Morgunblaðið - 22.08.2022, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 22.08.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is KAFFIVÉLAR SEM HENTA ÞÍNUM REKSTRI GOTT KAFFI KÆTIR Bravilor TH Frábær uppáhellingarvél með vatnstanki. Bravilor THa Frábær uppáhellingarvél með vatnstengi. Bravilor Sprso Handhæg og öflug baunavél sem hentar smærri fyrirtækjum. Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Saga berklanna á Íslandi og bar- áttan við þá má ekki gleymast. Þó greini ég að sársaukinn er enn mik- ill, svo þungbær voru áhrif þessara veikinda í samfélaginu öllu. Þúsund- ir fólks létust af völdum berkla og þau sem lifðu af náðu mörg hver aldrei fyrri styrk aftur,“ segir María Pálsdóttir, sem á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit starfrækir Hælið – setur um sögu berklanna. Þangað hafa margir lagt leið sína í sumar til þess að skoða þar sögusýningu um berkla á Íslandi; hvíta dauðann sem svo var oft nefndur. 5.900 manns létust úr berklum á Íslandi Sýningin að Kristnesi er í húsi þar sem áður var aðsetur starfs- fólks sjúkrahússins, sem reist var á staðnum um 1930 gagngert fyrir meðferð berklasjúkra. Þangað komu gjarnan sjúklingar af Norður- og Austurlandi, en raunar víðar að. Þannig náðist góður árangur á sjúkrahúsinu við Akureyri við höggningu sjúkra. Með því voru rif- bein, þrjú til níu, fjarlægð úr sjúk- lingnum þannig að brjóstkassi féll saman og berklasárið náði að gróa. Sjúklingar af öllu landinu komu til slíkra aðgerða fyrir norðan og fóru í framhaldinu að Kristnesi til að jafna sig aðeins áður en þeir fóru aftur á Vífilsstaði eða annað. Berklar eru, þegar allt kemur til alls, ekki svo ólíkir kórónuveirunni. Sjúkdómurinn berst milli fólks um öndunarfæri og um líkamann með blóðrás. Berklasýklar geta, segir á Vísindavefnum, tekið sér bólfestu í nýrum, beinum og miðtaugakerfi, en einkum í lungum. Frá veiku fólki berast sýklarnir út í andrúmsloftið og hætta á smiti eykst eftir því sem samskipti fólks eru nánari. Góð loftræsting og almennar kurteisisvenjur, svo sem þrif og að halda fyrir munninn þegar hóstað er, draga jafnan úr smithættu. Stærstan hluta 20. aldar voru berkl- ar mjög skæður sjúkdómur, sem loks tókst að vinna bug á. Almennt hreinlæti og góð sýklalyf höfðu þar afgerandi áhrif. Um 1980 var því lýst yfir að berklar á Íslandi væru úr sögunni; þá að því gefnu að á árunum 1911 til 1970 létust hér á landi 5.900 manns úr berklum. Legið í þagnargildi María Pálsdóttir, þjóðþekkt leik- kona, er frá Reykhúsum í Eyja- fjarðarsveit sem eru á hlaðinu við Kristnes. Hún segist lítið hafa vitað um berklana í uppvextinum annað en að sjúklingar hafi legið á sjúkra- húsi á Kristnesi. Ekkert velt þessu mikið fyrir sér. Þó ekki fundist ann- að koma til greina en að tengjast sögu berklanna þegar hugmyndin um að færa líf í niðurnídd starfs- mannahúsin kviknaði. Sýningin Hvíti dauði var opnuð fyrir þremur árum, en kaffihúsið sem er á sama stað ári fyrr. „Berklarnir voru mjög skæðir hér fyrir norðan. Eins veit ég að hingað komu margir sjúklingar til dæmis frá Vopnafirði og af Langa- nesi. Sögur af þjáningum þessa fólks hafa lifað í fjölskyldum við- komandi. Margir hafa því komið í eins konar pílagrímsferðir hingað til að sjá hvar amma eða afi dvöldu eða jafnvel dóu,“ segir María. Hún kveðst hafa orðið þess vör að sjúk- dómurinn hafi gjarnan legið í þagn- argildi. Eðlilega óttaðist fólk smit og bannaði börnum sínum að koma nálægt berklaheimilum. Þá fékk fólk sem glímt hafði við berkla síður vinnu en aðrir, var jafnvel gert að hætta námi og átti erfitt með að fá leigt húsnæði. Viðbót við mikla sögu Einn þeirra sjúklinga sem dvöld- ust á Kristnesi var Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar, móðir Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Við opnun Hælisins sumarið 2019 var Ólafur Ragnar meðal gesta. Sjálfur hefur hann sagt frá móður sinni og veikindum hennar sem réðu því að hún var árum saman frá manni sínum og ungum syni. Nú er reyndar svo komið að í haust verður á Hælinu opnuð sérstök Svanhildarstofa sem er viðbót við þá miklu sögu sem annars er sögð á Hælinu. Ævi og örlög Svanhildar verða þar útgangs- punktur á sýningu sem hefur að öðru leyti víða skírskotun. Formleg opnun stofunnar verður í október – og verður Ólafur Ragnar þar við- staddur. Opið er daglega á Hælinu fram til morgundagsins, 23. ágúst, en þaðan í frá aðeins um helgar milli kl. 14 og 17. Svanhildarstofa opnuð senn - Hvíti dauðinn á Kristnesi - Berklum svipar til Covid - Sársaukinn er mikill Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hælið Baráttan við berklana má ekki gleymast, segir María Pálsdóttir, klædd sem hjúkrunarkona á sögusetrinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kristnes Reisulegar byggingar reistar um 1930. Eftir berkla fékk staðurinn hlutverk sem endurhæfingarstofnun. Tekjur af erlendum ferðamönnum á öðrum fjórðungi ársins námu tæp- lega 115 milljörðum króna en voru 29,6 milljarðar á öðrum ársfjórð- ungi 2021, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2021 til júní 2022 voru tekjur af er- lendum ferðamönnum 332 millj- arðar króna samanborið við tæplega 79 milljarða fyrir sama tímabil ári fyrr. Fram kemur í skammtímavísum ferðaþjónustu í ágúst að fjöldi starf- andi samkvæmt skrám í einkenn- andi greinum ferðaþjónustu á Ís- landi var 29.067 í maí sl. sem er 62% aukning frá maí 2021. Á tólf mánaða tímabili frá júní 2021 til maí 2022 starfaði að jafnaði 24.701 í ein- kennandi greinum ferðaþjónustu en 17.440 sama tímabil árið áður. Gistinætur á hótelum í júní voru rúmlega 496 þúsund en höfðu verið tæplega 191 þúsund í júní 2021. Gistinætur Íslendinga voru 91.388 í maí, eða 9% fleiri en í júní 2021, og gistinætur erlendra gesta 404.962 en voru um 107 þúsund í júní í fyrra. Morgunblaðið/Eggert Umskipti Mikil umskipti hafa orðið í ferðaþjónustunni á þessu ári sam- anborið við síðasta ár, bæði hafa tekjur aukist og störfum fjölgað. Tekjur margfaldast - Umsvif í ferðaþjónustu hafa aukist mikið á þessu ári miðað við 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.