Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 ✝ Ásgeir Svan- bergsson fædd- ist 4. október 1932 á Álftamýri í Arn- arfirði. Hann lést á Hömrum í Mos- fellsbæ 15. ágúst 2022. Foreldrar Ás- geirs voru Svan- berg Sveinsson, málari á Ísafirði, f. 1907, og Þorbjörg Kristjánsdóttir, kennari, f. 1910. Börn þeirra, auk Ásgeirs: Gísli Guðjón, f. 1934, Ingibjörg, f. 1940, Erla Guðný, f. 1944, og Þorbjörg, f. 1949. Eiginkona Ásgeirs var Ást- hildur Pálsdóttir frá Þúfum, f. með Ragnheiði Guðmundsdóttur, f. 1931, er Áslaug Ásgeirsdóttir, f. 1953. Hún á Björn Inga, Guð- mund Heiðar og Guðrúnu Maríu. Stjúpdætur Ásgeirs, dætur Ásthildar eru: Bryndís Þórhalls- dóttir, f. 1949. Maki Vilbergur Stefánsson. Hún á Ragnheiði Bergdísi, Pál Björgvin og Kjart- an Hávarð. Björg Þórhallsdóttir, f. 1949. Maki Gunnbjörn Ólafs- son, látinn. Hún á Ásgeir, Krist- ínu Sif og Drífu. Hann ólst upp á Ísafirði, var bóndi í Þúfum í Ísafjarðardjúpi 1954-1973, síðar kennari í Þing- hólsskóla í Kópavogi og starfs- maður Skógræktarfélags Reykja- víkur síðast framkvæmdastjóri þess til eftirlaunaaldurs. Hann fékkst við ættfræðirannsóknir og er höfundur bóka á því sviði auk handbókar um tré og runna. Ásgeir verður kvaddur í at- höfn á vegum Siðmenntar frá Fossvogskirkju í dag, 30. ágúst 2022, klukkan 13. 1925. Hún lést 2019. Afkomendur þeirra eru: 1) Gísli Ásgeirsson, f. 1955. Maki: Margrét Sig- rún Jónsdóttir: Hann á Ilmi Dögg og Orra Frey. 2) Páll Ásgeir Ásgeirs- son, f. 1956. Maki: Rósa Sigrún Jóns- dóttir. Hann á Lilju Dröfn og Lindu Björk. 3) Hrafney Ásgeirsdóttir, f. 1958. Maki Bjarni Már Gísla- son. Hún á Jóhönnu og Sverri Má. 4) Þorbjörg Ásgeirsdóttir, f. 1961. Maki Bjarni Gautason. Hún á Arnþór, Söru Björgu og Snjó- laugu Völu. 5) Dóttir Ásgeirs Ég ólst upp við þá hugmynd að pabbi vissi allt og gæti allt. Ég elti hann á röndum sem barn og var með honum í allskonar verkum eins og títt er til sveita. Í bláleitum pípureyk í eldhúskrókum í Inn- djúpi, á bryggjunni í Vatnsfirði við moldarverk og fjárrag. Smár í stórum skugga hans fullur af barnslegri aðdáun. Þegar ég óx úr grasi fórum við feðgar að tala saman eins og full- orðnir menn og þá tók samband okkar eðlisbreytingum. Hann varð vinur minn, ráðgjafi og félagi í margvíslegum skilningi auk þess að vera faðir. Hann hlustaði alltaf á fyrirætl- anir mínar af athygli og tók virkan þátt í mörgu sem ég tók mér fyrir hendur. Hann var yfirleitt hvetj- andi og jákvæður en á sama tíma skirrðist hann ekki við að letja mig til þess sem hann taldi ekki skyn- samlegt eða vænlegt til árangurs. Hann var sparari á hrós en margir foreldrar eru nú til dags en þess dýrmætari voru orðin um það sem honum fannst hafa tekist vel. Ég held að faðir minn hafi vilj- að vanda sig við samskiptin við börnin sín. Hann vildi forðast það afskiptaleysi sem hann bar alla ævi kala í brjósti yfir vegna sam- bandsins við föður sinn. Um þetta talaði hann oft við mig og mér varð ljóst að þar var sár sem tím- ans tönn gat ekki grætt. Á sínum yngri árum tók pabbi virkan þátt í pólitísku starfi af ýmsum toga. Hann varð einarður kommúnisti á skólaárum sínum á Laugarvatni og fylgdi að mínu viti þeim grundvallarkenningum til loka þrátt fyrir þau áföll sem stefnan beið á heimsvísu. Hann var virkur í Samtökum herstöðva- andstæðinga og starfaði fyrir Al- þýðubandalagið og sat á fram- boðslistum þess flokks í endurtekin skipti. Hann var tungumálagarpur sem hreifst af þýsku og latínu á skólaárum og las hið fyrrnefnda sem sitt eigið tungumál. Hann kenndi sjálfum sér undirstöðu í rússnesku á árunum í sveitinni. Hann lærði pólsku af eigin ramm- leik á efri árum og átti litrík sam- skipti við pólska samfélagið á Ís- landi. Hann lærði nótnalestur og organslátt af sjálfum sér og spilaði við guðsþjónustur í Vatnsfjarðar- kirkju meðan við bjuggum í Þúf- um. Hann samdi vinsæla hand- bók: Tré og runnar á Íslandi, á árunum í Skógræktinni en rækt- aði kartöflur í eigin garði. Þannig setti hann sig af ástríðu inn í þau málefni sem voru honum hugstæð á hverju æviskeiði en lagði þau svo einatt til hliðar og sneri sér að öðrum og nýrri. Hann lagði stund á ljóðagerð á yngri ár- um og gat kastað fram tækifær- isvísum. Fáein ljóð eftir hann birt- ust opinberlega í Rétti og TMM á sjöunda áratugnum. Hann las skáldsögur af ástríðu á yngri ár- um en sagðist hafa hætt því í kringum 1970. Sjaldan ræddi hann þessi hugðarefni sín nema eftir því væri gengið. Þá opnaðist stund- um heimur sem hann hversdags- lega hafði alveg fyrir sig. Hann var í raun ofurgreindur, mjög við- kvæmur maður sem beitti ýms- um aðferðum til þess að skýla sér fyrir áreiti heimsins og brá yfir sig ólíkum hempum í þeim til- gangi. Nú hverfur hann sjónum en lif- ir áfram í minningum allra sem þekktu hann. Svo fylgjum við hon- um inn í myrkrið og loks er eins og ekkert hafi gerst. Páll Ásgeir Ásgeirsson. Mig langar að minnast skóla- bróður og herbergisfélaga í fjóra vetur og umhverfisins sem við dvöldum í. Við Ásgeir sáumst fyrst á Laugarvatni í september árið 1948. Hann kom að vestan frá Ísafirði og ég að austan frá Stöðv- arfirði. Báðir höfðum við lokið landsprófi um vorið, hann á Ísa- firði en ég á Laugarvatni. Skólastjórinn á Laugarvatni, Bjarni Bjarnason, var áhugamað- ur um að koma á menntaskóla í sveit. Hann taldi að það væri gott að hafa menntaskóla staðsettan utan þéttbýlis. Því bauð hann nemendum sem lokið höfðu lands- prófi að koma á Laugarvatn í svo- kallaða menntadeild sem væri ut- anskólanám frá Menntaskólanum í Reykjavík. Þarna var mættur hópur af ungu fólki til að taka þátt í þessari tilraun. Við Ásgeir urðum her- bergisfélagar og fengum herbergi á Grund sem var nýr heimavist- arbústaður. Þar bjuggum við í fjóra vetur. Að vera í heimavist- arskóla í sveit veitir ákveðinn þroska. Ekki eingöngu hvað varð- ar menntunina, heldur einnig í félagslegu tilliti. Nemendur þurfa að taka ábyrgð á sér og fara eftir reglum skólans. Við Ásgeir náðum vel saman sem herbergisfélagar og tókum tillit hvor til annars. Eftir fyrsta veturinn hafði fækkað í hópnum og vorum við að- eins sex eftir sem stefndum á stúdentspróf. Það voru: Við Ás- geir, Elís Guðnason, Erling Snæv- ar Tómasson, Ingibjörg Berg- þórsdóttir og Teitur Benediktsson. Ásgeir var skarpur námsmaður og átti auðvelt með að læra tungumál og fannst mér gott að leita til hans í því sambandi. Tíminn leið og komið var að lokavetri til stúdentsprófs. Loka- prófin byrjuðu í maí og stóðu til 11. júní í Menntaskólanum í Reykjavík. Við urðum sjálf að út- vega okkur samastað og lestrar- aðstöðu. Jónas frá Hriflu bauð okkur að lesa í Samvinnuskólan- um og þáðu sumir það. Við utan- skólafólkið vorum alltaf tekin seinust upp í munnlegu prófunum og kom fyrir að við vorum í próf- um eftir kvöldmat. Öll stóðumst við prófin og sumir með ágætum. Útskriftin fór fram 17. júní 1952 og í athöfninni talaði meðal annars Ásgeir Ásgeirsson fyrir hönd 40 ára stúdenta, en hann var þá að bjóða sig fram til forseta. Daginn eftir útskriftina var haldið kaffisamsæti á Laugar- vatni til að fagna áfanganum. Einnig var okkur sexmenningun- um boðið í ferð til Kirkjubæjar- klausturs þar sem við gistum eina nótt. Bjarni skólastjóri kvaddi okkur síðan með því að aka okkur til Reykjavíkur. Á leiðinni vildi hann koma við hjá skáldinu Hall- dóri Kiljan á Gljúfrasteini. Í Reykjavík skildu leiðir okkar sex menningana en fyrstu árin á eftir hittumst við öðru hvoru. Árin liðu og það fækkaði í hópn- um. Síðustu árin vorum við Ásgeir orðnir tveir eftir. Siðast heyrði ég í honum í tengslum við 70 ára stúdents afmæli okkar 17. júní sl. Þá var hann orðinn mikið veikur. Menntaskólinn á Laugarvatni var stofnaður 1953 og við þessi hópur áttum þátt í því að hugsjón Bjarna skólastjóra um mennta- skóla í sveit, varð að veruleika. Að síðustu vil ég þakka Ásgeiri fyrir gamlar, góðar stundir og óska honum alls góðs á nýjum slóðum. Fjölskyldunni sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Einar Þór Þorsteinsson námsmaður á Laugarvatni 1946-1952. Elsku afi Ásgeir. Nú hefur þú kvatt og við þökkum fyrir þig og samfylgdina. Við systur yljum okkur við góð- ar minningar um opið heimili ykk- ar ömmu í Skólagerði þar sem ávallt var tekið á móti okkur með hlýjum faðmi, brosi á vör og bakk- elsi að sveitasið. Þú varst ekki síð- ur en amma virkur í framreiðslu kræsinga sem mynduðu umgjörð um skemmtileg og lífleg samtöl sem flæddu í allar áttir; þó ávallt mest í vestur. Þegar samtalið færðist að nýjum vinum og kunn- ingjum hvarfst þú yfirleitt snöggt inn í ættfræðihornið þitt og komst að vörmu spori til baka með yfirlit yfir ættir þeirra allt aftur í 5. ætt- lið. Þú varst líka frábær fyrirmynd eins og þegar þú fórst að læra pólsku á efri árum og nýttir svo til að hjálpa góðum nágrönnum við heimanám og kynnast nýrri menningu á heimaslóðum. Claudia og Nadia urðu fljótt eins og barnabörn þín og myndaðist fallegt sambandi ykkar á milli. Jólaboðin í Skólagerði voru ein- stök og þinn frægi rommbúðingur ómissandi. Þú vildir nú ekki vera í neinu liði þegar kom að spilunum en passaðir að ganga á milli og hjálpa þeim sem þess þurftu við og stríða smá þeim sem lækka mátti rostann í. Þið amma voruð límið í fjöl- skyldunni og húsið ykkar alltaf opið. Maður gat komið við hjá ykkur og verið öruggur um að hitta aðra úr fjölskyldunni í kaffi á sama tíma. Við erum nú þegar farnar að sakna þess mikið. Elsku afi, knúsaðu ömmu frá okkur og við sjáumst. Ástarkveðjur, Linda og Lilja Pálsdætur. Ásgeir Svanbergsson Það mun hafa ver- ið í sumarbyrjun á því herrans ári 1946, að tápmikill drengur á þriðja ári fór að spranga um grundir Hrafnkelsdals. Þá þegar þótti hann „hár til hnésins“ og sú hæð stigmagnaðist í dalnum næstu ár- in, enda dalurinn orkumikil upp- eldisstöð. Drengurinn varð himnalengja, helst líkt við enda- lausan snurðulausan „spotta“ af stuttstígum útsveitarmönnum, sem aldrei sáu til enda á þeim þræði. Í dalnum fetaði drengurinn í fótspor Freyfaxa og Hrafnkels Freysgoða Hallfreðarsonar, sem fór ekki alltaf með friði. Ófriður hvarflaði þó aldrei að þessum dreng, þótt hann ætti það til að vera stríðinn. Á fullorðinsárum þótti honum ekki sérlega leiðin- legt að velta sveitungum sínum upp úr háði á mannamótum sveit- arinnar, þar sem drengurinn úr Hrafnkelsdal fór iðulega á kost- um, spilaði á harmónikuna og söng hástöfum eigin kveðskap. Þessi drengur fékk nafnið Ein- ar eftir móðurafa sínum Eiríks- syni hreppstjóra í Fjallsseli í Fell- um, ættuðum frá Bót. Kona hans var Kristrún Hallgrímsdóttir. Dóttir þeirra var Ingunn, sem giftist Páli Gíslasyni frá Skógar- gerði. Einar var þriðja barn þeirra hjóna. Sumarið 1945 fengu Páll og Inga Aðalból til ábúðar. Páll fór þangað sama ár með ærnar sínar, en Inga kom vorið eftir með Ein- ar, en Dagný systir kom um haustið. Síðar eignuðust Aðalbóls- hjónin sjö börn til viðbótar. Uppruninn gerði háfætta drenginn hvorki hærri né smærri þegar hann fetaði sig fótgangandi Einar Pálsson ✝ Einar Pálsson fæddist 26. des- ember 1943. Hann lést 19. mars 2022. Útför fór fram 17. ágúst 2022. inn grundirnar í Hrafnkelsdal í fyrsta sinn, í fylgd með móður sinni. Þar fann hann sig heima. Þar mættu þau einni heimasætunni á Vaðbrekku, sem gjarnan vildi bera drenginn á örmum sér. Það þekktist drengurinn ekki þá, en „svo verður hún fyrir því aumingja manneskjan, að hann verður tengdasonur henn- ar“, sagði Inga þegar hún minntist þessa fundar við Sigrúnu á Vað- brekku og hló dátt. Heimurinn er ekki stór. Háfætti drengurinn frá Aðalbóli kvæntist Ragnhildi Benedikts- og Sigrúnardóttur frá Vaðbrekku, en Aðalsteinn afi hennar var af Ekkjufellsættinni, þar sem Aðalbólsdrengurinn fæddist. Háfætti drengurinn á Aðalbóli drakk í sig þá krafta, sem Hrafn- kelsdalur var aflögufær með og það var nú talsvert. Hann skondr- aðist þar innan um ær, kýr, hesta og geitur. Hann kannaði líka land- ið og miðin, töffarinn reri eftir síld og fleiri fiskum, en „heima“ var í Hrafnkelsdal. Þar reisti hann sér bú í upphafi, en færði sig síðar að Arnórsstöðum í sömu sveit. Á efri árum brá hann búi og flutti í Eg- ilsstaði og loks til Akureyrar. Nú er Einar frændi minn frá Aðalbóli hættur að búa. Hann fól afkomendum sínum að skila sér aftur til þess gróanda, sem kom honum til manns. Það hefur verið gert af myndugleik. Líkar voru óskir Páls föður hans og við þeim var orðið. Þeir feðgar geta því kallast á í dalnum. Líklegra finnst mér þó, að þeir þegi saman. Það er nefnilega notalegt að þegja með sínum. Þess vegna ætla ég að heimsækja þá feðga í sumar og þegja með þeim um stund, að hætti Skóggerðinga. Gísli Sigurgeirsson frá Skógargerði. Hann Jón var svo mikill gleðipinni. Þegar ég minnist hans kemur mér í hug stórafmæli sameiginlegrar vinkonu okkar, Þórunnar Valde- marsdóttur. Hafði hún beðið Jón að stjórna með sér afmælisgöngu á Þingvöllum. Þar áttum við vinir hennar að mæta á BSÍ með nesti og á góðum gönguskóm. Hafði hún valið Jón, sinn góða vin, til að leiða sig í þessari afmælisgöngu um gamla þingstaðinn. Og án nokkurra mótmæla hafði Jón tek- ið að sér það virðulega hlutverk að leiða skáldkonuna sér við hönd. Henni tókst að fá hann til að hafa á höfði sér skrípó-pípuhatt með tignarlegum strútsfjöðrum sem átti vel við höfuðprýði skáldkon- unnar. Sjálf hafði hún fengið að láni hjá Þjóðleikhúsinu undur- fagran fjaðrahatt sem hefði getað sómt sjálfri Maríu Antoníettu, fyrrverandi drottningu Frakka. Rútan með okkur afmælisgest- um, Jóni og skáldkonunni stopp- aði á Hakinu og haldið í skrúð- göngu niður Almannagjá. Þar í hinni sögulegu gjá var breitt úr gömlu Álafossteppi með hinum herlegustu kræsingum, ásamt tugum kaffibrúsa og plastbolla. Þannig var hann Jón vinur okk- Jón Emanúel Júlíus Júlíusson ✝ Jón Emanúel Júlíus Júlíusson fæddist 19. desem- ber 1942. Hann lést 4. ágúst 2022. Útför Jóns fór fram 15. ágúst 2022. ar, alltaf til í hvers kyns vitleysu og þess vegna elskuð- um við hann öll. Auð- vitað verður ekki farið í fleiri Þing- vallaferðir með pípu- hatta og strútsfjaðr- ir en fleiri minningar hlaðast upp í huga mínum um hann. Þá dettur mér í hug er hann kíkti oft til okkar þar sem ég stjórnaði opnu húsi hjá Blindrafélaginu. Svo kom að því að hann tók við því embætti af mér. Hans er sárt saknað hjá blindum. Það fannst enginn á Reykjavíkursvæðinu sem betur flutti sögur og ljóð en Jón Júlíusson. Hann stjórnaði opnu húsi af mikilli prýði. Líklega var það hlýja mjúka röddin hans Jóns sem blinda fólkinu þótti svo vænt um. Þau sem ekki sáu gátu skynjað að enginn nema góður maður gæti átt slíka rödd. Þegar ég hugsa um heimför þína í ríki kærleikans þá sé ég þig fyrir mér brunandi á skautum far- sældar með sætustu englastelp- una upp á arminn. Við Gullna hlið- ið, þegar Lykla-Pétur ætlar að afhenda þér geislabaug úr skíra- gulli, þá afsakar hann Jón sig kurteislega og biður heldur um gamlan sjúskaðan pípuhatt sem kannski finnst í propsinu á himn- um og ekki myndi skaða að þann pípuhatt prýddu fáeinar strúts- fjaðrir. Guð blessi þig og vaðveiti kæri vinur. Þín verður sárt sakn- að. Guðrún Ásmundsdóttir. Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA SIGURÐARDÓTTIR, Ásholti 7, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum sunnudaginn 28. ágúst. Útför verður tilkynnt síðar. Ágúst Óskarsson Óskar Örn Ágústsson Ásta Jenný Sigurðardóttir Silja Rán Ágústsdóttir Rosi Rolf Rosi Heiðar Reyr Ágústsson og barnabörn Elsku hjartans eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, ANNA PÁLÍNA BALDURSDÓTTIR, Vestursíðu 9, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð fimmtudaginn 18. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 13. Eggert Eggertsson Aðalheiður Eggertsdóttir Baldur Pálsson Eggert Eggertsson Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir Anna Margrét Eggertsdóttir Elvar Knútur Valsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir og stjúpfaðir, SIGURGEIR KJARTANSSON læknir, andaðist á heimili sínu 25. ágúst. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. september klukkan 10. Jóhanna G. Halldórsdóttir Aðalsteinn Sigurgeirsson og fjölskylda Elín Sigurgeirsdóttir og fjölskylda Kristín Garðarsdóttir og fjölskylda Bryndís Garðarsdóttir og fjölskylda Áslaug Garðarsdóttir og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.