Fréttablaðið - 22.12.2022, Page 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
sjofn@frettabladid.is
Þær Tinna og Telma vita fátt
skemmtilegra en að stílisera og
klæða sig upp fyrir framan linsuna
og taka gamaldags jólamyndir.
Þær þaulhugsa hvert smáatriði og
leggja mikið upp úr allri umgjörð.
Hver er forsagan að því að þið
byrjuðuð að gera svona mynda-
seríu?
„Þetta eiginlega byrjaði í Covid.
Allir voru að finna sér skemmtileg
áhugamál og við báðar höfðum
mikinn áhuga á ljósmyndum og
ákváðum bara að henda okkur í
þetta. Þetta hefur síðan þróast í
gegnum árin. Okkur finnst líka
gaman að setja upp skemmtilegt
umhverfi með myndunum þannig
að í dag er þetta orðið eitt stórt
verkefni,“ segir Tinna.
Er þessi myndataka fyrir jóla-
myndaseríu orðin að hefð?
„Já, svo sannarlega. Við reynum
alltaf að gera eitthvað nýtt og
pínu öðruvísi. Við vanalega förum
í undirbúningsvinnu áður. Þá
ákveðum við þemað, búninga,
leikmuni og annað sem til þarf.
Jólin eru líka svo æðislegur tími
og jólabarnið í okkur blómstrar
á þessum árstíma. Þetta er orðið
partur af jólahefðinni hjá okkur.
Verðum örugglega enn að þessu
eftir 30 ár,“ segja þær í kór og brosa.
Gömul leikföng frá
Hernámssetrinu að Hlöðum
Hvert er jólaþemað í ár?
„Jólaþemað í ár eru gömlu jólin.
Við fengum lánuð falleg gömul
leikföng frá Hernámssetrinu að
Hlöðum og síðan pöntuðum við
hnetubrjótshatta á netinu. Þannig
að við erum alveg að blanda saman
Þemað í ár voru gömlu jólin, tin-
dátinn á myndinni er jólagjöf sem
móðir Tinnu fékk árið 1958.
Tinna og Telma fengu lánuð þessi fallegu leikföng á Hernámssetrinu að Hlöðum sem minna á
gamla tímann. Hér er Telma búin að stilla sér upp með leikföngunum í hlutverki hnetubrjótsins.
Stelpurnar sjá sjálfar um uppsetningu, búninga, förðun
og að stilla ljósum og myndabúnaði upp.
Hér eru þær báðar í hlutverki hnetubrjótsins.
MyndiR/AðSEndAR
gömlu og nýju. Síðan reynum við
að hafa myndirnar skemmtilegar
og lifandi.“
Aðspurðar segjast þær fá inn-
blásturinn víða, sjálfar eru þær
mikil jólabörn og sjá fegurðina
og gleðina í jólunum. „Við fáum
innblásturinn frá mörgum stöðum
eins og í bíómyndum, auglýs-
ingum, gömlum ljósmyndum og
málverkum. Eins og í fyrra endur-
gerðum við ljósmyndir og málverk
fyrir aðventuþemað okkar. Held
við höfum aldrei hlegið jafn mikið
eins og við það verkefni. Það
sem okkur dettur í hug í þessum
myndatökum er óútreiknanlegt,“
segir Tinna og hlær.
„Ef fólk vill skoða þetta listaverk
getur það skoðað Instagram-síð-
urnar okkar en þar birtum við
allar myndaseríurnar okkar,“ segir
Telma.
„Okkur finnst þetta skemmti-
legt áhugamál. En við erum í raun
að taka mismunandi þema allt
árið um kring. Við vorum meira
að segja einu sinni svo heppnar
að fá lánaðan fornbíl og í sumar
breyttum við matsalnum á
Hlöðum í ítalskt veitingahús,“ segir
Tinna og veit fátt skemmtilegra en
að útbúa eins konar leikmyndir
fyrir myndatökur eins og þessar. n
Hægt er að fylgjast með þeim
Tinnu og Telmu á Instagram-reikn-
ingi þeirra @tinnabg og @telmahar.
Við fáum inn-
blásturinn frá
mörgum stöðum eins og
í bíómyndum, auglýs-
ingum, gömlum ljós-
myndum og málverkum.
Tinna Björt
2 kynningarblað A L LT 22. desember 2022 FIMMTUDAGUR