Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 4
Lið Líflands með Hermann Árna- son sem knapa sigraði í þolreiðar- keppi Landssambands hestamanna- félaga, Survive Iceland 2022, sem lauk á Rjúpnavöllum á sunnudag. Heildartími Hermanns var 14 klukkustundir og 11 mínútur. Í öðru sæti varð lið H. Hestaferða, með Emelie Sellberg sem knapa, og í þriðja sæti varð lið Eldhesta með Sigurjón Bjarnason sem knapa. Sigurjón var valinn knapi mótsins ásamt Sami Browneller en þau hlutu fæst refsistig. Hestur mótsins var valinn Karel frá Stóru-Heiði úr liði H. Hestaferða en hann fékk engin refsistig fyrir púls eða áverka og var fyrstur í mark á öllum þeim áföngum sem hann fór. Emelie Sell- berg sat Karel. Þolreiðarkeppnin fór fram dag- ana 25. til 28. ágúst. Sex lið kepptu en í hverju liði voru einn knapi, tveir aðstoðarmenn og þrír hestar. Á hverjum degi reið hver knapi 50 til 70 kílómetra á þremur hestum. Heildartíminn réð úrslitum. Að keppni lokinni fór fram dýralæknis- skoðun og álagsskoðun Mast. LH telur keppnina hafa tekist vel og gefi dýrmæta reynslu til að þróa reglur. Hermann vann þolreiðina - Karel valinn hestur keppninnar en hann var án refsistiga Sigurvegarar Hermann Árnason með Árdísi og Emelie Sellberg með Karel. Endurvinnsluhlutfall plasts og pappírs 2016-2020 100% 75% 50% 25% 0% 2016 2017 2018 2019 2020 99,5% 32,0% Heimild: Ríkisendurskoðun Pappi og pappír Plastumbúðir og heyrúlluplast 83,1% 28,9% 90,9% 29,3% Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Koma þarf á skilvirkum leiðum til að sannreyna raunveruleg afdrif úr- gangs að því marki sem unnt er. Setja þarf fram skilmála um hvaða gagna er krafist til staðfestingar á því og hvernig vottun þeirra skuli háttað. Einnig þarf að skoða hvernig hægt er að stuðla að aukinni endurvinnslu hérlendis. Kemur ofangreint fram í ábending- um Ríkisendurskoðunar að lokinni út- tekt á starfsemi Úrvinnslusjóðs sem kynnt var í gær. Lagðar eru fram til- lögur til úrbóta í sex liðum. Misbrestur á efndum Varðandi útgreiðslur hefur Úr- vinnslusjóður takmarkað eftirlit með því hvort sú ráðstöfun sem samið er um við þjónustuaðila, til dæmis um endurvinnslu eða förgun, og greitt er fyrir, fari raunverulega fram. Eins hvort um sé að ræða vottuð ferli. Rifj- uð eru upp tilvik þar sem ráðstöfun hefur ekki verið í samræmi við samn- inga og greiðslur. Plastúrgangur var sendur til endurvinnslu og endurnýt- ingar í Svíþjóð en hafnaði í geymslum þriðja aðila þar sem plastið sat miss- erum saman í stað þess að fara í end- urvinnslu. Sambærilegar aðstæður hafa komið upp innanlands, þegar fyrirtæki sem safnaði rúllubagga- plasti varð gjaldþrota. Ríkisendurskoðun telur nauðsyn- legt að koma á skilvirkum leiðum til að sannreyna raunveruleg afdrif úr- gangs, eftir því sem unnt er. Hún nefnir um leið að ný ákvæði laga um Úrvinnslusjóð, sem tóku gildi á síð- asta ári, leggi auknar skyldur á herðar Úrvinnslusjóðs að tryggja við- eigandi meðhöndlun úrgangs, áður en greiðslur eru inntar af hendi til samn- ingsaðila. Unnið er að þessu hjá sjóðnum og telur Ríkisendurskoðun að hraða þurfi vinnunni. Breytt verði um fyrirkomulag Telur stofnunin að styrkja þurfi starfsemi Úrvinnslusjóðs, skrá verk- ferla, koma á innra eftirliti og upp- færa reglulega skilmála um með- höndlun úrgangsflokka. Bæta þarf eftirlit með innheimtu úrvinnslugjalds og tryggja að þeir sem greiða eigi gjaldið skili sér á gjaldendaskrá, samkvæmt ábendingu Ríkisendurskoðunar. Í lögum eru heimildir til að fella úrvinnslugjald niður þegar fluttar eru inn vörur til innlendrar framleiðslu sem síðar eru fluttar úr landi og koma ekki til úr- vinnslu hér. Ekki hefur verið fylgst með því að vörurnar séu raunveru- lega fluttar út. Telur Ríkisendurskoð- un því árangursríkara að innheimta úrvinnslugjald við innflutning og end- urgreiða síðan gjaldið gegn staðfest- um gögnum um útflutning og felur ein af ábendingum hennar í sér að það skuli skoðað. Ríkisendurskoðun telur að efla þurfi stuðning umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis þegar upp koma álitamál í starfsemi Úrvinnslusjóðs og greiða úr ólíkri túlkun innan stjórnar hans. Þá þarf ráðuneytið að leggja aukna áherslu á gæði og áreið- anleika gagna og tölfræði um úrgang. Sannreyna þarf afdrif úrgangs - Ríkisendurskoðun með ábendingar eftir úttekt á starfsemi Úrvinnslusjóðs - Greitt er fyrir förgun úrgangs án þess að eftirlit sé með afdrifum hans - Bæta þarf eftirlit með innheimtu úrvinnslugjalds 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Útför Þuríðar Pálsdóttir söngkonu fór fram frá Dómkirkjunni í gær. Sr. Sveinn Valgeirsson jarðsöng, organisti var Kári Kárason Þormar, Bryndís Halla Gylfadóttir lék á selló, Einar Gil- ísabet Benediktsdóttir, Jónas Guðmundsson og Örn Tönsberg. Þuríður fæddist í Reykjavík 11. mars 1927. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 12. ágúst. bertsson söng einsöng og Dómkórinn og kvenna- kór sungu. Kistuna báru Ingibjörg Tönsberg, Þuríður Tönsberg, Einar Tönsberg, Kristinn Örn Björnsson, Erna Tönsberg, Sigríður El- Morgunblaðið/Eggert Þuríður Pálsdóttir jarðsungin Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissak- sóknari hefur hvorki svarað símtölum né skriflegum fyrir- spurnum Morgunblaðsins vegna form- legrar áminn- ingar sem hann fékk í starfi vegna ummæla sem hann lét falla á Facebook. Þau vörðuðu bæði hælisleitendur og samkynhneigða karlmenn. Ummæl- in hafa vakið upp mikla reiði og hafa Samtökin ’78 m.a. kært vara- ríkissaksóknarann vegna þeirra. Engin svör frá vara- ríkissaksóknara Helgi Magnús Gunnarsson Paola Cardenas hefur verið skip- uð formaður inn- flytjendaráðs. Paola er sálfræð- ingur, fjölskyldu- fræðingur og doktorsnemi í sálfræði við Há- skólann í Reykja- vík. Hún hefur um árabil starfað í Barnahúsi, auk þess að hafa unnið hjá Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja, Rauða krossi Íslands og á BUGL. Paola nýr formaður innflytjendaráðs Paola Cardenas

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.