Fréttablaðið - 03.01.2023, Blaðsíða 23
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Sambýlismaður minn,
Snorri Jónsson
fv. vegaverkstjóri,
Höfn í Hornafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu
á Höfn 18. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Torfhildur Ólafsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
Bergsveinn Jóhann Gíslason
bóndi,
Mýrum í Dýrafirði,
lést 16. desember á
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 7. janúar kl. 14.00.
Streymt verður frá athöfn: https://fb.me/e/3fIBiMgRv
Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat.
Blóm og kransar afþakkaðir, en bent er á líknarfélögin.
Elínbjörg Snorradóttir (Lóa)
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Þorbjörg J. Rafnar
frá Seyðisfirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 22. desember.
Útför hennar verður frá Neskirkju
þriðjudaginn 10. janúar kl. 15. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki á deild V2 á Grund fyrir kærleiksríka umönnun
og hlýhug.
Ásthildur S. Rafnar Þorsteinn Ólafsson
Jónína Þ. Rafnar Guðmundur Þorgrímsson
Andrea Þ. Rafnar Benedikt Hreinsson
Halldór Friðrik Þorsteinsson Steindóra Gunnlaugsdóttir
Bergljót Þorsteinsdóttir Magnús Stephensen
Þórhallur E. Þorsteinsson Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Hallgrímur Guðmundsson Erna Valentínusardóttir
Þórólfur Guðmundsson Áslaug Ákadóttir
Áslaug Guðmundsdóttir Unnar Garðarsson
Sunna Einarsdóttir Gunnar Örn Rögnvaldsson
Stefán Arnar Einarsson Hrafnhildur Rafnsdóttir
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Magnús Kristinsson
Bjarmalandi,
mjólkurbílstjóri og bóndi,
er látinn.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elínborg Kristinsdóttir
Hólmfríður Aðalsteinsdóttir
frá Laugavöllum,
er látin. Útför verður í Háteigskirkju
fimmtudaginn 5. janúar klukkan 11.
Helga, Þorsteinn og Berglaug Skúlabörn
tengdabörn og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Þórdís Gunnarsdóttir
fyrrverandi talsímavörður,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri,
Ísafirði, á jólanótt. Útför fer fram frá
Ísafjarðarkirkju föstudaginn 6. janúar kl. 14.
Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðu
Viðburðastofu Vestfjarða.
Björn Jóhannsson Kristín Álfhildur Bjarnad.
María Björk Jóhannsdóttir Benedikt Jónasson
Guðmundur Friðrik Jóhannsson Dagný Rósa Pétursdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sólveig Bjarnadóttir
áður húsfreyja á Nípá,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð
25. desember. Útför hennar mun fara
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Rakel Kristín Káradóttir
Kári Karlsson Hjördís Sævar Harðardóttir
Guðfinna Aðalheiður Karlsdóttir
Bryndís Karlsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, mamma,
tengdamamma, amma og langamma,
Kolbrún Kristjánsdóttir
Móhellu 16, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum
Selfossi 31. desember síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Friðrik Sigurðsson
Jón Rúnar Einarsson, Anna Einarsdóttir
Herdís Einarsdóttir, Aðalheiður S. Einarsdóttir
Kristján Þór Ingvarsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rakel Sveinbjörnsdóttir
Reynimel 64, Reykjavík,
lést á heimili sínu
fimmtudaginn 29. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Eiríksson Jóna Sigríður Jónsdóttir
Jón Eiríksson Þórunn Þórisdóttir
barnabörn og langömmubörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra
Guðjóns Hreins Daníelssonar
Ásvegi 19,
Akureyri.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólksins á Öldrunarheimilinu
Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun.
Anna Jóhanna Þorsteinsdóttir
Daníel Heiðar Guðjónsson Aðalheiður Sigurjónsd.
Þorvaldur Garðar Guðjónsson Henrietta Kristinsdóttir
Erna Björg Guðjónsdóttir Gunnar Helgi Rafnsson
Adam Örn Þorvaldsson Rakel Þorgilsdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína Vigdís Ármannsdóttir
Prestastíg 11, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
mánudaginn 19. desember.
Útför hennar fer fram í Guðríðarkirkju
föstudaginn 6. janúar kl. 13.00. Þeim sem viljast minnast
hennar er bent á styrktarsjóð Múlabæjar, dagþjálfun
aldraðra og öryrkja, rnr. 0133-15-380757, kt. 580310-0440.
Sigurjón Ármann Einarsson Svandís Guðmundsdóttir
Brandur Einarsson
Guðni Bergur Einarsson Hrönn Hallsdóttir
Jóndís Einarsdóttir Guðmundur Jón Vilhelmsson
Lára Ásgeirsdóttir, Hulda Björg Rósarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Hjaltalín Jónsdóttir
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
þriðjudaginn 20. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
5. janúar 2023 kl. 13.00.
Ingibjörg H. Jónsdóttir Jóhann G. Ögmundsson
Magnús Þór Jónsson Sigríður Erlingsdóttir
Jón Gunnar Jónsson Sigríður Ríkharðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
arnartomas@frettabladid.is
Grænkeraátakið Veganúar fer fram nú
í janúar rétt eins og fyrri ár. Átakið er
alþjóðlegt og felst í því að fólk tileinki
sér hætti grænkerans út janúarmánuð
og helst lengur.
Fjölmargir viðburðir verða haldnir í
tengslum við átakið sem hefst formlega
með upphafsfundi í Bíó Paradís klukkan
20 í kvöld. Þar fara sérfræðingar yfir
hugmyndafræði veganisma og ávinning
þess að taka upp grænkeralífsstíl, bæði
fyrir einstaklinginn og umhverfið. Ein
þeirra sem taka til máls á fundinum í
dag er Rósa Líf Darradóttir, formaður
Samtaka um dýravelferð á Íslandi.
„Ég ætla að fara yfir þessi helstu
vandamál sem viðkoma dýravelferð á
Íslandi,“ segir Rósa Líf. „Það er svolítið
þannig að við Íslendingar erum gjörn á
að telja okkur trú um að við förum vel
með dýr. Ég ætla aðeins að fara betur
yfir þau mál og þá sérstaklega dýr í mat
vælaiðnaðinum.“
Meðal annars mun Rósa Líf fara yfir
blóðmerahald, loðdýrabúskap, hval
veiðar og þauleldi.
„Þetta eru dýr sem búa við ömurlegar
aðstæður og velferð þeirra er fórnað
fyrir hámörkun afurða,“ segir hún.
Sjálf hefur Rósa Líf verið vegan í eitt
ár og þrjá mánuði en var grænmetisæta
lengi fyrir þann tíma. Hún hvetur áhuga
sama um Veganúar að taka hlutunum
ekki allt of alvarlega.
„Þótt þetta sé frábært tækifæri til að
prófa að vera vegan í einn mánuð þá á
fólk ekki að vera hrætt við að taka þessi
litlu skref – að taka einn vegan dag í viku
til dæmis,“ segir hún. „Á dagskránni í
Veganúar er mikið af viðburðum þar
sem hægt er að fá ráðleggingar hjá fólki.
Við lofum því að við erum mjög indæl og
opin fyrir samtalinu!“
Hægt er að kynna sér dagskrá Vegan
úar í heild á heimasíðu átaksins. n
Að óttast ekki litlu skrefin
Veganúar hefur stimplað sig inn í íslensku samfélagi á síðustu árum.
Fréttablaðið/Getty
Ég ætla að fara yfir þessi
helstu vandamál sem
viðkoma dýravelferð á
Íslandi.
Rósa Líf Darradóttir
FréttablaðiðÞRIÐJUDAGUR 3. janúar 2023 Tímamót 15TTA A