Morgunblaðið - 22.08.2022, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
Inga Þóra Pálsdóttir
skrifar frá Blönduósi
Sorg hvílir yfir Blönduósi eftir þá voveiflegu
atburði sem áttu sér stað á sunnudagsmorgun.
Málið hefur fengið mjög á íbúana og ljóst að
þeir eru harmi slegnir.
Afar hljóðlátt hefur verið í bænum og margir
bæjarbúar hafa sjáanlega verið í áfalli.
Lögregla og sveitarstjórnin í Húnabyggð
stóðu fyrir upplýsingafundi fyrir íbúa Blöndu-
óss í félagsheimili bæjarins í gærkvöldi, en íbú-
arnir telja um eitt þúsund manns. Fjöldi þeirra
mætti á fundinn.
Að honum loknum var bæjarbúum boðinn
sálrænn stuðningur í Blönduóskirkju.
Streymdi fólk í kirkjuna í veðurblíðunni sem
annars einkenndi daginn, og voru margir
hverjir með tárin í augunum.
Til vitnis um harminn sem slegið hefur íbúa
bæjarins klökknaði Guðmundur Haukur Jak-
obsson forseti sveitarstjórnar er hann flutti yf-
irlýsingu stjórnarinnar fyrir þá fjölmiðlamenn
sem viðstaddir voru. Atburður á borð við þenn-
an ristir djúpt í samfélaginu.
Annað einkenndi þennan óvenjulega sunnu-
dag á Blönduósi og það var sá fjöldi fána sem
dreginn hafði verið í hálfa stöng. Nær hvert
sem litið var mátti sjá þetta sígilda tákn um
samhygð náungans.
Sorg yfir bænum
- Hljóðlátur sunnudagur að baki á Blönduósi
- Víða mátti sjá fána dreginn í hálfa stöng
Morgunblaðið/Hákon
Samúðarmerki Sjón eins og þessi var ekki óalgeng þegar gengið var um Blönduós í gær.
BAKSVIÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Líkt og oft eftir voðaverk varð umræða um lög-
gæslu og hvernig tryggja mætti öryggi borgar-
anna betur áberandi á félagsmiðlum. Þar var m.a.
spurt hvernig á því stæði að maður sem hefði verið
staðinn að því að hóta fólki með skotvopni og verið
lagður inn á geðdeild hefði gengið þaðan út, orðið
sér úti um annað skotvopn og látið til skarar
skríða.
Það á vafalaust eftir að koma betur í ljós á
næstu dögum, en það er ekki svo að stjórnvöld hafi
engin tæki til þess að hneppa í gæslu fólk, sem ótt-
ast er að geti valdið sjálfu sér eða öðrum tjóni.
Meðalhófið er nauðsynlegt
Þar þarf hins vegar að stíga varlega til jarðar,
það má ekki vera of auðvelt að svipta fólk frelsi
sínu vegna einhvers sem það hefur ekki gert. Hafi
það í hótunum og veifi vopnum er hins vegar kom-
in góð ástæða til þess að grípa inn í. „Ef við ætlum
að játa læknum eða lögregluþjónum vald til þess
að loka fólk inni bak við rimla vegna þess að þeim
líst ekki á það, þá er ekki víst að okkur þyki þær
ákvarðanir jafnásættanlegar,“ sagði lögmaður
með mikla reynslu á þessu sviði í samtali við
Morgunblaðið.
Þar þyrftu bæði að vera mörk og mótvægi, en í
lögræðislögum væru ýmsar heimildir til þess að
„taka úr umferð“ fólk, en ávallt háð ákvörðun
dómara. Þar dygði ekki til að fólk væri skrýtið eða
kenjótt, það þyrfti beinlínis að vera viti sínu fjær
til þess að það væri vistað gegn vilja sínum, sjálfu
sér og öðrum til verndar.
Hér ræðir þó ekki aðeins um lögfræðilegt álita-
efni, því innan heilbrigðiskerfisins eru einnig
skiptar skoðanir um nauðungarvistanir. Þar getur
aðsteðjandi hætta verið mismikil eftir sjúkdóm-
um, en svo geta einnig verið praktískari vandamál
eins og rými á geðdeildum. Þar geta læknar verið
ófúsir til þess að taka við nauðungarvistuðu fólki,
sem engan áhuga hefur á því að þiggja læknis-
hjálp, er ósamstarfsfúst, neitar lyfjagjöf og þar
fram eftir götum, meðan það getur verið biðlisti af
fólki, sem vill komast á geðdeild og leita sér hjálp-
ar. Læknarnir segi með nokkrum rétti að á sjúkra-
húsum eigi lækningar að ganga fyrir vistun, sem
snúi fremur að öryggi en heilbrigðisþjónustu.
Önnur úrræði
Þá vaknar spurningin hvort menn vilji athuga
sérstök úrræði fyrir fólk í þeirri stöðu. Á réttar-
geðdeildum er vistað veikt fólk sem hefur brotið af
sér með einhverjum hætti en þykir ekki sakhæft.
Ekki er víst að mönnum þætti það í góðu samræmi
við almenn mannréttindi, að þar væri um óákveð-
inn tíma vistað fólk sem ekki hefði gert nokkrum
manni mein, en óttast væri að gæti gert það vegna
þess að það á við geðræna kvilla að etja. Slíkt yrði
aldrei tekið í mál um annað fólk.
Auðvitað er það svo í félagslega kerfinu, heil-
brigðiskerfinu og réttarkerfinu, að þar vilja menn
gera hlutina rétt og vel, og ekki ganga fram af
meiri hörku en bráðnauðsynlegt telst. Um það rík-
ir sá almenni skilningur að ekki megi loka fólk inni
að nauðsynjalausu og ekki án réttrar málsmeð-
ferðar og mögulegs málskots.
Hins vegar má vel spyrja um þolinmæði almenn-
ings ef sú skoðun verður almenn að öryggi borg-
aranna sé ekki nógsamlega tryggt. Fyrir því eru
ýmis dæmi í öðrum löndum, þar sem borgararnir
freistast til þess að taka til eigin ráða.
Á því er ævinlega hætta ef ríkisvaldið gefur frá
sér valdið til þess að gæta öryggis borgaranna eða
vanrækir það. Og einmitt þess vegna er nauðsyn-
legt að þessi mál verði tekin til kostanna í góðu
jafnvægi, þrátt fyrir að tilefnið sé hörmungarmál
sem ríkar tilfinningar vekur.
Morgunblaðið/Hákon
Vettvangur Lögregla girti af húsið og lóðina á Blönduósi þar sem voðaverkin í gærmorgun voru framin, en aðkoman var skelfileg og rannsóknin erfið.
Nauðungarvistanir vegna
óorðinna hluta óæskilegar
- Viðbúið að umræða um öryggi borgaranna og vistunarúrræði fari af stað
Morgunblaðið/Hákon
Löggæsla Lögreglan var mjög sýnileg á Blöndu-
ósi í gær en bæjarbúar slegnir og lítið á ferli.
Guðmundur Haukur Jakobsson, for-
seti sveitarstjórnar Húnabyggðar,
ávarpaði fjölmiðla á Blönduósi í gær,
óskaði eftir tillitssemi þeirra og bað
þjóðina að standa með íbúum þar á
erfiðum tímum. Yfirlýsing sveitar-
stjórnarinnar fer hér á eftir:
„Íbúar svæðisins eru harmi slegn-
ir og við erum ennþá að vinna úr því
að þetta hafi raunverulega gerst.
Hugur allra íbúa Húnabyggðar er
hjá þeim látnu, hlutaðeigandi og að-
standendum þeirra sem tengjast
þessum hræðilega atburði. Sam-
félagið er í einhvers konar áfalli og
allir eru að reyna að ná utan um
þessa atburði og þær tilfinningar
sem þeim fylgja. Í litlu samfélagi
eins og okkar eru allir kunningjar,
vinir og/eða ættingjar og atburður
sem þessi ristir samfélagið djúpt.
Lokaður upplýsingafundur lög-
reglunnar og annarra viðbragðsaðila
fyrir íbúa svæðisins verður haldinn í
Félagsheimilinu á Blönduósi klukk-
an 20.00. Að þeim fundi loknum
verður boðið upp á sálrænan stuðn-
ing og samveru í Blönduóskirkju.
Sveitarstjórn beinir þeirri ósk til
fjölmiðla að sýna því skilning að
samfélagið er í sárum og þarf svig-
rúm til að vinna með þær sterku til-
finningar sem fylgja svona áfalli.
Rétt er að árétta að allar tæknilegar
upplýsingar um málsatvik eru á
borði lögreglunnar sem sér um upp-
lýsingagjöf vegna málsins.
Við biðlum til landsmanna allra að
standa með okkur á þessum erfiðu
tímum, við erum brotin og þiggjum
alla þá góðu strauma sem þið getið
veitt okkur. Eins óskum við þess að
þið hugsið vel til þeirra sem þessum
atburði tengjast. Það eru dökk ský
yfir okkur núna en með ykkar hjálp
komumst við í gegnum þetta saman.
Við leggjum áherslu á við alla sem
eiga um sárt að binda að Rauði
krossinn á Íslandi sinnir fjöldahjálp
og félagslegu hjálparstarfi og sími
þeirra, 1717, er opinn allan sólar-
hringinn.“
Þjóðin
beðin um
stuðning
- Yfirlýsing frá
sveitarstjórninni
Harmur Guðmundur Haukur Jakobsson,
forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar.
Harmleikur í Húnabyggð