Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Úkraínumenn hófu í gær öfluga stór- skotahríð á skotmörk vítt og breitt um Kerson-hérað og var hún sögð marka upphaf gagnsóknar, sem hafi það að markmiði að frelsa borgina undan hernámsliði Rússa. Sergei Khlan, einn af ráðgjöfum héraðsstjórans í Kerson, sagði við fjölmiðla í gær að stórskotahríðin markaði upphaf þess að héraðið allt yrði frelsað, en Rússar hertóku borgina 3. mars síðastliðinn. Kerson er eina héraðshöfuðborgin sem fallið hefur Rússum í skaut frá því að þeir hófu innrás sína í febrúar, og hún er einnig eina stórborgin sem þeir ráða yfir vestan Dnípr-fljótsins, sem rennur í gegnum Úkraínu miðja. Úkraínumenn hafa á síðustu vikum beint stórskotahríð sinni að brúm yfir fljótið, með það að mark- miði að takmarka birgðaflutninga Rússa yfir það. Hermdu óstaðfestar fregnir í gær að Úkraínuher sækti fram úr þrem- ur mismunandi áttum, og að hann hefði náð að brjótast í gegnum fram- línu Rússa í héraðinu á að minnsta kosti einum stað, en staðfest var í rússneskum fjölmiðlum að rúss- neska hernámsliðinu hefði verið skipað að yfirgefa stöður sínar í bænum Nova Kakhova vegna fjölda stórskotaliðsárása. Þá bárust einnig fregnir um fjórar sprengingar í miðborg Melitopol, sem er í Saporisjía-héraði, en borgin hefur mátt þola aukna stórskotahríð frá Úkraínuher síðustu daga. Ætla að kanna aðstæður Rafael Grossi framkvæmdastjóri alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar IAEA sagði í gær að hann væri nú á leiðinni ásamt sérfræðingateymi sínu til kjarnorkuversins í Saporisjía til að kanna aðstæður þar, en Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvorir aðra um að hafa beint skothríð að verinu. Dmítró Kúleba utanríkisráðherra Úkraínu sagði að verkefnið yrði það erfiðasta sem IAEA hefði tekist á hendur, þar sem Rússar væru nú með virkar hernaðaraðgerðir í ná- grenni versins. Þá sagði Kúleba Rússa fara fram með lygum til þess að reyna að réttlæta hertöku sína á kjarnorkuverinu. Munu ræða áritanamálið Olaf Scholz Þýskalandskanslari lýsti því yfir í gær að hann styddi það að Úkraína og nokkrar aðrar um- sóknarþjóðir fengju aðild að Evr- ópusambandinu. Scholz varaði hins vegar við því að stækkun bandalagsins myndi kalla á umbætur á regluverki þess. Sagði Scholz að neitunarvald hvers einasta ríkis yrði þá að víkja fyrir meiri- hlutavaldi, ellegar yrði ákvarðana- taka sambandsins of þung í vöfum. Yfirlýsing Scholz kom degi áður en utanríkisráðherrar aðildarríkj- anna áttu að funda í Prag, en þar munu þeir meðal annars ræða mögu- leikann á því að hætt verði að veita Rússum almennar vegabréfsáritanir til ríkja sambandsins. Þykir líklegt að ráðherrarnir muni samþykkja að víkja frá samkomulagi við Rússa, sem nú gerir það auðveldara en ella að fá slíkar áritanir, frekar en að áritanirnar verði bannaðar alfarið. Gagnsóknin í Kerson sögð hafin - Úkraínumenn láta stórskotahríð dynja á víglínu Rússa í héraðinu - Sagðir sækja fram úr þremur áttum - Sérfræðingateymi IAEA lagt af stað til Saporisjía - Scholz styður ESB-aðild Úkraínu AFP/Anatolii Stepanov Stórskotahríð Úkraínska eldflaugakerfið BM-27 Uragan sést hér skjóta eldflaugum á skotmörk í Donetsk-héraði. Ekkert varð af fyrirhuguðu geim- skoti Artemis 1-flaugarinnar í gær, þar sem bilun í einni af eldflaugum geimfarsins þýddi að ekki þótti vogandi að skjóta því á loft. Fyrirhuguð ferð Artemis 1 til tunglsins á að marka upphaf nýrr- ar tunglferðaáætlunar Bandaríkja- manna, en farið verður ómannað. Stefnt er nú að því að Artemis 1 fari á loft á föstudaginn, 2. sept- ember, eða á mánudaginn 5. sept- ember og stendur geimfarið því enn á skotpalli sínum. Nái verkfræðingar bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hins vegar ekki að gera við bil- unina er mögulegt að fresta þurfi geimskotinu aftur. Næsti „skot- gluggi“ yrði þá síðar í sept- embermánuði. „Við skjótum ekki fyrr en aðstæður eru réttar,“ sagði Bill Nelson framkvæmdastjóri NASA. „Þetta er mjög flókin vél. Þú vilt ekki kveikja á kertinu fyrr en það er tilbúið.“ Hálf öld er liðin síðan mannkynið steig síðast fæti á tunglið, en þá fór geimfarið Apollo 17 til tunglsins. Markmið Bandaríkjamanna með Artemis-áætluninni er að senda aft- ur geimfara til tunglsins, og á nú í fyrsta sinn að senda konu þangað. Ferð Artemis 1-flaugarinnar á að taka 42 daga, og mun Orion-hylkið, fremsti partur geimfarsins, fara á sporbaug um tunglið. Er tilgangur ferðarinnar að kanna hvort geim- farið sé nógu öruggt til þess að flytja mannfólk til tunglsins, sem og að prófa hitaskjöld þess, sem á að tryggja að geimfarið geti snúið aftur til jarðar. Gangi allt eftir mun Artemis 2 leggja af stað árið 2024, en sú ferð verður mönnuð. Ekki er þó ráðgert að fólk stígi aftur fæti á tunglið fyrr en árið 2025. Þá stefna Bandaríkjamenn einn- ig að því að setja geimstöð á spor- baug um tunglið, og á sú stöð síðar meir að auðvelda mannaðar geim- ferðir til Mars. Bilun leiddi til frestunar Hvernig Bandaríkjamenn ætla aftur til tunglsins Heimild: NASA Geimstöð á tunglinu er þungamiðjan í Artemis-áætlun NASA, sem á að flytja menn til tunglsins í fyrsta sinn frá árinu 1972, þegar síðasta Apollo-geimfarið fór þangað ARTEMIS-ÁÆTLUNIN Lok ársins 2024 Fyrstu hlutar „Hliðsins“ sendir til tunglsins *Stöðin verður ekki notuð fyrir Artemis 2 og 3 29. ágúst 2022 Artemis 1: tilraunaflug (frestað) 2024 Artemis 2: fyrsta mannaða flugið, fer á sporbaug um tunglið en lendir ekki 2025 Artemis 3 fer af stað, Mannkynið snýr aftur til tunglsins Miðað við að rannsaka suðurpól tunglsins Lyftivél: SLS eldflaugin (Space Launch System) Þungavigtareldflaug Getur flutt allt að 45 tonn út í geim Orion-hylkið Geimfar sem flytur áhöfn frá jörðu til geimstöðvarinnar hjá tunglinu Hliðið („minni“ geimstöð) Geimstöð sem verður á sporbaug um tunglið. Aðgangur fyrir tunglferðir, og staður þar sem geimfarar geta dvalið í skemmri tíma Tungl- lendingarkerfið 98 m 5 m - Tungláætlunin í startholunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.