Fréttablaðið - 22.12.2022, Qupperneq 10
Axarárás við skóla
Þann 29. nóvember átti árás sér stað við Dalskóla
í Úlfarsársdal. Maður, sem er grunaður um að hafa
ráðast að fyrrverandi eiginkonu sinni með öxi, var
handtekinn í beinu framhaldi árásarinnar.
Konan var talsvert slösuð en ekki í lífshættu.
Málið snertir tvö börn í skólanum. Mörg vitni voru
að árásinni og þar á meðal voru börn.
Bankastræti Club
Stuttu fyrir miðnætti fimmtudagsins 17. nóvem-
ber réðst fjöldi karlmanna á þrjá menn á skemmti-
staðnum Bankastræti Club í Reykjavík. Myndband
af árásinni sýnir sautján grímuklædda menn
hlaupa niður í kjallara staðarins og gera árásina
áður en þeir komu sér á brott.
Brotaþolarnir þrír lifðu af, en virðast allir hafa
verið stungnir oftar en einu sinni, einn þeirra tólf
sinnum.
Rúmlega tuttugu hafa verið handteknir og að
minnsta kosti tíu úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna
málsins sem er rannsakað sem tilraun til manndráps.
Árásin átti sér eftirmála. Til að mynda var bensín-
og reyksprengjum kastað í íbúðarhús og á aðra
skemmtistaði. Þá voru óhugnanleg skilaboð í
dreifingu í kjölfar árásarinnar sem varð meðal annars
til þess að lögregla ákvað að hafa aukið eftirlit í mið-
borginni helgarnar eftir árásina.
Ólafsfjarðarmálið
Aðfaranótt mánudagsins 3.
október 2022 var karlmaður
stunginn til bana í íbúð á Ólafs-
firði. Fjögur voru handtekin
vegna málsins og áttu bæði hinn
látni og þau sem handtekin voru
dóma fyrir hin ýmsu brot að
baki.
Síðan hefur þeim öllum
verið sleppt úr haldi. Lengst var
í gæsluvarðhaldi maður sem
lögregla virðist telja að hafi átt í
átökum við hinn látna. Sá maður
segir að um slys hafi verið að
ræða. Þá hefur einnig komið í ljós
að hann var lengst í gæsluvarð-
haldi vegna annarra brota, ekki
vegna stungumálsins.
Hryðjuverkamál
Á blaðamannafundi lögreglu
fimmtudaginn 22. september
var tilkynnt að tveir menn, sem
höfðu verið handteknir daginn
áður, væru grunaðir um að skipu-
leggja hryðjuverk á Íslandi. Á
blaðamannafundinum sagði að
lögregla hefði með aðgerðum
sínum afstýrt hættuástandi.
Síðan hefur komið í ljós að
mennirnir framleiddu vopn og
íhluti í vopn með þrívíddarprent-
ara. Ríkislögreglustjóri þurfti
að vísa málinu frá þar sem nafn
föður hennar kom upp í rann-
sókninni í tengslum við vopna-
framleiðslu mannanna.
Í dómsúrskurði kemur fram að
í einkaskilaboðum sem menn-
irnir sendu sín á milli hafi þeir
talað um að fremja voðaverk, til
dæmis með því að keyra trukk í
gegnum hóp fólks og gera dróna-
árásir.
Auk þess hefur verið greint frá
því að mennirnir hafi talað sín
á milli um að drepa eða skaða
þekkta einstaklinga, líkt og ráð-
herrann Guðlaug Þór Þórðarson,
Gunnar Smára Egilsson stofn-
anda Sósíalistaflokksins, Sól-
veigu Önnu Jónsdóttur, formann
Eflingar, Björn Leví Gunnarsson,
þingmann Pírata, sem og aðra
fyrrverandi þingmenn flokksins.
Europol var fengið til að gefa
sitt álit í málinu og taldi að
mennirnir hefðu verið á barmi
þess að grípa til aðgerða og
fremja hryðjuverk á Íslandi.
Mennirnir hafa neitað sök
varðandi skipulagningu hryðju-
verka, en játað að hafa framið
vopnalagabrot. Þeim var sleppt
úr haldi á dögunum, eftir að hafa
verið í gæsluvarðhaldi í um það
bil þrettán vikur. Það gerðist í
kjölfar þess að ákæra var gefin út
í málinu, en lögmenn mannanna
hafa gagnrýnt að í henni sé ótil-
greint gegn hverjum og hvar þeir
hefðu ætlað að gera árásina.
Skotárás á Blönduósi
Á milli klukkan fimm og sex
aðfaranótt sunnudagsins 21.
ágúst átti sér stað skotárás í
einbýlishúsi á Blönduósi sem
orsakaði að tveir létu lífið og
einn slasaðist.
Skotmaðurinn var annar þeirra
látnu og er talið að hann hafi
brotist inn á heimilið og skotið
hjón. Konan lét lífið og maður
hennar slasaðist alvarlega.
Sonur hjónanna hefur fengið
stöðu sak bornings en hann
er talinn hafa orðið á rásar-
manninum að bana í kjöl far
á rásarinnar. Hann var gest-
komandi á heimili for eldra sinna
á samt barns móður og ungu
barni þeirra.
Skotmaðurinn var fyrrverandi
starfsmaður föðurins, en hann
hafði áður komið við sögu lög-
reglu þegar hann var tekinn fyrir
brot á vopnalögum fyrr í sumar
þegar hann mætti í garðinn fyrir
utan sama hús að áreita sama
fólk með skotvopn í hendi.
10 Fréttir 22. desember 2022 FIMMTUDAGURFréttablaðiðAnnáll sAkAMál Fréttablaðið 22. desember 2022 FIMMTUDAGUR