Morgunblaðið - 22.08.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.08.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022 SKÍÐAFRÍ FLUG, GISTING OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN VIKULEGAR FERÐIR Í JAN OG FEB VERÐ FRÁ139.900 KR Á MANN M.V 2 FULLORÐNA OG 1 BARN 21. - 28. JANÚAR 2023 WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR | INFO@UU.IS | SÍMI 585 4000 VIN SÆ LT ÍTÖLSKU ALPARNIR ATH BEINT FLUG Á BESTA TÍMA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, segir í samtali við Morgunblaðið að sjúkra- húsið geti tekið á móti fleiri lækna- nemum í grunn- námi ef stofnunin og Háskóli Ís- lands ráðist í skipulagsbreyt- ingar og sam- ræmi betur tíma- bil starfsnáms læknanema. „Þetta er eins með hjúkrunar- nema, ef það væru einhverjar skipu- lagsbreytingar mögulegar þá værum við alveg tilbúin að horfa á það líka. Við reynum að nýta öll tækifæri sem við getum en þetta hangir á því hvaða sérfræðinga við höfum í boði til þess að taka á móti læknanemum. Við viljum geta veitt þeim góð tæki- færi,“ segir Hildigunnur. „Sumrin eru erfið til þess að taka á móti mörgu nýju fólki en eflaust væri það hægt. Það þyrfti bara að skoða allar hliðar, bæði út frá skipu- lagi háskólans og okkar skipulagi. Ég er alveg viss um að við getum átt þær samræður ef það er stóra vandamálið. Mín tilfinning er sú að með skipulagssamræðum væri hægt að koma fleirum fyrir.“ Getur ekki samþykkt fjölgun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra sagði á dögunum að ráðu- neytið gæti ekki samþykkt fjölgun læknanema fyrr en Landspítalinn hefði tök á að taka á móti þeim og því gæti fjölgun nema á sjúkrahúsi Akureyrar gert ráðuneytinu kleift að samþykkja fjölgun læknanema, en nú eru um 60 nemar teknir inn ár- lega. Mannekla hefur verið viðvarandi á Landspítalanum um hríð og forstjóri spítalans hefur sagst óttast að hann fari í þrot. Fjármagn þurfi að fylgja Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins sagði fyrir helgi að fjölga þyrfti læknanemum og að hún vildi sjá að minnsta kosti 90 nema á ári. Einnig sagði hún að meira þyrfti að gera til þess að fá lækna í sérnámi erlendis til að snúa aftur heim. Það þyrfti að fjármagna heilbrigðiskerfið betur til þess að bæta starfs- umhverfið og bjóða sérfræðilæknum upp á ásættanleg kjör. Hildigunnur segir að læknum sem stundi sérnám á Íslandi hafi fjölgað ört en fjármagn til þess að styðja við þá hafi ekki fylgt. „Til að við getum tekið við fleiri slíkum nemum þarf að fylgja fjár- magn, því við þurfum að borga þessu fólki laun. Þetta er það sem ég er alltaf að tala um í ráðuneytinu. Það er líka grunnurinn sem Landspítal- inn er að tala um. Við verðum að taka þátt í þessu verkefni á landsvísu, en þetta hefur verið þungur baggi á okkur fjárhagslega.“ Hildigunnur tekur fram að sjúkra- húsið á Akureyri gleymist oft í um- ræðunni en stofnunin tekur á móti fjölda læknanema allan ársins hring sem og hjúkrunarfræðinemum. „Við erum hluti af þessu kerfi, það er bara svo oft sem það er bara talað um Landspítalann. Við tökum mik- inn þátt í þessari starfsþjálfun á landsvísu og það skiptir okkur gríð- arlega miklu máli að við séum með í þessu verkefni,“ segir hún og bendir á að sjúkrahúsið sé með að lágmarki tíu lækna á kandídatsárinu sínu á ári. „Við gegnum gríðarlega miklu hlutverki sem kennslusjúkrahús og það skiptir miklu máli að við séum þátttakendur í þessu, annars fáum við ekki þetta fólk til okkar í framtíð- inni heldur.“ Geta tekið á móti fleiri læknanemum - Forstjóri SAk segist geta tekið við fleirum í læknanámi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Heilbrigðismál Sjúkrahúsið á Akureyri er tilbúið að ræða skipulagsbreyt- ingar við Háskóla Íslands til þess að koma megi fleiri læknanemum að. Hildigunnur Svavarsdóttir Engin virkni var sýnileg í eldgosinu í Meradölum í gær frá því klukkan sex í gærmorgun og fram á kvöld sam- kvæmt tilkynningu eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands á Facebook. Vakna því spurningar um hvort gosinu sé lokið. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veður- stofu Íslands, kvaðst ekki tilbúin til þess að lýsa yfir goslokum í Meradöl- um þegar mbl.is ræddi við hana fyrri- partinn í gær. „Það er engin kvikustrókavirkni og þetta er allt annað en var fyrr í vik- unni, en það er ennþá mikil afgösun og í nótt var ennþá glóandi hraun að renna frá gígnum.“ Sigríður tekur fram að jarðskjálftavirkni hafi dottið niður á laugardaginn, en hún geti þó aftur tekið sig upp. „Það er spurning hver næsti kafli verður; mun jarðskjálftavirkni taka sig upp eða er þetta alveg búið, það verður bara að koma í ljós.“ Í tilkynningunni frá eldfjallafræði- og náttúruvárhópnum er bent á að rauður bjarmi hafi fjarað út aðfara- nótt sunnudagsins. „Rétt fyrir sex steig þéttur blágrár mökkur upp úr gígnum og skömmu síðar datt óróinn alveg niður.“ Engin virkni hafi verið sýnileg í gígunum eftir það og hugsanlegt að gosinu sé lokið. „Ef flæði hrauns frá hraunpollinum hefur stöðvast, þá er gosið yfirstaðið og lauk sennilega um klukkan sex þennan ágæta sunnudagsmorgun,“ segir ennfremur í tilkynningunni. kris@mbl.is Lauk gosinu í gærmorgun? - Engin sýnileg virkni í gær - Ótímabært að lýsa yfir goslokum Morgunblaðið/Hákon Eldgos Gosinu í Meradölum gæti mögulega verið lokið. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Sveitarstjórn Norðurþings skoraði á stjórnvöld á fimmtudag að tryggja vetrarþjónustu á Dettifoss- vegi en vegurinn er hluti af svoköll- uðum Demantshring sem tengir Húsavík, Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Mývatnssveit. Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé undarlegt að ríkið vilji ekki fullnýta fjárfestingu sína við vegagerðina sem hljóðaði upp á hundruð millj- óna króna. Tengir svæðið saman „Það er að segja Dettifossveg, sem tengir Keldukerfi og Öxarfjörð við þjóðveg 1. Þetta tengir alla ferðaþjónustu á svæðinu og stuðlar að markmiðum ríkisins um upp- byggingu ferðaþjónustu árið um kring,“ segir hann og bætir því við að vegurinn tengi saman svæðin í kring sem tilheyra Norðurþingi. Hjálmar segir að þegar vegurinn sé ófær bætist rúmlega 40 kílómetr- ar við leið flutningabíla sem flytja lax frá Öxarfirði og Kelduhverfi austur á land og út úr landinu. „Ríkið fór í það að byggja þetta upp og ríkið vill efla ferðaþjónustu. Ríkið vill efla útflutning og stuðla að gjaldeyristekjum. Mér finnst því eðlilegt að ríkið haldi þessum vegi við og tryggi þar með vetrarþjón- ustu,“ segir Hjálmar. „Haft gífurleg áhrif“ Hjálmar segir að ef litið sé til sambærilegra vega á svæðinu þá séu þeir allir í vetrarþjónustu. „Það er ný staða ef ríkið ætlar ekki að gera þetta, en við verðum að sjá hvað gerist.“ Vegurinn hafi reynst svæðinu vel og fólk hafi fundið fyrir mikilli fjölgun erlendra ferðamanna í Öxarfirði og alla leið út á Raufar- höfn. „Á mjög skömmum tíma hefur þessi vegur haft gífurleg áhrif á svæðið.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðamenn Demantshringurinn tengir Húsavík, Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Mývatnssveit, sem Hjálmar segir með fallegri stöðum á landinu. Skorar á stjórnvöld að tryggja þjónustu - Vill að vegurinn verði fær á veturna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.