Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 18

Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022 ✝ Vilborg Ein- arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 5. júlí 1984. Hún lést á krabbameins- deild Landspít- alans 13. ágúst 2022. Móðir hennar og uppeldisfaðir eru: Guðný Pétursdóttir og Guðmundur Stefán Maríusson. Systkini Vilborgar eru Hlynur Rafn Guðmundsson og Hrund Guðmundsdóttir. Faðir hennar og stjúpmóðir eru: Einar Steinsson og Lena Hallgríms- dóttir. Hálfsystir Vilborgar er María Dröfn Einarsdóttir, móð- ir hennar er Ingibjörg Elín Jónasdóttir. Vilborg gekk að eiga Hannes Rúnar Hannesson 16. ágúst 2014. Móðir hans er Guðrún Svala Guðmundsdóttir og faðir hans var Hannes Haraldsson, sem er látinn. Vilborg og Hann- Vesturbæ Reykjavíkur og gekk þar í grunnskóla. Á unglings- árum hennar flutti fjölskyldan á Seltjarnarnes og hefur búið þar síðan. Vilborg þótti bráð- ger sem barn, var fljót að byrja að ganga og tala. Hún fylgdi móður sinni í nám til Svíþjóðar fimm ára gömul. . Á Íslandi naut hún þess að alast upp í nánu umhverfi fjölskyldu móð- ur sinnar. Ekki síst með Pétri, frænda sínum og jafnaldra. Vil- borg nam sálfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist með BS- gráðu 2008. 2015 útskrifaðist hún með MBA-gráðu frá sama skóla. Vilborg vann lengi í fjar- skiptageiranum, bæði hjá Tali og síðar 365. Frá 2017 starfaði hún sem deildarstjóri hjá Ör- yggismiðstöð Íslands. Hugðarefni Vilborgar sneru fyrst og síðast að börnum henn- ar og fjölskyldu. . Hún var náin foreldrum sínum og systkinum og átti reglulegar og góðar samverustundir með þeim. Hún hafði gaman af því að hekla, hreyfa sig og syngja. Útför Vilborgar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 22. ágúst 2022, kl. 13. Streymi: https://tinyurl.com/4t7jftuy es hófu sambúð 2008 á stúd- entagörðum við Háskóla Íslands. Árið 2011 keyptu þau sína fyrstu eign í Furugrund 14 í Kópavogi, í ná- lægð við uppeld- isstöðvar Vilborg- ar, þar sem þau bjuggu í rúm fjög- ur ár. Árið 2016 fluttu þau sig um set í Tjarn- arból 10 á Seltjarnesi í nálægð við fjölskyldu Vilborgar og hafa búið þar síðan. Þau voru samstillt frá fyrsta degi og nutu hjónalífsins en ekki síður vináttunnar sem var einstök. Börn þeirra eru: Guðný Hekla, tíu ára, og Hugrún Svala, sex ára. Vilborg ólst upp í Snælandi í Kópavogi með móður sinni og fjölskyldu hennar. Átta ára flutti hún með móður sinni og uppeldisföður á Hagamel í Það er svo sárt að sitja hérna og minnast Vilborgar sem kvaddi okkur í blóma lífsins. Foreldrar eiga ekki að jarða börnin sín. Sem barn var hún einstaklega fljót til og var farin að ganga og tala langt á undan jafnöldrum sínum. Vilborg var með einstaka aðlögunarhæfni, ljúf, hjartagóð og alltaf tilbúin til að aðstoða. Vilborg tók fullan þátt í uppeldi systkina sinna og naut þess vel nema kannski einu sinni þegar hún kom úr Melabúðinni með bróður sínum og hann kallaði hana mömmu í búðinni og hún bara fjórtán ára. Vilborg var ekki glöð með bróður sinn þá. Vilborg eignaðist tvær dætur með Hannesi eiginmanni sínum og var einstök mamma sem leið- beindi þeim vel í uppeldinu og gaf sér alltaf tíma til að hlusta á þær. Eftir að Vilborg greindist með krabbamein nýtti hún allan tíma sem hún hafði með fjöl- skyldu sinni vel. Hún fór í sína síðustu ferð með stórfjölskyld- unni til Tenerife núna í júní þrátt fyrir að hún væri fótbrotin og veik. Hún ætlaði í þessa ferð og í þessari ferð urðu til margar minningar sem fjölskyldan og þá sérstaklega dætur hennar munu lifa á í komandi framtíð. Þó að Vilborg hafi ferðast víða bæði innanlands og erlendis þá er komið að síðasta ferðalaginu hennar. Við biðjum Guð að varð- veita Hannes og dætur hennar, þær Guðnýju Heklu og Hugrúnu Svölu. Að lokun er hér ljóð sem mamma hennar söng fyrir hana þegar hún var lítil. Sofðu unga ástin mín, – úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. (Jóhann Sigurjónsson) Góða nótt, sofðu rótt í alla nótt og dreymi þig vel. Elskum þig. Mamma og pabbi Gummi. Elsku besta Vilborg okkar, við elskum þig og það er erfitt að kveðja þig. Vilborg var frábær stóra syst- ir og fyrirmynd en fyrst og fremst góð manneskja og það voru forréttindi að alast upp með henni. Foreldrar okkar teygðu barneignir yfir langt tímabil en Vilborg var 11 ára þegar Hlynur fæddist og 17 ára þegar Hrund kom í heiminn. Þetta olli oft smávægilegum mis- skilningi en við systkinin köll- uðum hana bæði mömmu fyrir slysni oftar en einu sinni og oft- ar en tvisvar, við misgóðar und- irtektir hennar Einna helst er okkur minn- isstætt þegar Hlynur var þriggja ára og kallaði Vilborgu, 14 ára gamla, óvart mömmu í Melabúðinni og gömlu konunar litu hornauga á hana fyrir að eiga barn svona ung. Vilborgu var ekki skemmt. Einnig þegar Hrund var skírð í opinni messu við Vesturbæjarkirkju hélt Vil- borg á henni, 17 ára gömul, en foreldrar okkar stóðu bak við hana líkt og skírnarvottar. Vilborg bjó yfir öllum þeim kostum sem einkenna góðar mæður en hún var hjartahlý, ráðagóð og skemmtileg, því var ekki skrýtið að við systkini hennar skyldum líta á hana sem móður fyrstu ár okkar ævi. Þeg- ar Vilborg var laus undan því að passa yngri systkini sín bauð hún okkur reglulega yfir í spila- kvöld með Hannesi og Rebba en hún elskaði að spila alls konar spil. Vilborg var manneskja sem maður gat alltaf leitað til með hvað sem er og við litlu systkinin hennar erum mjög þakklát fyrir það en við værum ekki þær manneskjur sem við erum í dag ef það væri ekki fyrir Vilborgu. Hún tók svo sannarlega mikinn þátt í því að leiðbeina okkur í gegnum lífið. Þrátt fyrir að hafa þurft að berjast við krabbamein síðasta eina og hálfa árið var Vil- borg ennþá hjartahlýja og góða systir okkar og gaf sér enn tíma til að hlusta og leysa vandamál okkar. Húmorinn var líka sjald- an langt undan og þrátt fyrir erfiða tíma var alltaf hægt að hlæja og skemmta sér með henni. Elsku besta systir okkar, þrátt fyrir að við þurfum að kveðja þig núna lifir minning þín áfram hjá okkur öllum og þú verður ávallt í hjarta okkar. Hlynur Rafn Guðmundsson og Hrund Guðmundsdóttir. Elsku Vilborg, tengdadóttir mín, er látin langt fyrir aldur fram frá tveimur dætrum sem voru henni allt, elskandi eigin- manni, stórfjölskyldu og vinum. Hún háði harða baráttu við krabbamein síðustu 15 mánuði, þar sem persónueiginleikar hennar komu skýrt fram. Hug- ulsemi hennar í garð annarra og innri styrkur kom sterklega fram sem létti hennar nánustu síðustu mánuðina. Vilborg var þægileg í um- gengni og hafði mjög góða nær- veru og var næm á fólk. Við áttum margar yndislegar stundir saman þegar fjölskyldan kom norður til okkar. Í samræð- um og skoðanaskiptum sá hún alltaf jákvæðu hliðarnar og kom þeim á framfæri sem var svo gott til eftirbreytni. Hún var mjög mikil mamma, lék við og söng með stelpunum sínum og kenndi þeim lög og texta. Það var mjög gaman og gefandi að vera áheyrandi að því. Hún sjálf var mjög söngvin og kunni þar vel til verka. Megi eilífðar ljós á þig skína. Kærleikur umlykja. Og þitt innra ljós þér lýsa, áfram þinn veg. Ástvinum Vilborgar votta ég mína dýpstu samúð. Með kærleik og þakklæti kveð ég tengdadóttur mína Vilborgu Einarsdóttur. Guðrún Guðmundsdóttir. Það var gleði- og tímamóta- dagur 5. júlí árið 1984, þegar Guðnýju og Einari fæddist dótt- ir. Stúlkan var fyrsta barnabarn- ið í okkar systkinahópi og var skírð Vilborg í höfuð móður- ömmu sinnar. Viku seinna fædd- ist síðan annað barnabarn, Pét- ur, þeim Guðrúnu, systur Guðnýjar, og Benedikt. Frænd- systkinin ólust upp í miklu sam- neyti hvort við annað, fóru m.a. í Rokkskóla Rokklingana, þar sem Vilborg blómstraði í dansi og söng og hún fylgdi frænda sínum á fótboltamót vítt og breitt um landið. Miklir kærleik- ar voru með Vilborgu og Guð- rúnu og kallaði hún Guðrúnu alltaf frænku og sendi henni jólapakka sem á stóð „til frænku frá frænku“. Vilborg var bráðgert barn og talaði rétt og skýrt mjög snemma. Ókunnugt fólk stoppaði við þegar þessi litli engill með fallega brosið og hvítu krullurn- ar talaði eins og fullorðin mann- eskja. Aumingja Pétur frændi hennar, sem tók út eðlilegan málþroska, átti erfitt með að bera fram nafn frænku sinnar og þurfti að sætta sig við að vera leiðréttur af litla málfarsráðu- nautinum frænku sinni. „Ég heiti ekki Bígott, ég heiti Vil- borg,“ sagði hún þegar frændi hennar var að reyna að segja nafnið hennar. Þeir komu því snemma í ljós hennar fallegu eiginleikar, um- hyggjusemi í bland við ákveðni og metnað. Fallega brosið henn- ar og hvítu krullurnar bræddu alla. Það var gott að vera í návist hennar. Þegar Vilborg var þriggja ára eignaðist Pétur frændi hennar lítinn bróður. Guðný og Einar höfðu þá slitið samvistum og Vil- borg hafði áhyggjur af því að hún myndi ekki eignast systkini. Hún ræddi þetta við mömmu sína, sem sagði að fyrst þyrfti hún að finna mann. „Getur ekki önnur okkar fundið mann,“ sagði sú stutta þá. Guðný og Vilborg komu oft í heimsókn vestur í bæ til Þór- unnar systur Guðnýjar. Örlögin höguðu því þannig að í sama stigagangi bjó atorkumikill mað- ur, Guðmundur Stefán, og það reyndist vera maðurinn sem þær mæðgur voru að leita að. Gummi varð Vilborgu frábær faðir, um- hyggjusamur, styðjandi og ráða- góður. Hann hefur nú reyndar verið ráðgjafi og reddari allrar fjölskyldunnar. Síðast en ekki síst lagði hann sitt af mörkum til að Vilborg fengi systkini, þau Hlyn og Hrund. Systkinasam- band þeirra var ástríkt og fal- legt. Í háskólanum kynntist Vil- borg ástinni sinni, honum Hann- esi. Saman eiga þau tvær dásamlegar stúlkur, Guðnýju Heklu og Hugrúnu Svölu, sem bera foreldrum sínum fagurt vitni. Brosið og hvítu krullurnar hafa systurnar fengið í arf frá mömmu sinni. Vilborg og Guðný voru tvær einar lengi framan af og bjuggu m.a. í Svíþjóð í tæp tvö ár. Þær áttu sterkt og heilt mæðgnasam- band og hefur verið aðdáunar- vert að sjá hvernig stuðningur, væntumþykja og ást þeirra hef- ur verið akkeri í veikindum Vil- borgar. Elsku fjölskylda, missir ykkar er mikill og óbærilegur, megi minning elsku Vilborgar verða ykkur styrkur. Pétur frændi mun örugglega taka á móti Bí- gott sinni og þau taka kannski Rokklingasöng og -dans og framburðaræfingar. Vilmar og Elsa, Guðrún og Benedikt og Þórunn og Páll. Í fyrrahaust vorum við svo lánsamar að kynnast Vilborgu í Ljósinu. Þrátt fyrir að erfiðleik- ar sem lífið lagði fyrir hafi leitt okkur saman var alltaf stutt í gleði, hlátur og hispursleysi í hópnum – allt mikilvægir þættir þegar svo krefjandi verkefni eru fyrir höndum. Milli okkar mynd- aðist dýrmæt vinátta og við „ljósaperurnar“ hittumst reglu- lega síðastliðinn vetur í Ljósinu og Spírunni. Á stuttum tíma eignuðumst við margar góðar minningar. Við skemmtum okk- ur oft svo vel á leirnámskeiði að hlátrasköllin bárust um allt hús svo forvitið fólk kíkti inn til að athuga hvað væri svona fyndið. Vilborg dundaði við fallega jóla- sveina fyrir jól í gjafir og sagði sögur af dætrum sínum. Yndis- legar stundir sem gleymast seint. Vilborg mætti, sama hvað á bjátaði, og var ótvírætt mesti töffarinn í hópnum undir sinni mildu nærveru og geislandi brosi. Hún setti sterkan svip á samveruna okkar og við munum sakna hennar; þakklátar fyrir samfylgdina þótt alltof stutt hafi verið. Við vottum dætrum hennar og fjölskyldu innilega samúð. Arna Ösp Herdísardóttir, Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir, Sólveig Þrastardóttir, Hanna Björg Margrétardóttir, Svanhildur Ragna Guðmundsdóttir. Elsku besta Vilborg mín, það er svo sárt að horfa á eftir þér og söknuðurinn er mikill. Þú varst einstök manneskja og vin- kona, vildir öllum vel og hafðir stórt hjarta sem rúmaði mikla Vilborg Einarsdóttir Ástkær móðir og tengdamóðir, ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR söngkona, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 12. ágúst. Útför Þuríðar fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. ágúst klukkan 13. Athöfninni verður streymt á streyma.is. Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat. Fyrir hönd barnabarna, ættingja og annarra aðstandenda, Kristín Arnardóttir Hermann Tönsberg Guðmundur Páll Arnarson Guðrún Guðlaugsdóttir Laufey Arnardóttir Björn Kristinsson Elsku eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, SIGURBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR, Hlíðarhjalla 69, Kópavogi, lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 15. ágúst á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 29. ágúst klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæslunnar. Sölvi Bragason Oddbjörg Kristjánsdóttir Ægir Örn Símonarson Rannveig Ósk Sölvadóttir Stefán Kári Ægisson Sigurbjörg Ósk Ægisdóttir Guðmundur Örn Ægisson Elsku hjartans besti eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GÍSLI SIGURJÓNSSON, Mávahrauni 2, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 13. ágúst. Útför hans fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 13. Jóhanna Halldóra Bjarnadóttir Sæmundur Hreinn Gíslason Anna Lilja Sigurðardóttir Sigurjón Már Birgisson Regina H. Stridal og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ERLING ASPELUND, Tómasarhaga 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 8. ágúst. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 15. Þórey Aspelund Kristín Aspelund Hákon Aspelund Erling Aspelund Kristín Björnsdóttir Karl Aspelund Brenda Aspelund Thor Aspelund Arna Guðmundsdóttir Guðrún Aspelund Gunnar Jakobsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og afi, HARALDUR LOGI, Mjósundi 10, Hafnarfirði, lést af slysförum á heimili sínu á Tenerife 6. febrúar. Minningarathöfn verður haldin á 50 ára afmælisdegi hans í Lindakirkju þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 17. Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir Guðjón Logi Haraldsson Salma Björk Önnudóttir Ragnheiður K. Haraldsdóttir Haraldur Logi Haraldsson Björk Linnet Haraldsdóttir Björk Linnet Haraldsdóttir Kolbrún K. Jóhannsd. Sölvi Egilsson Anna S. Árnadóttir Flóki Hrafn Sævarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.