Fréttablaðið - 22.12.2022, Side 16
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í
Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Reynir Eyjólfsson
skipstjóri,
lést á Landspítalanum mánudaginn
5. desember. Hann var kvaddur í kyrrþey
með ástvinum sínum.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir Þórir Jóhannsson
Elfa Björk Jónsdóttir
Eydís Þuríður Jónsdóttir Gylfi Kristinn Sigurgeirsson
Guðrún Halldóra Jónsdóttir Julian Mark Williams
og afabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og bróðir,
Gunnar I. Waage
Sléttuvegi 27,
Reykjavík,
lést þann 18. desember síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn
28. desember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast Gunnars er bent á
að láta líknarstofnanir njóta þess.
Benedikt G. Waage Ólöf Björnsdóttir
Davíð G. Waage Carolina Castillo
Alexander, Ísabella, Emma Björk
Ólöf Erla I. Waage
Föðurbróðir minn og frændi okkar,
Gylfi Marinó Garðarsson
frá Uppsölum í Eyjafjarðarsveit,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri mánudaginn
12. desember. Útförin fer fram fimmtudaginn
29. desember kl. 13.00 í Akureyrarkirkju.
Hafdís Pálsdóttir Ragnar Kr. Guðjónsson
Guðjón Freyr Ragnarsson
Sandra Sif Ragnarsdóttir Andri Bollason
Hákon Heiðar Ragnarsson Aníta Ársól Torfadóttir
Ástkær móðir, tengdamóðir
og amma,
Helga Árnadóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
fimmtudaginn 8. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Árni Björn Valdimarsson
Ólafur Kristján Valdimarsson
Vífill Valdimarsson
Sindri Valdimarsson
Kristín Þórdís Valdimarsdóttir
tengdabörn og barnabörn
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn Björgvin Sigurðsson
prentari,
Skólabraut 5, Seltjarnarnesi,
lést á Landakotsspítala
mánudaginn 19. desember.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn
28. desember kl. 13.
Gylfi Kristinsson Jónína Vala Kristinsdóttir
Hilmar Kristinsson Margrét Hauksdóttir
Snorri Kristinsson Kristjana Jósefa Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
Jón Otti Sigurðsson
tæknifræðingur,
Norðurbakka 11a, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi föstudaginn
16. desember. Starfsfólki Sólvangs færum
við okkar innilegustu þakkir fyrir alla góðvild og umhyggju
sem honum var sýnd síðustu mánuði. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á líknarsjóð Oddfellowa og
Parkinsonsamtökin.
Ragnheiður Aðalsteinsdóttir
Sigurður Jón Jónsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
María Úlfheiður Úlfarsdóttir
Ölduslóð 47, Hafnarfirði,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu
Fossheimum á Selfossi,
sunnudaginn 18. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
30. desember kl. 10.00.
Magnús Waage Fríða Ágústsdóttir
Ingimar Ólafsson Waage Aðalheiður Matthíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóranna Brynjólfsdóttir
Hrafnistu við Brúnaveg,
áður Árskógum 6, Reykjavík,
lést á heimili sínu 19. desember.
Útför hennar verður frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 28. desember, klukkan 13.
Guðrún Gísladóttir
Sigurður Reynir Gíslason Málfríður Klara Kristiansen
Áslaug Gísladóttir Þórður Kr. Jóhannesson
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Ragnar Danielsen skilur sáttur
við læknisstarfið og er með áform
langt fram í tímann hvað varðar
tónlist, skíði og hestamennsku.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég var að skrifa undir síðustu vottorð
og pappíra og svo kíki ég hingað eitt-
hvað eftir áramótin, en ég mun ekki sjá
f leiri sjúklinga,“ segir Ragnar Daniel-
sen hjartalæknir sem lýkur störfum á
næstu dögum. Ragnar útskrifaðist úr
læknadeildinni 1977 en var þó farinn
að vinna sem læknir fyrir þann tíma.
„Ef maður telur allan ferilinn þá
slagar þetta með náminu í hálfa öld og
læknisstörf í rúmlega fjörutíu ár,“ segir
Ragnar. „Ég er alveg sáttur. Einhvern
tímann verður maður að hætta og ég
valdi þennan tímapunkt á meðan ég
get gert það með góðri samvisku. Við
héldum að það myndu ekki koma nýir
læknar heim til að taka á móti sjúkl-
ingunum en það leystist og það verður
hægt að koma þeim fyrir hjá nýjum
læknum.“
Ferlar tvinnast saman
Ferill Ragnars sem tónlistarmanns
teygir sig þó enn lengra aftur en hann
var meðal annars hluti af uppruna-
legri skipan Stuðmanna í MH, hinum
síðarnefndu Frummönnum. Hann hefur
síðan þá haldið tónlistinni áfram sem
tómstundargamni og vonast til að sér
gefist meiri tími í það nú þegar hann er
sloppinn við sloppinn.
„Ég hef tekið upp þrjár plötur að
gamni mínu – aðallega fyrir mig og
mína vini,“ segir hann. „Svo hef ég tekið
upp ábreiður og frumsamið efni og sett
á YouTube. Þegar það er komið þangað
nenni ég ekki að hlusta á það lengur. Ég
var að rúlla yfir lagaskissur í gærkvöldi
og athuga hvort ég ætti eitthvað eftir
af ókláruðum hugmyndum, kannski
maður ætti að láta eitthvað verða af því.“
Heimur hjartalækninga og tónlistar-
innar tvinnaðist svo saman hjá Ragn-
ari þegar hann spilaði með Taktleysu,
hljómsveit sem var eingöngu skipuð
hjartalæknum.
Breyttir tímar
„Þetta var hljómsveit sem hjartalæknar
voru með um tíma. Við skemmtum
aðallega á árshátíðum, þorrablótum og
þess háttar,“ segir hann. „Það var gripið
í þetta þegar það voru lausar stundir.
Nafnið var afbökun á „beatless“. Sá sem
kom upp með nafnið var sérfræðingur
í hjartsláttaróreglu svo það var honum
nærtækast að koma með nafnið.“
Þá er stóra spurningin til Ragnars
hvort hafi tekið stærri breytingum á
þessum tíma, hjartalækningar eða tón-
listarsenan?
„Ef maður tekur fyrir læknisfræðina
þá hættir hún náttúrulega aldrei að þró-
ast. Það er rosaleg vinna fyrir lækna og
heilbrigðisstarfsfólk að fylgjast vel með
tækniframförum og nýjum lyfjum,“ svar-
ar hann og segir tónlistina á sama báti. „Í
gamla daga var hægt fá allt sem hét nýtt
í tónlist með því að fara niður Lauga-
veginn og skoða vinsældalista vikunnar
í Fálkanum en í dag er magnið orðið svo
gríðarlegt og stafræn tækni hefur breytt
upptökuferlinum. Svo er gaman að sjá
hvað tónlistarskólar á Íslandi skila tón-
listarfólki sem er svo gott svo snemma.
Þessir krakkar eru búnir að læra músík og
orðnir vel spilandi svo ungir í dag.“
Þá er Ragnar er líka mikill skíða- og
hestamaður.
„Ég er kominn með plön um hesta-
ferðir langt fram á sumar,“ segir hann.
„Ég mun taka hestana á hús strax í janúar
og byrja að ríða út. Svo höfum við gamlir
skólafélagar úr MH gert það á hverju
ári að fara saman á skíði. Við skíðum á
meðan við stöndum í lappirnar.“ n
Sloppinn við sloppinn
Ragnar
er mikill
hestamaður
og stefnir
á að ríða út
strax þegar
hátíðunum
lýkur.
Mynd/Aðsend
1897 Stundarklukka er sett upp í turni Dómkirkjunnar í
Reykjavík. Klukkan er gjöf frá Thomsen kaupmanni.
1919 Dómar eru kveðnir upp í Landsyfirrétti í síðasta
sinn.
1945 Ný Ölfusárbrú er tekin í notkun.
1947 Stjórnarskrá Ítalíu er samþykkt af stjórnlagaþing-
inu.
1978 Bandaríski raðmorðinginn John Wayne Gacy er
handtekinn í Chicago.
1987 Ný lögreglusamþykkt fyrir Reykjavík er staðfest.
Hún kemur í stað samþykktar sem gilt hafði í meira
en hálfa öld.
Merkisatburðir
TímamóT FréTTablaðið 22. desember 2022 FImmTUDaGUR