Fréttablaðið - 03.01.2023, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.01.2023, Blaðsíða 11
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Hinrik Norðfjörð Útfararþjónusta Helena Björk Magnúsdóttir Útfararþjónusta Bréfritari gefur sér að í f lestum Íslendingum búi einhver aðdáun á íslenskri náttúru. Þarf ekki annað en að sjá hvernig við f lykkjumst í þúsunda tali út í náttúruna þegar færi gefst. Við þenjumst af stolti þegar erlendir aðilar (helst frægir) prísa landslagið á Íslandi enda orðið heimsþekkt í alþjóðlegum kvik­ myndum og auglýsingum. Sum sé, við elskum náttúruna. En nú er vá fyrir dyrum. Grundvallaratriði í allri nátt­ úru vernd er að viðhalda fjölbreyti­ leika lífríkis. Það eru þær skyldur sem við berum gagnvart komandi kynslóðum. Óhjákvæmilega verða árekstrar milli mannfólks og nátt­ úru í viðleitni til að búa okkur þokkaleg lífsskilyrði. Kúnstin er að halda raski á náttúrunni sem minnstu. Erfitt getur verið að finna hvar skynsamleg mörk liggja og um þau er deilt. Sumar aðgerðir okkar byrja í góðri trú en snúast svo upp í andhverfu sína. Dæmi um það er lúpínan – mér liggur við að segja: bölvuð lúpínan. Veður yfir allt! Undirritaður hefur átt því láni að fagna að hafa stundað veiðar við Laxá í Leirársveit í áratugi. Lengst af nutum við dvalar við ána og á milli kasta gátum við notið umhverfisins. Víða mátti sjá hina fallegu eyrarrós, mófuglar létu vel af sér vita – m.ö.o. hin villta, íslenska náttúra veitti okkur dásamlegan unað. Í dag er eyrarrósin horfin sem og mófugl­ arnir og árbakkar eru óþekkjan­ legir. Hvað veldur? Lúpínan hefur dreift sér niður með allri ánni og skríður hratt upp eftir bökkunum. Fjölbreytileikinn við árbakkann er horfinn af því að við fórum okkur óvarlega með innf lutta plöntu. Svipuð dæmi má sjá svo víða þar sem lúpínan skríður yfir mela og móa og útrýmir því sem fyrir er. Þetta kannast líklega flestir við. En nú virðumst við ætla að feta sömu leið í draumum okkar um skóga. Ástæða er til að staldra við og íhuga hvert stefnir í skógrækt. Stefnuleysi ógnar Skógræktarstjóri hefur kynnt að á næsta ári verði um 7 milljónum trjáa plantað – á vegum Skóg­ ræktar ríkisins (+ það sem einkaað­ ilar gera). Taldar eru upp margar tegundir trjáa og látið að því liggja að f lytja þurfi jafnvel inn tré þar sem innlend framleiðsla anni ekki eftirspurn. Í hinu skóglitla Íslandi höfum við látið okkur dreyma um íslenskan skóg og þar sem vel hefur tekist nýtur skógarrjóðrið vinsælda almennings. Sjálfur er ég í þeim hópi. Margt bendir þó til að við höfum farið offari í þessum efnum. Ríkið ver hundruðum millj­ óna í skógrækt en þar virðist ríkja algjört stefnuleysi. Bara að planta trjám sem víðast og hafa tegundir sem flestar. Getur verið að við séum á sömu leið með skógræktina og við fórum með lúpínuna? Norðmenn hafa vaknað upp við vondan draum. Þeir vörðu milljón­ um í skógrækt – svipað og við erum að gera – en eru nú að ná áttum og verja orðið milljónum í að eyða skógum! Sumar ágengar tegundir einfaldlega hafa tekið völdin með alvarlegum af leiðingum. Má þar nefna eyðingu gróðurs sem er fyrir (skógarbotn verður súr og fátt þrífst í honum, mófuglar hopa, útsýni hverfur o.s.frv.) Hjá okkur ríkir enn „villta vestrið“ og við erum hvött til að planta trjám úti um allar koppa­ grundir. Afleiðingarnar eru að byrja að koma í ljós og eiga eftir að versna á löngum tíma. Hvað er til ráða? Mörkum stefnu Fyrsta skrefið er að móta stefnu – Hverju viljum við ná fram með skógrækt? Viljum við tré alls staðar? Viljum við afmarka svæði fyrir skógrækt, sbr. Heiðmörk og slíka staði? Hvaða tegundir viljum við sjá hér? Fræðimenn benda á að ýmsar tegundir séu um of ágengar og hafi til lengri tíma svipuð áhrif og lúpínan. Þar hafa sérstaklega verið nefndar tegundir á borð við stafafuru og sitkagreni. Sú fyrr­ nefnda, a.m.k., mun dreifa sér sjálf. Jarðvegur um hana verður gegnsúr og drepur allan annan gróður. Viljum við há tré alls staðar? Hvað segja ferðamenn sem hingað koma til að njóta víðernis í íslenskri náttúru. Dæmi eru þegar um að há tré séu farin að byrgja fyrir fallega útsýnisstaði. Viljum við gróðursetja hvaða tegund sem er – bara að það sé tré? Áfram má spyrja. Nýtum okkur langa reynslu frændþjóða á sviði skógræktar. Lendum ekki í því að láta ríkið borga fyrir gróðursetn­ ingu sem það í framtíðinni borgar svo fyrir að eyða. Lykilatriði hlýtur að vera sú skylda að marka stefnu á þessu sviði en ekki rasa um ráð fram eins og nú er gert. Náttúran og fram­ tíðin eiga það inni hjá okkur. n Hættur stafa af skógrækt Hjálmar Waag Árnason áhugamaður um íslenska náttúru Lúpínan hefur dreift sér niður með allri ánni og skríður hratt upp eftir bökkunum. Fjölbreytileikinn við árbakkann er horfinn af því að við fórum okkur óvarlega með innflutta plöntu. ÞRIÐJUDAGUR 3. janúar 2023 Skoðun 11Fréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.