Fréttablaðið - 03.01.2023, Síða 11
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Tökum á móti ástvinum í hlýlegu
og fallegu umhverfi
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt
húsnæði og nýir glæsilegir bílar.
Sjá nánari upplýsingar á utfor.is
Útfararþjónusta
Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina
– Þjónusta um allt land og erlendis
– Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum
í yfir 70 ár
Guðný Hildur
Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
Sálmaskrár,
útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjöf,
útfararþjónusta
Guðmundur
Baldvinsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Helga
Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Hinrik Norðfjörð
Útfararþjónusta
Helena Björk
Magnúsdóttir
Útfararþjónusta
Bréfritari gefur sér að í f lestum
Íslendingum búi einhver aðdáun á
íslenskri náttúru. Þarf ekki annað
en að sjá hvernig við f lykkjumst í
þúsunda tali út í náttúruna þegar
færi gefst. Við þenjumst af stolti
þegar erlendir aðilar (helst frægir)
prísa landslagið á Íslandi enda orðið
heimsþekkt í alþjóðlegum kvik
myndum og auglýsingum. Sum sé,
við elskum náttúruna. En nú er vá
fyrir dyrum.
Grundvallaratriði í allri nátt
úru vernd er að viðhalda fjölbreyti
leika lífríkis. Það eru þær skyldur
sem við berum gagnvart komandi
kynslóðum. Óhjákvæmilega verða
árekstrar milli mannfólks og nátt
úru í viðleitni til að búa okkur
þokkaleg lífsskilyrði. Kúnstin er
að halda raski á náttúrunni sem
minnstu. Erfitt getur verið að finna
hvar skynsamleg mörk liggja og um
þau er deilt. Sumar aðgerðir okkar
byrja í góðri trú en snúast svo upp
í andhverfu sína. Dæmi um það er
lúpínan – mér liggur við að segja:
bölvuð lúpínan.
Veður yfir allt!
Undirritaður hefur átt því láni að
fagna að hafa stundað veiðar við
Laxá í Leirársveit í áratugi. Lengst af
nutum við dvalar við ána og á milli
kasta gátum við notið umhverfisins.
Víða mátti sjá hina fallegu eyrarrós,
mófuglar létu vel af sér vita – m.ö.o.
hin villta, íslenska náttúra veitti
okkur dásamlegan unað. Í dag er
eyrarrósin horfin sem og mófugl
arnir og árbakkar eru óþekkjan
legir. Hvað veldur? Lúpínan hefur
dreift sér niður með allri ánni og
skríður hratt upp eftir bökkunum.
Fjölbreytileikinn við árbakkann er
horfinn af því að við fórum okkur
óvarlega með innf lutta plöntu.
Svipuð dæmi má sjá svo víða þar
sem lúpínan skríður yfir mela og
móa og útrýmir því sem fyrir er.
Þetta kannast líklega flestir við. En
nú virðumst við ætla að feta sömu
leið í draumum okkar um skóga.
Ástæða er til að staldra við og íhuga
hvert stefnir í skógrækt.
Stefnuleysi ógnar
Skógræktarstjóri hefur kynnt að
á næsta ári verði um 7 milljónum
trjáa plantað – á vegum Skóg
ræktar ríkisins (+ það sem einkaað
ilar gera). Taldar eru upp margar
tegundir trjáa og látið að því liggja
að f lytja þurfi jafnvel inn tré þar
sem innlend framleiðsla anni ekki
eftirspurn. Í hinu skóglitla Íslandi
höfum við látið okkur dreyma
um íslenskan skóg og þar sem vel
hefur tekist nýtur skógarrjóðrið
vinsælda almennings. Sjálfur er
ég í þeim hópi. Margt bendir þó til
að við höfum farið offari í þessum
efnum. Ríkið ver hundruðum millj
óna í skógrækt en þar virðist ríkja
algjört stefnuleysi. Bara að planta
trjám sem víðast og hafa tegundir
sem flestar. Getur verið að við séum
á sömu leið með skógræktina og við
fórum með lúpínuna?
Norðmenn hafa vaknað upp við
vondan draum. Þeir vörðu milljón
um í skógrækt – svipað og við erum
að gera – en eru nú að ná áttum og
verja orðið milljónum í að eyða
skógum! Sumar ágengar tegundir
einfaldlega hafa tekið völdin með
alvarlegum af leiðingum. Má þar
nefna eyðingu gróðurs sem er fyrir
(skógarbotn verður súr og fátt þrífst
í honum, mófuglar hopa, útsýni
hverfur o.s.frv.) Hjá okkur ríkir enn
„villta vestrið“ og við erum hvött til
að planta trjám úti um allar koppa
grundir. Afleiðingarnar eru að byrja
að koma í ljós og eiga eftir að versna
á löngum tíma.
Hvað er til ráða?
Mörkum stefnu
Fyrsta skrefið er að móta stefnu
– Hverju viljum við ná fram með
skógrækt? Viljum við tré alls
staðar? Viljum við afmarka svæði
fyrir skógrækt, sbr. Heiðmörk og
slíka staði? Hvaða tegundir viljum
við sjá hér? Fræðimenn benda á að
ýmsar tegundir séu um of ágengar
og hafi til lengri tíma svipuð áhrif
og lúpínan. Þar hafa sérstaklega
verið nefndar tegundir á borð við
stafafuru og sitkagreni. Sú fyrr
nefnda, a.m.k., mun dreifa sér sjálf.
Jarðvegur um hana verður gegnsúr
og drepur allan annan gróður.
Viljum við há tré alls staðar?
Hvað segja ferðamenn sem hingað
koma til að njóta víðernis í íslenskri
náttúru. Dæmi eru þegar um að há
tré séu farin að byrgja fyrir fallega
útsýnisstaði. Viljum við gróðursetja
hvaða tegund sem er – bara að það
sé tré?
Áfram má spyrja. Nýtum okkur
langa reynslu frændþjóða á sviði
skógræktar. Lendum ekki í því að
láta ríkið borga fyrir gróðursetn
ingu sem það í framtíðinni borgar
svo fyrir að eyða. Lykilatriði hlýtur
að vera sú skylda að marka stefnu á
þessu sviði en ekki rasa um ráð fram
eins og nú er gert. Náttúran og fram
tíðin eiga það inni hjá okkur. n
Hættur stafa af skógrækt
Hjálmar Waag
Árnason
áhugamaður um
íslenska náttúru
Lúpínan hefur dreift
sér niður með allri
ánni og skríður hratt
upp eftir bökkunum.
Fjölbreytileikinn við
árbakkann er horfinn
af því að við fórum
okkur óvarlega með
innflutta plöntu.
ÞRIÐJUDAGUR 3. janúar 2023 Skoðun 11Fréttablaðið