Morgunblaðið - 22.08.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Robert Habeck efnahagsmálaráð-
herra Þýskalands telur enga ástæðu
til að hverfa frá fyrirhugaðri lokun
síðustu þriggja kjarnorkuvera
landsins. Stjórnvöld í Þýskalandi
hafa um árabil unnið að því að draga
úr notkun kjarnorku í landinu en í
kjölfar slyssins í Fúkúsíma árið
2011 ákvað ríkisstjórn Angelu
Merkel að loka átta kjarnorkuver-
um án tafar og að öll kjarnorkuver
landsins myndu hætta starfsemi eigi
síðar en í árslok 2022.
Á fundi með almenningi sem hald-
inn var á sunnudag var Habeck
spurður hvort ekki mæti fresta lok-
un síðustu orkuveranna í ljósi yfir-
vofandi orkukreppu í Þýskalandi, en
landið sér fram á skort á jarðgasi og
verðhækkanir á orkumarkaði vegna
raskana á innflutningi jarðefnaelds-
neytis frá Rússlandi.
Á fundinum sagði Habeck að lítill
ávinningur væri af að halda kjarn-
orkuverunum þremur opnum og það
myndi aðeins spara sem nemur 2%
af jarðgasnotkun Þýskalands. Að
sögn Reuters telur Habeck þó koma
til greina að fresta lokun Isar-
kjarnorkuversins í Bæjaralandi ef
álagsprófun leiðir í ljós að raforku-
framleiðsla þess sé nauðsynleg fyrir
stöðugleika raforkukerfisins á
svæðinu og fyrir orkuframboð yfir
vetrarmánuðina. Standa mælingar
yfir og ættu útreikningar að liggja
fyrir á komandi vikum. ai@mbl.is
Segir óþarft að halda
kjarnorkuverum opnum
AFP
Dropi Robert Habeck segir það hafa sáralítil áhrif á jarðgasnotkun
Þýskalands að loka síðustu kjarnorkuverunum samkvæmt áætlun.
- Slökkt á síðustu kjarnorkuverum Þýskalands í árslok
Brasilía er langstærsti kaffi-
framleiðandi heims og framleiddi
árið 2019 um 5,7 milljarða punda
af kaffi, en þar á eftir komu Víet-
nam með 3,6 milljarða punda og
Kólumbía með tæplega 1,8 millj-
arða punda. Greinir WSJ frá að
veðurskilyrði hafi líka verið óhag-
felld í Kólumbíu og því von á lakri
uppskeru þar.
Má leiða líkum að því að slæm
uppskera í Brasilíu hafi hækkandi
áhrif á kaffiverð en uppskeru-
bresturinn í fyrra varð til þess að
framvirkir kaupsamningar á kaffi-
baunum nærri tvöfölduðust í verði.
Matsfyrirtækið Fitch spáir þó að
uppskerubrestur í Brasilíu annað
árið í röð muni ekki stuðla að frek-
ari hækkunum en hins vegar koma
í veg fyrir að verðhækkun kaffi-
bauna gangi til baka. ai@mbl.is
Útlit er fyrir lélega uppskeru hjá
kaffibændum í Brasilíu og er þetta
annað árið í röð sem óhagfelld
veðurskilyrði bitna á brasilískum
kaffilandbúnaði.
Að sögn Wall Street Journal hef-
ur veðurfar á kaffiræktarsvæðum
Brasilíu verið óvenjuslæmt það
sem af er þessu ári. Fyrst plöguðu
þurrkar kaffiræktendur og í kjöl-
farið kom kuldakast sem skemmdi
kaffiplönturnar enn frekar. Sjá
sumir bændur fram á að upp-
skeran af arabica-baunum verði
helmingi minni en í venjulegu ár-
ferði.
Leiðindaveður
fer illa með brasil-
íska kaffibændur
- Verð kaffibauna lækkar ekki í bráð
AFP / Mauro Pimentel
Glíma Brasilískur bóndi hugar að plöntunum. Tvö ár í röð hefur veðrið leik-
ið brasilíska kaffigeirann grátt og heimskarkaðsverð kaffibauna eftir því.
« Sjóðastýringa-
félagið BlackRock
segir margt gallað við
fyrirhugaðar reglur
bandaríska fjármála-
eftirlitsins um notkun
svokallaðra ESG-
viðmiða við markaðs-
setningu fjárfestingarkosta. Undanfarin
misseri hefur ESG átt mjög upp á pall-
borðið í atvinnulífi Bandaríkjanna, og víð-
ar, en skammstöfunin stendur fyrir um-
hverfisáhrif, samfélagsleg áhrif og
stjórnunarhætti fyrirtækja (e. environ-
mental, social, governance).
Leggja sumir fjárfestar mikið upp úr því
að beina fjármagni sínu til fyrirtækja sem
koma vel út úr ESG-mælingum en í seinni
tíð hafa eftirlitsstofnanir haft vaxandi
áhyggjur af því að sjóðir noti ESG-
stimpilinn til að villa um fyrir fjárfestum.
Hyggst bandaríska fjármálaeftirlitið
setja skýrari reglur um hvernig má mark-
aðssetja ESG-sjóði, ákveða staðla um
ESG-upplýsingagjöf, og tiltaka hvaða
upplýsingar stjórnendur sjóða þurfa að
framvísa til að sýna fram á að sú vara
sem þeir bjóða fjárfestum falli að ESG-
hugmyndafræðinni.
BlackRock segir nýju reglurnar, eins og
þær líta út í dag, til þess gerðar að valda
ruglingi og auka líkurnar á svokölluðum
grænþvotti. Þá sé krafan um upplýsinga-
gjöf slík að hún kann að sýna í of miklum
smáatriðum fjárfestingarstefnu stjórn-
enda sjóða og þannig draga úr markaðs-
forskoti þeirra hæfustu og snjöllustu á
markaðinum. ai@mbl.is
BlackRock gagnrýnir
drög að ESG-reglum
22. ágúst 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 139.75
Sterlingspund 165.41
Kanadadalur 107.56
Dönsk króna 18.891
Norsk króna 14.276
Sænsk króna 13.243
Svissn. franki 146.11
Japanskt jen 1.0206
SDR 182.96
Evra 140.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.6371
« Ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz
Air tilkynnti fyrr í mánuðinum að það
hygðist bjóða upp á nýja tengingu á
milli Moskvu og Abú Dabí strax í októ-
ber næstkomandi. Wizz Air flaug áður
til Moskvu, Pétursborgar og Kazan frá
borgum í Evrópu en hætti flugi til
áfangastaða í Rússlandi eftir að rúss-
neski herinn réðst inn í Úkraínu.
Ákvörðun Wizz Air vakti mikla gagn-
rýni og hefur flugfélagið nú ákveðið að
bíða með að hefja að nýju flug til Rúss-
lands. Að sögn Reuters gætti verulegr-
ar óánægju á samfélagsmiðlum yfir
því að flugfélagið hygðist þjónusta
Rússlandsmarkað að nýju, en til stóð að
flugið yrði á vegum dótturfélags Wizz
Air sem er með flugrekstrarleyfi í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum. Á
Wizz Air 49% hlut í dótturfélaginu á
móti 51% hlut sem er í eigu ríkisrekna
fjárfestingafélagsins ADQ.
Í tilkynningu sem flugfélagið sendi
frá sér á föstudag sagði að hætt hefði
verið við flugið til Moskvu vegna „tak-
markandi aðstæðna í aðfangakeðju
[flug]iðnaðarins“.
Eftir að Úkraínustríðið hófst hættu
evrópsk og bandarísk flugfélög að
fljúga til Rússlands og rússneskum
flugfélögum var um leið bannað að
fljúga inn í loftrými Evrópu.
Nokkur flugfélög bjóða enn upp á
reglulegt flug til Rússlands, s.s Turkish
Airlines, Etihad, Emirates og El Al.
Wizz Air er með mikla starfsemi á
Keflavíkurflugvelli og flýgur þaðan til
þrettán borga í Evrópu, s.s. Varsjár, Vín-
arborgar, Feneyja, Rómar, Lundúna og
Búdapest. ai@mbl.is
Wizz Air hættir við flug á
milli Moskvu og Abú Dabí
Stopp Netverjar voru ekki par hrifnir af
fyrirhuguðu flugi Wizz til Moskvu.
STUTT