Morgunblaðið - 22.08.2022, Page 25

Morgunblaðið - 22.08.2022, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022 Malbikstöðin ehf • 516 0500 • tilbod@malbikstodin.is • malbikstodin.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG Á EINA Í ÞINNI STÆRÐ, FRÚ MÍN GÓÐ, EN ÞÚ ÞARFT LÍKA AÐ KAUPA BORÐIÐ SEM FYLGIR MEÐ HENNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sofa þétt upp við hvort annað. OG GUÐDÓMLEIKINN KEMUR ÚT! LÚTUR, FINNST ÞÉR ÉG AÐLAÐANDI? AUÐVITAÐ! MYNDI ÉG SYNGJA FYRIR ÞIG ALLAR NÆTUR EF SVO VÆRI EKKI? KAFFIÐ FER INN… ÞAÐ MUNAÐI ENGU AÐ BJÖRN ÞYRFTI AÐ HÆTTA VIÐ BÓNORÐIÐ ÞAR SEM HANN VAR KLOFINN Í AFSTÖÐU SINNI. SYK UR Ó, HUNAN G, HUNANG REG NHL ÍFA R hjónin Snorri Snorrason flugstjóri, f. 2.5. 1930, d. 21.1. 2012, og Nanna Nagtglas Snorrason húsmóðir, f. 9.3. 1930, d. 11.9. 2013. Þau bjuggu í Kópavogi og Garðabæ. Fyrri maki Höddu Bjarkar var Karl G. Krist- insson, f. 22.8. 1953, læknir. Synir Höddu Bjarkar og Karls eru: 1) Kári Steinn, f. 19.5. 1986, fjármálastjóri. Maki: Aldís Arnar- dóttir f. 2.8. 1987, sviðsstjóri. Synir þeirra eru Arnaldur, f. 30.11. 2018, og Eysteinn Ari, f. 22.2. 2020; 2) Gísli Hrafn, f. 16.9. 1989, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Maki: Andrea Lilja Ottósdóttir, f. 15.5. 1990, sérfræðingur á mannauðssviði. Börn þeirra eru Elín Björk, f. 15.7. 2017, og Logi Hrafn, f. 2.6. 2021; 3) Hjalti Sigurður, f. 9.4. 1993, B.Sc. í sálfræði. Maki: Inga Brá Ólafs- dóttir, f. 26.4. 1993, flugmaður. Dótt- ir þeirra er Bríet Lena, f. 14.7. 2021. Sonur Höddu Bjarkar og Hauks er Sigurður Snorri, f. 18.5. 2004, menntaskólanemi. Stjúpdóttir Höddu Bjarkar er Anna Kristín Karlsdóttir, f. 5.7. 1980, arkitekt. Maki: Jan Dobrowolski arkitekt. Dóttir þeirra er Lína Björk, f. 30.8. 2016. Systur Höddu Bjarkar eru Anna Fjóla Gísladóttir, f. 7.12. 1960, ljós- myndari; Elfa Lilja Gísladóttir, f. 28.4. 1964, tónlistarkennari; Edda Sólveig Gísladóttir, f. 20.8. 1974, við- skiptafræðingur. Foreldrar Höddu Bjarkar eru hjónin Gísli B. Björnsson, grafískur hönnuður, f. 23.6. 1938, og Lena Margrét Rist, kennari og náms- ráðgjafi, f. 12.12. 1939. Þau bjuggu í Þýskalandi á námsárum sínum en hafa síðan búið í Reykjavík. Hadda Björk Gísladóttir Baldvin Björnsson gullsmiður og listmálari í Berlín, Vestmannaeyjum og Reykjavík Martha Clara Bemme Björnsson veitingakona og húsmóðir í Berlín, Vestmannaeyjum og Reykjavík Harald St. Björnsson verslunarmaður og framkvæmdastjóri í Reykjavík Fjóla Þorsteinsdóttir húsmóðir í Reykjavík Gísli Baldvin Björnsson teiknari í Reykjavík Þorsteinn Jónsson útgerðarmaður og skipstjóri í Vestmannaeyjum Elínborg Gísladóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum Joseph Ruckert vagnasmiður í Mannheim Magdalena Herzberger Ruckert húsmóðir í Mannheim Hans Ruckert vélvirki í Mannheim, Þýskalandi Anna Lárusdóttir Rist verkakona og húsmóðir á Akureyri Margrét Sigurjónsdóttir húsmóðir á Akureyri Lárus Jóhannsson Rist íþrótta- og sundkennari á Akureyri og í Hveragerði Ætt Höddu Bjarkar Gísladóttur Lena Margrét Rist kennari og námsráðgjafi í Reykjavík Í aðfaraorðum bókarinnar „Limr- ur“ eftir Kristján Karlsson skrifaði ég: „Ég nefni hér til sög- unnar limru, sem ég naut ekki til fulls, fyrr en ég áttaði mig á, að hana verður að bera fram á upp á eyfirsku, segja saggði fyrir sagði og braggði fyrir bragði eða: Allt sem William Shakespeare saggði, það saggði hann óðara að braggði. Ef hann saggði ekki orð, sem lá alltaf við borð, var ástæðan sú að hann þaggði.“ Með lausn Helga R. Einarssonar á gátunni á laugardag komu tvær limrur tengdar gosinu: Bannað innan 12 ára Fróðleiksþyrstur fór til fjalla, lítill, mjór, en það vissi’ ei þetta grey hann þyrfti að vera stór. Vitkast sá er sér það sem að fyrir ber. Þótt einn sé mjór (og máski’ ei stór) oft mikils vísir er. Ágústnótt eftir Ingólf Ómar: Aftanblærinn andar rótt anga grös í moldu. Meðan læðist hægt og hljótt húmið yfir foldu. Glóey fléttar geislaband glampi skýja hrífur. Nóttin mild um lög og land létt á vængjum svífur. Kyrrðin vefur höndum hljóð heiðar strönd og voga. Skýin ofin skarlatsglóð skreyta himinboga. Limra eftir Jóhann S. Hannesson: Það er furðulegt ástand í Ankara. Þar er allt fullt með vestfirska sankara. Þeir kaupa upp allt sem er yfirleitt falt, jafnvel antíka gólfteppabankara. Anton Helgi Jónsson yrkir á Boðnarmiði „Tekjuvísu dagsins“: Við mér blasir veröld fín veisluborðið hlaðið. Áfjáð gleypir öfund mín í sig tekjublaðið. Heilræði 13 eftir Ármann Þor- grímsson: Ef að þornar orku lind ekkert við það hikið fáið ykkur göngugrind það gagnast flestum mikið. Þórhallur Og Berta yrkja: Upp úr jörðu eldur gýs inni í fjallasölum. Og nú svífur eiturský yfir Meradölum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Upp á eyfirsku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.