnaðinn og útskýrði
tæknilegu hliðar
upptökunnar fyrir
þeim. Þeir hlustuðu
á hann en virtust
fremur áhugalausir
og þegjandalegir.
Á hvað eruð
þið að glápa?
Við erum ekki orðnir
frægir enn!
Þetta eru hljóðnemarnir. Þeir eru
til þess að syngja í, alveg óþarfi
að hrópa!
Jamm.
Vorið 1962
69
Ný Bítlabók gefur
dstæ una af gla smy d
Uppáhalds Bítlalag
Erlu þýðanda er Happi
ness is a warm gun.
Erla Elíasdóttir
Völudóttir
rosalega margt fullorðið fólk í
dag sem les ekki. Þetta er samt
bók fyrir þá sem lesa ekki og
eiga allt. Þú lest þetta alveg þó
að þú sért ekki að fara að lesa
þykka skáldsögu,“ útskýrir
hún.
Erla Elíasdóttir Völudóttir
þýðandi sneri bókinni úr
finnsku yfir á íslensku. Erla
segist vera gamall Bítlaaðdá-
andi, en þó sé langt síðan
hún hlustaði á bandið með
virkum hætti. „Ég hlustaði
samt mjög mikið á þá sem
krakki og unglingur,“ segir
hún.
Erla segir að þó að hún
hafi hlustað mikið á tónlistina
hafi hún aldrei leitast sérstaklega
eftir að verða sérfræðingur í sögu
þeirra, en hún hafi þó haft grunn-
atriðin á hreinu. „Þessi bók fjallar
aðallega um tímabilið áður en þeir
meika það, og þegar bókinni lýkur
eru þeir á þröskuldi frægðarinnar.
Bókin segir frá uppvexti þeirra og
því þegar þeir fara til Hamborgar,“
segir þýðandinn.
Litríkt líferni í Hamborg
Að sögn Erlu er bókin hreint ekki
við hæfi ungra barna. „Í Bóka-
tíðindum er hún flokkuð sem eina
myndasagan fyrir fullorðna. Það er
ekki reynt að draga fjöður yfir líf-
erni þeirra í Hamborg, þeir voru á
útopnu þar,“ segir Erla og hlær. „Og
eins, hvernig þeir komu fram við
konurnar í lífi sínu, það er ekkert
verið að fegra það mikið.“
Erla segist vita meira
um persónulega sögu fjórmenn-
inganna eftir verkefnið. „Þessi bók
gefur andstæðu við glansmynd af
þeim, myndi ég segja. Svo reyndar
er heilmikill húmor í þessari bók og
rödd höfundar er svolítið opin með
að skálda í eyður. Þarna er margt sem
enginn veit hundrað prósent hvern-
ig fór fram. Þarna voru bara þeir á
staðnum og engar beinar heimildir
um hvernig allt fór fram,“ segir hún.
Höfundurinn er Mauri Kunnas,
sem Erla segir að sé einn frægasti
barnabókahöfundur Finna. „Hann
bæði teiknar og skrifar bækur og
þónokkrar bækur hafa verið þýddar
eftir hann á íslensku. Kannski ekki
nýlega heldur á níunda og tíunda
áratugnum. Bækurnar um Olla,
Polla og Alla og Börnin á Hvutta-
hólum, til dæmis,“ segir Erla. n
Í KVÖLD
FRÉTTAVAKTIN
ÍÞRÓTTAVIKAN MEÐ BENNA BÓ
EYFI +
KL. 18.30 og KL. 20.30
KL. 19.00 og KL. 21.00
KL. 20.00 og KL. 22.00
Léttöl
60 Lífið 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ