Fréttablaðið - 22.12.2022, Síða 30
Valur Gunnarsson veltir fyrir
sér ólíkum sviðsmyndum
heimssögunnar í nýrri bók.
Hann segir eina leiðina til að
skilja söguna vera að velta því
fyrir sér hvernig hún hefði
getað orðið öðruvísi.
tsh@frettabladid.is
Sagnfræðingurinn og rithöfundur-
inn Valur Gunnarsson sendi í haust
frá sér bókina Hvað ef? þar sem
hann veltir vöngum yfir því hvern-
ig heimurinn hefði orðið ef ýmsir
atburðir heimssögunnar hefðu farið
á annan veg. Til dæmis hvað hefði
gerst ef Sovétríkin hefðu ekki fallið
1991 eða hvernig heimurinn hefði
orðið ef nasistar hefðu unnið seinni
heimsstyrjöldina.
„Þegar maður er búinn að lesa
yfir sig um seinni heimsstyrjöld-
ina þá fer maður að velta því fyrir
sér hvernig hlutirnir hefðu getað
farið öðruvísi og miklu verr, eins og
ég held að allir hljóti að gera á ein-
hverjum tímapunkti. Það er inni-
falið í allri sögu að það sem gerðist
hefði getað gerst á annan hátt,“ segir
Valur.
Lítil atvik geti skipt máli
Valur segist lengi hafa verið heillað-
ur af slíkum vangaveltum en það var
þegar hann stundaði ritlistarnám í
Belfast á Norður-Írlandi fyrir um
tuttugu árum sem hann komst að
raun um að þetta væri raunveruleg
bókmenntagrein.
„Þegar Sovétríkin féllu þá fannst
öllum það hafa verið óhjákvæmi-
legt, það var alltaf verið að tala um
stóru strauma sögunnar og að sög-
unni væri lokið en
það var samt enginn
sem sá fall Sovétríkj-
anna fyrir. Þetta er
svolítið þessi hug-
mynd um óreiðu-
kenninguna og hvað
lítil atvik geta skipt
miklu máli sem er
andstæðan við hug-
myndina um hina
stóru strauma, að
hlutirnir bara gerist
óhjákvæmilega og
andsvar við hug-
my ndu m f r æði-
manna á borð við
Francis Fukuyama
um 1. september
sem er svo augljóslega bara ein-
hverjir nokkrir einstaklingar sem
taka sig til og gera eitthvað sem
enginn sá fyrir,“ segir Valur.
Hann bætir því við að fyrir
nokkrum árum hafi verið kenndur
kúrs um hvað ef? sögu við Háskóla
Íslands og þeir hefðu örugglega
orðið fleiri ef kennarinn, Guðni Th.
Jóhannesson, hefði ekki farið í for-
setaframboð.
Bein afleiðing stríðsins
Hver er uppáhalds hvað ef? kenn-
ingin þín?
„Ef Franz Ferdinand hefði ekki
verið myrtur hefði kannski fyrri
heimsstyrjöldin ekki orðið og þá
hefði 20. öldin öll orðið svo allt
öðruvísi, því allt
sem hef ur gerst
síðan er eiginlega
bein af leiðing af
henni, bæði seinni
heimsstyrjöldin og
kalda stríðið. Þetta
er kannsk i stóra
spurning 20. aldar-
innar og en það má
segja að stóra spurn-
ing 21. aldarinnar sé
hvað ef Al Gore hefði
unnið forsetakosn-
ingarnar 2000, sem
hann var næstum
því búinn að gera.
Þá hefði líklega ekki
orðið nein innrás í
Írak sem eiginlega allt annað á þess-
ari öld er af leiðing af og kannski
hefði verið brugðist fyrr við lofts-
lagsvandanum.“
Valdeflandi en ógnvekjandi
Valur hefur sjálfur skrifað hvað ef?
skáldsögu, bókina Örninn og fálk-
ann sem kom út 2017 og fjallar um
afleiðingar þess ef Þjóðverjar hefðu
hernumið Ísland í seinni heims-
styrjöldinni í stað Breta.
Eru þetta spurningar sem leita
mikið á þig?
„Já, ég held að þetta sé eiginlega
eina leiðin til þess að skilja söguna.
Það er að átta sig á því að hlutirnir
hefðu getað farið á aðra vegu en í
staðinn fóru þeir eins og þeir fóru,
vegna þess að einhverjir gerðu
það sem þeir gerðu en hefðu getað
gert eitthvað annað. En þetta færir
okkur líka mikla ábyrgð vegna þess
að það erum við núna sem mótum
framtíðina. Framtíðin er ekki bara
eitthvað sem kemur heldur er hún
bein afleiðing af því sem við gerum
í dag. Sem er valdeflandi en kannski
um leið ógnvekjandi.“ n
Sagan sem hefði getað orðið
Bækur
Frankensleikir
Eiríkur Örn Nordahl
Fjöldi síðna: 95
Útgefandi: Mál og menning
Brynhildur Björnsdóttir
Systkinin Fjóla og Hrólfur, aðal-
söguhetjurnar í Frankensleiki,
eru ekki óheppin með foreldra
þannig. Enda eru þau alltaf kynnt
til sögunnar eitthvað á þessa leið:
þau voru alls ekki vond en laus við
allt ímyndunarafl. Eitt af því sem
slíkum foreldrum finnst tilheyra
er að koma börnum snemma í
skilning um það
sem þau telja
vera sannleika,
eins og til að
mynda að jóla-
sveinar séu ekki
til. Sem hvert
m a n n s b a r n
veit að er ekki
rétt því hverjir
aðrir ættu að
sjá sér hag í því
að gefa börnum
í skóinn á jóla-
f öst u nni? Ég
bara spyr.
En foreldrar
Fjólu ák veða
sem sag t að
f æ r a h e n n i
þessar fárán-
l e g u f r é t t i r
rétt áður en
jólasveinarnir
byrja að tínast til byggða með þeim
afleiðingum að hún fer á stúfana til
að leita að þeim. Í kjölfarið tekur
sagan óvænta stefnu sem ekki verð-
ur rakin lengra hér nema með því að
ljóstra upp um að foreldrarnir þurfa
að éta ýmislegt ofan í sig áður en
jólin ganga í garð.
Upprunalegar hryllingssögur
Í nútímanum gleymist oft að
sögurnar um jólasveinana, Grýlu
og jólaköttinn eru upprunalega
hryllingssögur, fullar af óhugnaði,
barnaáti, blóði og líkamspörtum
sem sjóða í pottum fram á nótt.
Í þeim samanburði dýfir Eiríkur
Örn tánum bara rétt aðeins ofan
í. En splatter er samt alltaf splatter
og mögulega misbjóða frásagnir af
blóði, líkum og sombíum einhverj-
um, ekki síst ef það tengist jólunum.
Einhverjum full-
orðnum það er að
segja, því börn hafa
frá örófi alda verið
á hu g a s ö m u m
hrylling og ímynd-
uð skrímsli sem
sést best á Þjóðsög-
um Jóns Árnasonar
og Grimms ævin-
týrunum auk fyrr-
nefndra jólasagna.
Að taka nútíma-
snú ning á upp -
vak ningssk rímsli
Frankensteins og
bæta íslensku jóla-
sveinunum út í er
því uppskrift sem
að öllum líkindum
mu n k æt a f le st
börn ákaflega og foreldrar fá líka
ýmislegt fyrir sinn snúð í gríni og
skemmtilegheitum. Myndlýsingar
Elíasar Rúna eru skemmtilegar og
fylla vel út í heim sögunnar.
Löðrandi í jólaanda
Frankensleikir er bráðfyndin,
spennandi og skemmtileg saga,
löðrandi í hinum sanna jóla- og
jólasveinaanda með skvettu af
hrollvekjuminnum og karnival-
ísku gríni. Hún snertir á ýmsum
þýðingarmiklum spurningum eins
og hvar jólasveinar dvelja á sumrin
og af hverju sumum finnst nauðsyn-
legt að svipta sem flesta ævintýrinu
í lífinu. n
Niðurstaða: Fyndin, spennandi
og skemmtileg jólahryllingsgleði
saga fyrir unga sem aldna.
Jólasveinarnir hans
Frankensteins
Bergþór Másson,
hlaðvarpsþátta
stjórnandi og
ritlistarnemi,
segir lesendum
Frétta
blaðsins
frá
Listinni
sem
breytti lífi hans.
„Ég man eftir að hafa
reglulega fundið fyrir
djúpum ótta, skelfingu
jafnvel, þegar ég las
Heimsljós í fyrsta skipti í
heild sinni á ferðalagi um
Kólumbíu fyrir nokkrum
árum. Það var eitthvað
þarna sem hreyfði svo
djúplega við mér að ofan
á kvíðann sem textinn
bjó til inni í mér fann ég
líka fyrir skrítnum líkamlegum
sársauka.
Nýr heimur opnaðist, heimur
hins stóra Halldórs. Ég hafði lesið
flest eftir hann en aldrei fattað
þetta almennilega. Loksins fatt
aði ég. Út frá þessari uppljómun
spændi ég í mig
katalóginn af
áfergju. Í dag
hugsa ég til
hans á hverjum
degi og þakka
almættinu
fyrir að hafa látið
þennan gaur
fæðast hérna hjá
okkur. There will
never be another.
Guð má vita
hvernig þjóð við
værum án hans.
Þessi bók er
fullkomin blanda
módernisma og
rómantíkur og hefur allt það sem
ég vil fá úr listaverki: Hugrekki,
fegurð, sannleika, kærleika, til
gang, metnað, húmor og frelsi.
Um daginn var ég eitthvað að
lesa um Forngrikki og hugmyndir
þeirra um fegurð. Þeir sáu fegurð
sem eitthvað sem ætti að vekja
upp óhug og jafnvel hræðslu hjá
manni. Þá skildi ég að það var
nákvæmlega það sem gerðist hjá
mér þarna í Kólumbíu. Fegurðin í
Heimsljósi var svo yfirþyrmandi
að ég fann fyrir líkamlegum hryll
ingi.“ n
n Listin sem breytti lífi mínu
Valur Gunnarsson segir mikilvægt að velta því fyrir sér hvort mannkyns
sagan hefði getað farið á aðra leið. FréttaBlaðið/Sigtryggur ari
Ég held að þetta sé
eiginlega eina leiðin til
þess að skilja söguna.
Það er að átta sig á því
að hlutirnir hefðu
getað farið á aðra vegu.
Fegurðin í Heimsljósi
var svo yfirþyrmandi
að ég fann fyrir líkam-
legum hryllingi.
Frankensleikir er
bráðfyndin, spennandi
og skemmtileg saga,
löðrandi í hinum
sanna jóla- og jóla-
sveinaanda.
ULLARJAKKI
NÁTTÚRUVÆN EINANGRUN
ÚR ÍSLENSKRI ULL
28.990,-
22 Menning 22. desember 2022 FIMMTUDAGURFréttabLaðiðMennInG FréttabLaðið 22. desember 2022 FIMMTUDAGUR