Sumardagurinn fyrsti - 18.04.1957, Qupperneq 5
SUMARDAGURINN FYRSTI
3
r*"
r
e
umcip-
Þegar sumarsól á fjöll
setur fyrsta sporið,
hún er að kalla ykkur öll
út í fagra vorið.
Hún á margan hýran dag
handa sinum börnum:
Svanaklið og lóulag,
Ijós á grund og tjörnum.
ísland á svo undurmargt
yndi til að veita
þeim, sem vilja vinna þarft,
vaskir drengir heita.
Út við strönd og uppí sveit
alltaf muntu finna
einhvern vœnan vaxtarreit
vinnu og leikja þinna.
Veiztu, að þín unga sál
á að lœra og skilja
barna, dýra, blóma mál,
boðorð Drottins vilja.
Gáðu þess, sem ólœrt er
eða stirf í munni.
íslands skóli er opinn þér
úti í náttúrunni. i;
^SicjurÉur (Si
maróáon
Þú átt enn þitt vaxfarvor
vona og sumargaman.
Vilji, drenglund, vit og þor
vaxi hjá þér saman.
Þú átt að bera sumarsól
söng og yl í bœinn,
þegar fönnin þekur hól,
þegar styttir daginn.
Láttu sól og Ijúfan blœ
leika um vanga bjarta.
Mundu, að geyma ísland œ
innst í þínu hjarta.
Þá mun hönd þín hög og góð
hlúa vexti og friði.
Alltaf vinna okkar þjóð,
alltaf verða að liði.