Fréttablaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Helga Soffía segir Jesú minna okkur á að vera eins og barn um jólin, að opna hjörtu okkar og óhrædd við að elska og vera elskuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Ef sá sem segist ekki trúaður en tekur upp hjá sjálfum sér að tala við aðra mann- eskju og biðja hana um að minnast barnsins síns í bæn, þá þykir mér það vera vitnisburður um mjög mikla trú. Ef hjarta þitt er tómt skaltu leggja litla Jesúbarnið inn í það tóm, rétt eins og þú leggur nýfætt barn í tóma vöggu, og leyfa því að vinna sitt verk í þínu hjarta. thordisg@frettabladid.is „Hann pabbi var ekkert sérstaklega mikill trúmaður. Hann var frekar leitandi, maður skynseminnar og virkilega klár kaupmaður. Mamma var hins vegar komin af prestum og virti trúna, siði hennar og venjur út í ystu æsar. Ég var því alin upp við venjulegan, íslenskan alþýðukrist- indóm þar sem partur af daglegum veruleika var að signa sig og fara með bænirnar,“ segir Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju og prófastur í Reykja- víkurprófastsdæmi vestra. Hún er mikil áhugamanneskja um trú og trúmál. „Ég hugsa oft hvort það hafði áhrif að vera alin upp af foreldrum þar sem annað var trúað en hitt ekki. Mér er minnisstætt þegar ég var á leið í munnlegt próf í latínu í MR. Ég gerði miklar kröfur til sjálfrar mín og vildi helst fá tíu. Fyrir bragðið var ég afar stressuð og það fór ekki fram hjá pabba. Þar sem ég sat við lesturinn sá ég litlu umslagi rennt undir hurðina. Í umslaginu var kort og á kortinu stóð: „Mundu bara, Helga mín, að gera það sem þú kannt. Það er að biðja. Þinn pabbi.“ Þetta fannst mér vera hans trú og á hans hátt. Hann minnti unglinginn sinn á það sem skipti mig máli, jafnvel þótt hann væri ekki trúmaður sjálfur,“ segir Helga Soffía, snortin af minn- ingunni. Vitnisburður um mikla trú Það var ekki efst á óskalista föður Helgu Soffíu að hún lærði til prests; frekar vildi hann að hún tæki við verslun sinni, íþróttavöruverslun- inni Hellas á Skólavörðustíg. „En það vildi ég ekki og fór að lesa guðfræði við Háskóla Íslands. Seinna, þegar pabbi var orðinn mikið veikur og barðist við krabba- mein, bað hann mig um að biðja fyrir sér. Það reynum við oft sem erum trúuð, og allir vita að prestar eru trúaðir, að fólk kemur og spyr: „Viltu biðja fyrir mér?“ Mér þykir það alltaf jafn fallegt, að vera treyst fyrir því að biðja fyrir heilsu, lækningu og lífi, og að fólk sem segir um sjálft sig að það trúi lítið, harla lítið, tæplega eða jafnvel ekki neitt, og lýsir því yfir eins og hverjum öðrum sannindum að það trúi ekki, geti samt komið seinna og sagt: „Viltu biðja fyrir barninu mínu?“ Ef það er ekki trú, þá veit ég ekki hvað trú er,“ segir Helga Soffía og bætir við: „Ef sá sem segist ekki trúaður en tekur upp hjá sjálfum sér að tala við manneskju og biðja hana um að minnast barnsins síns í bæn, þá þykir mér það vera vitnisburður um mjög mikla trú. Því þegar manneskja er komin í þrot þá stígur þessi bæn frá hjarta hennar og það ber vitni um afstöðu hennar til trúarinnar.“ Guð er í öllum trúarbrögðum Eftir að hafa lokið fimm ára guð- fræðinámi hélt Helga Soffía til Svíþjóðar þar sem hún nam trúar- bragðafræði við Uppsala-háskóla. „Sem mikil áhugamanneskja um trú hef ég líka áhuga á trúleysi og jafnvel vantrú. Það fylgir með pakkanum. Innan trúarbragða- fræði er grein sem heitir trúar- bragðasamanburðarfræði. Þar vildi ég finna þemu innan trúarbragða og kom í ljós að hinn trúaði, í öllum trúarbrögðum, er meðvitaður um að það er eitthvað fyrir ofan hann eða utan sem hann kann ekki alls kostar skýringar á, en reiðir sig á og treystir, og heitir Guð. Síðan taka trúarbrögðin við og útskýra þetta hvert á sinn hátt, en í trú er mann- legt, allsherjar element sem á við allt fólk, alls staðar í heiminum. Á byggðu bóli finnst ekki samfélag þar sem ekki er trú eða trúarbrögð, nema ef vera skyldi núna, í hinum gamla, kristna og vestræna heimi, því í gömlu Evrópu og Bandaríkj- um Norður-Ameríku er allt í einu eitthvað sem heitir engin trú, eða agnostic-ismi, sem er að trúa ekki á neitt og vilja ekki gera neitt nema það sem er hér og nú,“ útskýrir Helga Soffía. Hvað er að vera manneskja? Helga Soffía hefur verið starfandi prestur í 37 ár, þar af í Háteigskirkju í tæp þrjátíu ár. „Ég er stolt af því að vera krist- innar trúar og finn gríðarmikla lífsfyllingu fólgna í því að fá að þjóna sem prestur í öllum aðstæð- um lífsins hjá fólki. Ég er þakklát fyrir að það banki á dyrnar og leiti þjónustu prests á ögurstundum lífs þess, þegar gleðin er við völd og sorgin knýr dyra. Það eru einstök forréttindi og eftir því sem ég eldist í starfi verður það mér æ þýðingar- meira,“ segir Helga Soffía. Hún hefur mikinn áhuga á mannfólkinu. „Ef við horfum á reykvískan veruleika nú hitti ég gjarnan ungt fólk sem er að hasla sér völl í lífinu. Það kemur til mín með frumburð sinn og annað segir: „Ég vil skíra barnið, en hann ekki. Hvað eigum við að gera?“ Það er ný staða hjá okkur prestum að ræða þetta og áhugavert, í góðri merkingu, að unga fólkið flýtur ekki sofandi að feigðarósi heldur veltir fyrir sér sið og trú og hvort það eigi eða eigi ekki.“ Það að vera manneskja sé það stórkostlegasta sem hægt er að ímynda sér og ekki síst í samhengi við alheiminn. „En hvað er að vera manneskja?“ spyr Helga Soffía. „Snýst það bara um það sem ég geri ein í lífinu? Nei. Það snýst um að hitta aðrar manneskjur og bindast böndum við annað fólk, heima, í vinnunni, nágrenninu og áhugamálunum: og öll þau mörgu og spennandi úrlausnarefni sem við tökumst á við í lífinu. Við þurfum að muna hvað lífið er dýrmætt og hvað skiptir máli í samfélagi og sam- skiptum fólks. Þar skiptir trúin miklu máli í raun og veru. Ekki bara það að segja: „Ég trúi á Guð,“ eða: „Mér þykir svo gott að trúa því, það er svo gott fyrir minn innri mann.“ Það snýst líka um það sem einkennir samskipti okkar í sam- félagi manna og þar viljum við hafa kærleika, sanngirni, hjálpsemi, réttlæti og allt þetta góða í öndvegi; einmitt það sem trúin setur á odd- inn og hefur kennt okkur,“ segir Helga Soffía. Hún tekur fram að sá sem ekki trúir geti líka verið kærleiksríkur, sanngjarn og réttlátur. „En trúin vill að þessi gildi séu stunduð og ríkjandi í mannlegum samskiptum. Þess vegna höfum við í kirkjunni áhyggjur af því að lítil börn missi af tækifærinu til að hlusta á hið góða, fagra og fullkomna í kristinni trú. Við höfum áhyggjur af því að þau fái ekki rætur né þekki það sem til af þeim er ætlast sem manneskjur, að vera góðar, tillitssamar og hjálp- samar manneskjur og vera góð við allt fólk, hvar sem það er. Þessi dýrmætu siðferðislegu gildi eru einkenni kristinnar trúar og þau viljum við kenna börnunum.“ Áríðandi að opna hjarta sitt Hugur Helgu Soffíu dvelur við tvær kærar jólaminningar. Önnur er frá árinu 1965, þegar hún var fimm ára. „Þá var ég heima í stofu hjá mömmu, pabba og þremur systrum mínum og fékk stóran jólapakka frá frænkum mínum. Í honum var sendibíll og þegar ég opnaði bílinn ultu út úr honum dýrindis karamellur og súkkulaði. Ég dáist enn að hugvitssemi gömlu kvennanna og man hvað ég varð ofboðslega glöð,“ segir Helga Soffía og hlær við. Hún á líka hjartfólgnar jóla- minningar frá því hún var barn í Dómkirkjusókn. „Þá gengum við mamma saman tvær niður Túngötuna og sungum jólasálma í Dómkirkjunni á jóla- dag. Ég var bara lítið barn en man hversu sterk hughrifin voru í þessu Drottins húsi og allar götur síðan er Dómkirkjan mér afar kær því hún var kirkja fjölskyldunnar.“ Til að skynja boðskap jólanna segir Helga Soffía mikilvægt að opna hjarta sitt. „Á jólum er áríðandi að við opnum þetta blessaða hjarta okkar, því það er okkar innsti veruleiki í kjarna tilveru okkar sem mann- eskjur. En hvernig opnar maður hjarta sitt? Jú, með því að vera heið- arlegur og hlýr í samskiptum við aðra, að þora að hrósa og þakka, að elska og vera elskaður, og vera almennilegur. Langflest langar að vera mjög góð við aðra á jólunum og við finnum að við þurfum að vera það. Við opnum hjartað með því að verða eins og litlu börnin sem eru bara æðislega kát og segja það sem þeim býr í brjósti, og þetta með trúna vefst ekki fyrir litlum börnum. Það er Jesús sem minnir okkur á að vera eins og barnið, að opna hjörtu okkar og vera óhrædd við að elska og vera elskuð. Þetta segja jólin okkur.“ Eftir því sem árin færast yfir segist Helga Soffía verða æ meira eins og lítið barn á jólum. „Ég þarf ekki eins mikið og þegar ég var þrítug eða fertug og með aldrinum greinir maður kjarnann frá hisminu og verður passasamur um þann kjarna, leitar rósemdar og friðar og forðast ærustu, kapp- hlaup, deilur og æsing. Að vera í sátt við allt fólk og hlýr í viðmóti því eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Allt þetta örsmáa sem gerir svo mikið fyrir annað fólk, eitt hlýlegt orð, kveðja eða upphring- ing. Sjálf hef ég glímt við veikindi og veit að þegar maður er smár og ósjálfbjarga finnur maður hvað litlu hlutirnir, eins og fuglasöngur eða eitthvað fallegt sem augað nemur verður svo stórt og þýð- ingarmikið. En ef við höfum allt of mikið að gera förum við á mis við þessa fegurð lífsins og það verður sérstaklega sárt þegar um börnin okkar og barnabörn er að ræða: Þegar við gefum okkur ekki tíma til að njóta samverunnar því sam- skipti við fólk er það sem skiptir okkur mestu máli.“ Jesúbarnið lagt í tómt hjarta Í Háteigskirkju verður aftansöngur á aðfangadagskvöld, jólamessa á jóladag og fjölskylduguðsþjónusta á annan dag jóla. Séra Helga Soffía þjónar til altaris á aðfangadags- kvöld, annan í jólum og á gamlárs- dag. „Mér þykir aftansöngurinn alveg sérstaklega hátíðlegur, og að fá sungið Heims um ból með börnum og lesa jólaguðspjallið er þrungið raunverulegri gleði. Það er óumræðilega gefandi að kveðja kirkjugesti með handabandi eftir aftansönginn, þar sem allir eru prúðbúnir og eftirvæntingarfullir fyrir aðfangadagskvöldi; fólk sem ég hef skírt, fermt og gift, og kemur nú með börn sín í jólamessu. Það gleður okkur líka einstaklega að fólk skili sér nú aftur í kirkjurnar eftir að hafa þurft að loka þeim í tvö ár í heimsfaraldrinum. Kirkju- sókn hefur verið góð á aðventunni og fullar kirkjur úti um allt,“ segir Helga Soffía og hvetur sem flesta til að koma í kirkju á jólum. „Þá skiptir engu hvort fólk er trúað eða ekki því allir geta notið kyrrðarinnar, söngsins og fegurðar jólanna. Jólin eru svo upplagður tími til að skoða sjálfan sig. Að dvelja við minningar um æsku- jólin, hvenær maður var hamingju- samastur, hvað olli sárindum og hvað maður vill hafa öðruvísi. Að þora að opna hjarta sitt, og ef hjarta þitt er tómt skaltu leggja litla Jesúbarnið inn í það tóm, rétt eins og þú leggur nýfætt barn í tóma vöggu, og leyfa því að vinna sitt verk í þínu hjarta.“ n 2 kynningarblað 22. desember 2022 FIMMTUDAGURguðsþjónustur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.